7.1.2016 | 22:44
Eldvörp, - hvað um umboðsmann komandi kynslóða?
Einu sinni setti Davíð Oddsson fram hugmyndina um umboðsmann skattgreiðenda og á þeim tíma mátti finna gildar ástæður fyrir því.
Skattgreiðendur og skjólstæðingar umboðsmanna Alþingis og umboðsmanns barna eru lifandi fólk, en lang stærsti hagsmunahópurinn, komandi kynslóðir, er ófæddur, og á því ekki möguleika á að rísa til varnar ef stórlega er gert á hluta hans með framkvæmdum eða aðgerðum, sem hafa mikil neikvæð og óafturkræf áhrif á umhverfi eða kjör hinna ófæddu.
Þessi hópur er margfalt stærri en nú núlifandi fólk, og áhrif sumra gerða núlifandi fólks eiga eftir að bitna á miijónum ófæddra.
Set hér inn sem dæmi um slíka gjörð, tvær loftmyndir af hinni rúmlega tíu kílómetra löngu gígaröð, Eldvörpum norðan við Grindavík, þar sem á að fara að reisa virkjun á stærð við Kröfluvirkjun og gera svæðið, allt til sjávar, - en Gridavík og hafið sjást í fjarska, - að iðnaðarsæði.
Efri myndin er af syðri hluta gígaraðarinnar.
Uppgefin ástæða: Orkuskortur eftir tvö ár vegna okusölusamninga.
Raunveruleg ástæða: Orkan er byrjuð að minnka vegna rányrkju á henni á svæðinu Eldvörp-Reykjanes.
Eldvörp og Svartsengi eru með sameiginlegt orkuhólf og Eldvarpavirkjun er því það sama og að pissa í skó sinn til að halda á sér hita og mun einungis verða til þess að orkan úr hinum sameiginlega orkugeymi verður öll tæmd fyrr en ella og neikvæð óafturkræf umhverfisspjöll verða miklu meiri heldur en þau verða ef gígasvæðinu verður þyrmt.
Hvergi á þurrlendi jarðar finnast gígaraðir nema á Íslandi. Til að finna jafnoka Eldvarpa þarf að fara austur að Lakagígum eða norður í Mývatnssveit og í Gjástykki.
Sjá nánari umfjöllun á facebook síðu minni með tengil í bloggpistil hér á síðunni 16. janúar 2013.
![]() |
Vilja umboðsmann flóttamanna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt 10.1.2016 kl. 02:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
7.1.2016 | 18:59
Hægt að gera miklu betur næst.
Það blasti við í eldgosunum 2010 og 2011 að mikil brotalöm var á varúðarviðbrögðum flugyfirvalda. Þau voru hvað eftir annað kolröng og ollu miklu meiri og kostaðarsamari röskun á flugsamgöngum en efni stóðu til.
Mörg dæmi má nefna um þetta, svo sem þegar til stóð að loka flugvöllunum við Faxaflóa á sama tíma og bjartviðrið var slíkt að skyggni var ótakmarkað og Snæfellslökull blasti víð úr flugturnunum í Reykjavík og Keflavík.
Nútímatækni á að vera orðin það mikil og fjölbreytt að betur takist til næst þegar svipaðar aðstæður koma upp vegna eldgoss.
![]() |
Æfa viðbrögð við eldgosi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
7.1.2016 | 10:35
Viðskiptabönn bitna alltaf á einhverjum.
Viðskiptabönn bitna alltaf á einhverjum, og viðskiptabönn á milli þjóða koma oftast niður á afmarkaðri starfsemi á meðan aðrir sleppa að mestu. Og yfirleitt er það afar ósanngjarnt að sumum blæði á meðan allir aðrir sleppa.
Sem dæmi má nefna að nýjustu viðskiptaþvinganirnar, sem Rússar beita Tyrki, koma harkalega niður á afmarkaðri starfsemi í Tyrklandi og einnig á rússneskum fyrirtækjum.
Þeir sem skaðast eru að sjálfsögðu afar ósáttir við að allt tjónið vegna viðskiptaþvingana skuli koma niður á þeim á meðan allir aðrir sleppa nær alveg.
Rússar hafa krafist afökunarbeiðnar frá Tyrkjum vegna þess að rússnesk orrustuþota var skotin niður, en Tyrkir neita og telja sig hafa verið í fullum rétti við að verja lorthelgi sína og fullveldi.
Vegna skorts á óyggjandi sönnunargögnum er erfitt að upplýsa málið til fulls.
Á meðan Tyrkir neita að játa sök og deila þjóðanna er óleyst mun fjöldi tykneskra fyrirtækja verða fyrir mjög óverðskulduðu tjóni.
![]() |
Eiga ekki einir að bera hitann |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
7.1.2016 | 00:13
Brýn þörf á að kryfja þetta mál til mergjar.
"Það verður að vera regla á hlutunum", "ordnung muss sein" er setning, sem oft er hermd upp á Þjóðverja.
Agi og reglusemi hafa löngum verið aðalsmerki landsmanna.
Í samræmi við það er brýnt að rannsaka árásirnar á nýársnótt með þýskri nákvæmni og grípa til ráða sem duga.
Fréttir af árásunum voru misvísandi í fyrstu, enda árásarmennirnir taldir vera um þúsund og erfitt að alhæfa um uppruna þeirra fyrr en eftir eins ítarlega rannsókn og möguleg er.
Samt voru margir sem töluðu um þetta eins og endanlega upplýst.
Sagt hefur verið að forsprakkarnir hafi verið af norðurafrískum og arabiskum uppruna og eiga að baki langan vandræðaferil.
Þess vegna er á fyrsta stigi rannsóknar erfitt að samsama þá beint þeim flóttamönnum, sem eru nýkomnir til landsins.
Milljónir múslimskra innflytjenda, einkum tyrkneskra, hafa flust til Þýskalands síðustu hálfa öld og þeir voru og eru undirstaða þess, sem kallað var hið þýska efnahagsundur.
Voru ómissandi vinnuafl við störf, sem Þjóðverjar vildu ekki vinna sjálfir í þeim mæli sem nauðsynlegt var.
Það kallar á spurningar. Hvers vegna hefur ekkert svipað gerst áður, þar sem menn af tyrkneskum úppruna voru taldir gerendur úr því að múslimatrú er tengd við þessa nýjustu viðburði?
Þúsund drukknir ofstopamenn er að sönnu há tala. En þó brot úr prósenti af múslimum, sem flust hafa til Þýskalands um áratuga skeið, löngu áður en Angela Merkel varð kanslari.
En hún verður að fást við þetta erfiða mál af yfirvegun og röggsemi.
![]() |
Olía á eld andstæðinga Merkel |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 00:21 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (35)
6.1.2016 | 18:00
Minnir á rússneska landsliðið hér um árið.
Landslið Rússa í knattspynu sem komst í undanúrslit á EM 2008, var eitt allra skemmtilegasta landslið síðari ára.
Aðall liðsins var leikaðferðin, fleiri, hraðari og beittari gagsóknir en sést höfðu á knattspynuvellinum frá upphafi til enda leiks.
Að lokinni hverri sókn þurftu leikmennirnir að geysast jafnhratt til baka til að verjast og bruna síðan aftur í leiftursókn.
Svo vel gekk liðinu framan af með sannfærandi sigrum á Hollendingum og Svíum, að menn voru farnir að spá því sigri á mótinu.
En þá sprakk blaðran og liðið var eins og svipur hjá sjón í undanúrslitaleik við Spánverja.
Hin gríðarlega yfirferð og hraði fram og til baka enda á milli á vellinum í 90 mínútur í hverjum leik fór fram yfir þolmörk hjá leikmönnunum.
Þeir voru orðnir þreyttir eftir þessa yfirgengilegu keyrslu, leik eftir leik, farnir að missa snerpu og gera fleiri mistök.
En leikmennirnir nutu margir góðs af frammistöðu sinni á eftir, svo sem hinn snjalli Arshavin, dýrsti leikmaður Arsenal fram að því.
Margir hafa brennt sig á þessu á erfiðustu stórmótum heims og gleymt því að mótin hlíta í að sumu leyti lögmálum langhlaupa.
Þýska Bundesligan í handbolta er til dæmis farin að líða fyrir þetta og missa topp leikmenn frá sér vegna of mikils álags á þá.
![]() |
Meiðslin eru Klopp að kenna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
6.1.2016 | 13:01
"Írska aðferðin" er í frumvarpi stjórnlagaráðs.
Eftir könnun á fyrirkomulagi og framkvæmd forsetakosninga hjá erlendum þjóðum var það niðurstaða stjórnlagaráðs að það fyrirkomulag, sem Ólafur Harðarson nefnir "írsku aðferðina", hefði flesta kosti og fæsta galla
Hún laðar fram meirihluta að baki kjörins forseta án þess að það þurfi að kjósa tvisvar og þess vegna er lagt til að hún verði notuð.
Raunar sýnast einu líkurnar á að Ólafur Ragnar Grímsson telji sig tilneyddan að bjóða sig fram að gríðarlegur fjöldi frambjóðenda með lágt fylgishlutfall stefni kosningunum í óefni.
![]() |
Engin glufa hjá Ólafi Ragnari |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 14:18 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)
6.1.2016 | 01:52
Jón Þ. og Brumel snertu körfuboltahring með tánum.
Frá gólfi upp í körfuboltahring eru 3,048 metrar. Rússinn Valery Brumel var besti hástökkvari heims á 7. áratug síðustu aldar og þóttu firn mikil þegar hann lék sér að því á æfingum að stökkva upp og snerta körfuboltahring með stóru tánni.
En annar hástökkvari gat líka gert þetta á fyrstu árum 7.áratugarins.
Það var Jón Þ. Ólafsson, sem gerði þetta með þriggja skrefa atennu í hinu pínulitla íþróttahúsi ÍR við Túngötu.
Hver sá, sem stendur fyrir neðan körfuboltahring og horfir upp í hann hlýtur að undrast að þetta skuli vera hægt.
Valery Brumel náði meistaralegum tökum á grúfustílnum svonefnda og þegar það bættist við einstæðan stökkkraft voru yfirburðir hans tryggðir.
Jón Þ. náði ekki sömu tökum á þeim erfiða stíl, var of fattur yfir ránni og felldi oft með mjöðmunum, þótt efri hluti líkamans væri 10-15 sentimetra yfir ránni.
Hann hefði hugsanlega náð betri árangri með Fosbury stílnum svonefnda sem nær allir hafa notað síðustu fjóra áratugi, en þessi stíll byrjaði ekki að ryðja sér til rúms fyrr en eftir 1968.
Það fer um mann gamall straumur við að sjá norsku hlaupakonuna stökkva á tengdu myndskeiði á mbl.is
Það var gaman að því um tvítugt að stökkva í þremur skrefum upp tröppurnar á Stórholti 33.
Þær voru og eru tvískiptar, fyrst þrjár tröppur, síðan kom ca 2,5 metra pallur, en þar á eftir komu sjö tröppur.
Vegna pallsins varð hraðinn mikilvægt og skemmtilegt atriði í þessu sérkennilega þrístökki.
![]() |
Ótrúlegur stökkkraftur - myndskeið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 02:21 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
5.1.2016 | 21:52
Ekki sama hver á í hlut.
Nóbelskáldið fjallaði eitt sinn um það fyrirbæri hjá okkur Íslendingum að taka afstöðu í rökræðum eftir því hver segði eða gerði eitthvað frekar en að taka afstöðu eftir því hvað væri sagt eða gert.
Þetta fyrirbrigði er samt víðar að finna, eins og til dæmis sést á viðbrögðum við vopnaðri yfirtöku manna á náttúruverndarsvæði í Oregon í Bandaríkjunum.
"Getur nokkuð gott komið frá Nasaret?" var sagt um Jesú Krist.
Og umrætt fyrirbrigði á sér hliðstæður við ólíkar aðstæður.
Þannig var sagt frá þeim atburði í dagblaði á Akureyri hér um árið að hundur hefði ráðist á mann og bitið hann illa.
Í lok fréttarinnar sagði: "Tekið skal fram að um aðkomuhund var að ræða."
![]() |
Kveikir umræðu um kynþátt og hryðjuverk |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
5.1.2016 | 17:04
Eru "einhverjir úr hópunum" sama og allir í hópunum?
Neyðarfundur hefur verið haldinn hjá lögreglunni í Köln í Þýskalandi vegna að svo virðist sem skipulagðar hópárásir hafi verið gerðar á minnst 80 konur á nýársnótt í Köln og Hamborg.
Þúsund karlmenn stóðu að þessum árásum.
Er þetta nýtt fyrirbrigði og stóralvarlegt mál sem Þjóðverjar ætla að taka föstum tökum.
BBC hafði eftir lögreglustjóranum í Köln að árásarmennirnir væru af arabískum og norðuraafrískum uppruna.
Sjá mátti í bloggi um þetta að múslimatrúar hælisleitendur stæðu að þessu.
Er það að sjálfsögðu stóralvarleg hlið á flóttamannavandanum ef hælisleitendur fara um eins og úlfahjarðir með ránum og ofbeldi gegn konum á dæmalausan hátt.
Í tengdri frétt um málið á mbl.is segir að "einhverjir af" þessum árásarmönnum hafi verið hælisleitendur, en af fyrrnefndu bloggi um málið má ráða að ekki þurfi frekar vitnanna við,- þetta hafi verið flóttamenn.
Orðrétt hefst bloggpistill um þetta svona: "Flóttamenn frá Miðausturlöndum og Norðurafríku eru gerendur...."
Ekki minnst á hvort nokkrir aðrir hefðu verið gerendur.
![]() |
Hópárás í Köln vekur óhug |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 17:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)
5.1.2016 | 12:23
Lögreglan okkar.
"Lögreglan okkar" gæti allt eins verið fyrirsögn á nýjum bloggpistli,sem af tæknilegum ástæðum lenti aðeins aftar í pistlaröðinni hér á síðunni og má sjá má hér fyrir neðan.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 12:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)