Brýn þörf á að kryfja þetta mál til mergjar.

"Það verður að vera regla á hlutunum", "ordnung muss sein" er setning, sem oft er hermd upp á Þjóðverja.

Agi og reglusemi hafa löngum verið aðalsmerki landsmanna.

Í samræmi við það er brýnt að rannsaka árásirnar á nýársnótt með þýskri nákvæmni og grípa til ráða sem duga.

Fréttir af árásunum voru misvísandi í fyrstu, enda árásarmennirnir taldir vera um þúsund og erfitt að alhæfa um uppruna þeirra fyrr en eftir eins ítarlega rannsókn og möguleg er.

Samt voru margir sem töluðu um þetta eins og endanlega upplýst. 

Sagt hefur verið að forsprakkarnir hafi verið af norðurafrískum og arabiskum uppruna og eiga að baki langan vandræðaferil.

Þess vegna er á fyrsta stigi rannsóknar erfitt að samsama þá beint þeim flóttamönnum, sem eru nýkomnir til landsins.

Milljónir múslimskra innflytjenda, einkum tyrkneskra, hafa flust til Þýskalands síðustu hálfa öld og þeir voru og eru undirstaða þess, sem kallað var hið þýska efnahagsundur.

Voru ómissandi vinnuafl við störf, sem Þjóðverjar vildu ekki vinna sjálfir í þeim mæli sem nauðsynlegt var.

Það kallar á spurningar. Hvers vegna hefur ekkert svipað gerst áður, þar sem menn af tyrkneskum úppruna voru taldir gerendur úr því að múslimatrú er tengd við þessa nýjustu viðburði? 

Þúsund drukknir ofstopamenn er að sönnu há tala. En þó brot úr prósenti af múslimum, sem flust hafa til Þýskalands um áratuga skeið, löngu áður en Angela Merkel varð kanslari.

En hún verður að fást við þetta erfiða mál af yfirvegun og röggsemi.

 


mbl.is Olía á eld andstæðinga Merkel
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þorsteinn Briem

"Yf­ir­völd segja aft­ur á móti að ekk­ert hafi verið staðfest um að árás­ar­menn­irn­ir séu hæl­is­leit­end­ur sem hafi komið til Þýska­lands á ár­inu."

Þorsteinn Briem, 7.1.2016 kl. 00:39

3 Smámynd: Þorsteinn Briem

Tyrkir hafa átt stóran þátt í velgengni Þýskalands og innflytjendur hafa haldið sjávarútveginum gangandi hér á Íslandi.

Turks in Germany

Þorsteinn Briem, 7.1.2016 kl. 00:53

4 Smámynd: Þorsteinn Briem

Auðvitað vill Donald Trump banna 1,7 milljörðum múslíma, um fjórðungi mannkynsins, að koma til Bandaríkjanna.

Öll múslímaríkin í heiminum, um sextíu, myndu þá væntanlega banna öllum Bandaríkjamönnum að koma til þeirra ríkja og hætta öllum samskiptum við Bandaríkin.

Þorsteinn Briem, 7.1.2016 kl. 01:16

5 Smámynd: Jón Valur Jensson

Þýzka efnahagsundrið var byrjað og komið á mikið flug, undir leiðsögn Adenauers og Ludwigs Erhard, alllöngu áður en innflutningur tyrkneskra verkamanna hófst. Ekkert efnahagsundur byggist alfarið á minnst þjálfaða starfsfólkinu.

Jón Valur Jensson, 7.1.2016 kl. 03:00

6 identicon

Fyrst reyndu yfirvöld og fjölmiðlar í Þýsklandi að hylma yfir að þessar árásir hafi átt sér stað. Það gekk ekki upp, svona alvarlegir glæpir verða ekki þaggaðir niður.

Og fyrst að ekki var hægt að hylma yfir og þagga niður, þá eru aðrar aðferðir notaðar. Ekki á að vera hægt að fullyrða að hér hafi verið múslimar frá norður Afríku og Miðausturlöndum. Aftur verður að benda á, að konurnar sem urðu fyrir árásunum, þessum sem ekki var hægt að þagga niður í, fullyrða að hér hafi nákvæmlega þannig menn verið á ferð.

Þá er reynt að fullyrða, að ekki hafi endilega verið um meinta flóttamenn að ræða. Aftur, kynferðislegt ofbeldi hefur verið rauður þráður í gegnum flóttamannabíóið undanfarið ár, þó svo að menn hafi líka reynt að þagga það niður. Og komi það í ljós, að hér hafi EKKI verið um flóttamenn að ræða, þá bendir það einfaldlega til þess, að ekki sé hægt að aðlaga miðaldahugsunarhátt múslima að Evrópu.

Og þá að mikilvægi innflytjenda í atvinnulífi Evrópu. Skondið að þetta skuli koma frá manni sem berst hatrammlega gegn öllum tilraunum til að auka arðsemi á Íslandi með virkjunum. Ekki má virkja neitt, til að náttúran haldist óbreytt, en það er í fínu lagi að fórna mannréttindum Evrópumanna, áunnum með blóði og tárum, fyrir félagslega tilraunastarfsemi góða fólksins.

Við þurfum ekki meira að þýskri nákvæmni, sem felst í að þagga niður skipbrot fjölmenningarstefnunnar.

Hilmar (IP-tala skráð) 7.1.2016 kl. 08:28

7 identicon

Kannski eru flóttamenn hluti af hernaðaráætlun Þjóðverja.  Snyrtileg tala í excelskjali.  Kannski er réttindaskerðing almennra borgara líka hluti af hernaðaráætlun ESB.  Hárnákvæm fyrirmæli Henríettu borgarstjóra Kölnar um "armslengd" vekja upp ákveðnar spurningar.

Elín Sigurðardóttir (IP-tala skráð) 7.1.2016 kl. 08:35

8 identicon

En góða fólkið með Gunnar Braga í broddi fylkingar hlýtur að gleðjast mjög þessa dagana.  "Armslengd" má með góðu móti kalla "tilfinningalegt svigrúm".

http://www.mbl.is/frettir/innlent/2016/01/07/skiptir_ekki_um_skodun/

Elín Sigurðardóttir (IP-tala skráð) 7.1.2016 kl. 09:02

9 Smámynd: Jón Valur Jensson

Ætli Heríetta tali eins til annarra fórnarlamba nauðgunar?

En kannski sér hún ekki fram á lengri pólitískan feril úr þessu heldur en Gunnar Bragi Sveinsson, sbr. hér: "Einhver einn maður á ekki að ráða þessu" dýrkeypta máli viðskipta­þvingana við Rússa!

Jón Valur Jensson, 7.1.2016 kl. 09:08

10 identicon

Hann er ekkert einn hann Gunnar Bragi.  Þau vilja öll þarna inn, fölsk og ógeðsleg, stjórnin og stjórnarandstaðan.  

Elín Sigurðardóttir (IP-tala skráð) 7.1.2016 kl. 09:12

11 identicon

Já, armslengdin í Kölnistan er náttúrulega ekki minna en hrein snilld. Fyrst ekki var hægt að þagga málið niður, þá er náttúrulega best að kenna konum hvernig á að haga sér í návígi við múslima.

Ekki veit ég hvernig farið hefði fyrir Þorgrími Þráinssyni, ef hann hefði gefið út svona leiðbeiningar til kvenna. Það hefði allavega ekki verið fallegt.

Hilmar (IP-tala skráð) 7.1.2016 kl. 09:12

12 identicon

Já, armslengdin í Kölnistan er náttúrulega ekki minna en hrein snilld. Fyrst ekki var hægt að þagga málið niður, þá er náttúrulega best að kenna konum hvernig á að haga sér í návígi við múslima.

Ekki veit ég hvernig farið hefði fyrir Þorgrími Þráinssyni, ef hann hefði gefið út svona leiðbeiningar til kvenna. Það hefði allavega ekki verið fallegt.

Hilmar (IP-tala skráð) 7.1.2016 kl. 09:22

13 identicon

Armslengd.  Er ekki hægt að virkja þessi heilræði með gömlum myndum af Hitler?    

Elín Sigurðardóttir (IP-tala skráð) 7.1.2016 kl. 09:28

14 identicon

ESB Eyjan á náttúrulega metið hérna á Íslandi. Með þrautseigju tókst ESB sinnunum þar, að sleppa því að skrifa frétt um málið, á meðan allir aðrir miðlar góða fólksins í Evrópu gáfust upp á þögguninni.

En ESB Eyjan fann vinkil á málinu, og hann var sá, að "öfgahægrimenn" í Þýskalandi nýttu tækifærið til að ráðast að Herr Merkel. Ekki datt Eyjumönnum til hugar að minnast á, að Herr Merkel hefur almennt verið fordæmd út um alla Evrópu, og þó víðar væri leitað, fyrir ábyrgðarlausa og heimskulega stefnu.

Og ekki dettur ESB Eyjumönnum til hugar, að árásir múslima á konur í evrópskum borgum sé vandamálið, nei, það eru viðbrögðin. Allir eiga að þegja í þágu þýskrar fjölmenningarstefnu. Skítt með fórnarlömbin.

Hilmar (IP-tala skráð) 7.1.2016 kl. 09:37

15 identicon

http://i.imgur.com/rqjFKNE.jpg

Hilmar (IP-tala skráð) 7.1.2016 kl. 09:41

16 identicon

https://twitter.com/search?q=%23einearmlaenge

Hilmar (IP-tala skráð) 7.1.2016 kl. 09:43

17 identicon

Elín! Það þarf ekki Hitler til því Merkel hefur bruggað
eigin þjóð dauðaráð, varpað henni fyrir úlfahjörð og
varga í véum hrægömmum að leik.

Menn hljóta að knýja Merkel til afsagnar a.m.k. er þetta
hennar síðasta kjörtímabil.

Athyglisvert að lesa innhússfærslu lögreglu um atburði
í Köln á gamlaárskvöld. (aðfararnótt nýársdags)
Enginn vafi er þar hverjir voru á ferð og hvílík hætta
steðjaði að borgurum í þessum skipulögðu árásum.

Húsari. (IP-tala skráð) 7.1.2016 kl. 09:48

18 Smámynd: Ómar Ragnarsson

"Ekki má virkja neitt". Jæja?  Þegar hafa verið reistar 30 stórar virkjanir á landinu, sem framleiða fimm sinnum meira rafmagn en við þurfum fyrir okkar eigin fyrirtæki og heimili.

Nýjasta stórvirkjunin, Búðarhálsvirkjun, kom í gagnið fyrir tveinur árum.

Ómar Ragnarsson, 7.1.2016 kl. 09:57

19 identicon

Gunnar Bragi og félagar vilja ólmir fá bita af kökunni.  Hann er aðeins búinn að breyta uppskriftinni.  Setur inn gráðuga útgerðarmenn í staðinn fyrir gráðuga gyðinga.

Elín Sigurðardóttir (IP-tala skráð) 7.1.2016 kl. 09:59

20 identicon

Aumingja Ómar Ragnarsson. Ignorant rugludallar eins og Jón Valur, Hilmar, Húsari og Elín hafa yfirtekið síðuna og hver vitleysa af annari vellur fram frá þessum rednecks.

Haukur Kristinsson (IP-tala skráð) 7.1.2016 kl. 10:23

21 identicon

ESB sinnum er tíðrætt um rednecks enda fyrirlíta þeir vinnandi fólk.  Réttindalausir þrælar eru þeim meira að skapi.

Elín Sigurðardóttir (IP-tala skráð) 7.1.2016 kl. 10:29

22 identicon

Ekki það að vinstriöfgamenn hafi eitthvað að segja, en það stoppar þá ekki. Haukur Kristinsson veður af stað með ekkert innihald, en þeim mun meira af beiskri reiði yfir því, að hans hjartans mál eru afhjúpuð, enn einn ganginn, sem ógnun við almenning í Evrópu.

Hilmar (IP-tala skráð) 7.1.2016 kl. 10:35

23 Smámynd: Ómar Bjarki Kristjánsson

Öfga-hægrimenn hafa enn einu sinni gert sig að fífli.

Sorlegt að sjá til öfga-hægri wannabe hér uppi í fásinni.

Þetta hægra-öfga gengi er orðið þreytt og allir ættu að útiloka þetta lið frá sér.  Þetta sjalla- og framsóknarlið getur barasta verið á Pediga síðunni sinni og þruglað þar og látið vitiborðið og sómakært fólk í friði.

Ómar Bjarki Kristjánsson, 7.1.2016 kl. 10:45

24 identicon

Er það ekki þín ráðlegging, Ómar Bjarki, að fólk haldi "hægri öfgamönnum" einni armslengd frá sér?

Við vitum náttúrulega hvað þú ert Ómar Bjarki, og hvernig þú ert innréttaður, en það er samt sjokkerandi að þú hafir meiri áhyggjur af nauðgurum en fórnarlömbum þeirra.

Hilmar (IP-tala skráð) 7.1.2016 kl. 10:52

25 identicon

Konurnar í Köln eru öfgahægrimenn sem hafa gert sig að fífli.  Frábær fréttaskýring Ómars Bjarka Kristjánssonar.  Þessa snilld þarf að þýða yfir á erlend tungumál og færa heimsbyggðinni.

Elín Sigurðardóttir (IP-tala skráð) 7.1.2016 kl. 11:06

26 identicon

Já, þýsk blöð eru farin að kryfja málin, en þýsk yfirvöld þegja áfram.
"Ég er Sýrlendingur, þið verðið að sýna mér gæsku, frú Merkel bauð mér hingað"
Þetta hafði einn gerandinn að segja við þýska lögreglu, skv lekinni skýrslu sem Bild greinir frá.
Annar reif pappírana sína glottandi fyrir framan lögregluna, með þeim orðum að, "Þið getið ekkert gert mér, ég get fengið nýja pappíra á morgun"

http://www.bild.de/news/inland/silvester/das-geheime-polizei-protokoll-44048000.bild.html
Mig grunar að öfgasinnaðir vinstrimenn vilji allt annað en að málið verði krufið. Þeir vilja væntanlega þegja málið í hel, að öðrum kosti að kenna hægrimönnum um. Þeir munu þó ekki útskýra hvernig hægrimenn bera ábyrgð á því, að "flóttamaður" frá múslimaríki nauðgi þýskri konu á almannafæri, með stuðningi eitt þúsund trúbræðra sinna.

Hilmar (IP-tala skráð) 7.1.2016 kl. 12:49

27 Smámynd: Ómar Bjarki Kristjánsson

 Þó eg hafi bent á þá staðreynd, að öfga-hægrimenn hafa gert sig að fífli, - þá var ég ekkert að biðja þá sérstaklega um að gera sig að fífli hér og nú.

En svona er þetta, misjöfn eru morgunverkin.  Vitiborðið fólk spinnur álna langan jafnaðarvef en öfga-hægrimenn gera sig að fífli.

Við þessu er sjálfsagt ekkert að gera.

Ómar Bjarki Kristjánsson, 7.1.2016 kl. 12:56

28 identicon

Alltaf batnar það.  Knúsið býður upp á hrútskýringu dagsins.  Svona eigum við að tala um kynferðisbrotin í Köln og Hamborg.

https://knuz.wordpress.com/2016/01/07/hvernig-eigum-vid-ad-raeda-um-kynferdisbrotin-i-koln-og-hamborg/

Elín Sigurðardóttir (IP-tala skráð) 7.1.2016 kl. 13:19

29 identicon

Til að súmmera upp viðbrögð vinstrimanna, þá eru nauðganirnar sök karlmanna og rasista. Þetta er eiginlega öllum að kenna, nema þeim sem nauðguðu.

Ég er náttúrulega alltaf að velta framtíðinni fyrir mér, og eitt af því sem veldur mér heilabrotum, er hvenær ég kem til með að bera ábyrgð á því að fólk verði hálshöggvið á Austurvelli fyrir villtrú, og hvenær ég verð ábyrgur fyrir því að hommum verði kastað niður af háhýsum.

Nú finnst mér eiginlega nóg um að vera ábyrgur fyrir fjöldanauðgunum í Þýskalandi, og get varla afborið þá hugsun, að ég verði líka ábyrgur fyrir slíkum hlutum hér á Íslandi.

Það eina sem virðist geta komið mér til bjargar, er að íslam verði hreinlega bannað hér á landi, og að múslimum verði meinaður aðgangur að landinu. Ég bara treysti mér ekki til að bera ábyrgð á trú friðarins, á Íslandi.

Hilmar (IP-tala skráð) 7.1.2016 kl. 14:32

30 identicon

Þeir halda líka að Nató sé pennavinaklúbbur og að flóttamennirnir vilji bara þakka persónulega fyrir allar óvæntu sendingarnar.

Elín Sigurðardóttir (IP-tala skráð) 7.1.2016 kl. 15:01

31 identicon

Það verður sífellt ólíklegra að vinstrimenn vilji frekari rannsóknir á þessum málum.

Nú er komið á daginn, að múslimskir karlmenn, rangtnefndir flóttamenn, hafi ráðist á konur í a.m.k. 5 borgum í Þýskalandi, og að austuríska lögreglan hafi líka hylmt yfir múslimskum glæpamönnum eftir sambærilegar árásir, og að þær fréttir hafi einungis komist í fjölmiðla eftir að nokkrar konur greindu frá árásunum. Austuríska lögreglan neitar að greina frekar frá þeim.
Þá virðast þýskir stjórnmálamenn og lögregluyfirvöld logið til um uppruna glæpamannanna, sagt að uppruninn væri á reiki. Fimmtán voru handsamaðir, þar af voru fjórtán nýkomnir frá Sýrlandi, og einn frá Afganistan. Ekki er búist við að lögreglan greini frekar frá uppruna þeirra, þar sem það kemur sér illa við yfirvöld, sem vilja umfram allt þagga málið niður.

"Lögreglumaðurinn greindi líka frá því, að buxnalausar og úthræktar konur hafi kjökrað við hlið hans"
http://www.express.de/koeln/polizei-fuehrer-berichtet-meine-nacht-mit-dem-brutalen-mob-23315166

Hver á að vernda borgarana í Evrópu, ef lögreglan gerir það ekki, og reynir að þagga niður fréttir af árásum múslima?
Er verið að boða, að borgarar verði að segja upp sínar eigin varnarsveitir gegn þessum viðbjóðslýð?

Hilmar (IP-tala skráð) 7.1.2016 kl. 16:08

32 Smámynd: Jón Valur Jensson

Tek undir góðar ábendingar í innleggjum þínum, Hilmar.

Hinn ESB-meðvirki Ómar Bjarki skrifar bara eins og honum er tamt.

Jón Valur Jensson, 7.1.2016 kl. 17:23

33 identicon

Það er líklegt að Ómari Ragnarssyni sé ekkert gefið um allar þessar krufningar, og greinilegt að vinstrimenn vilja ekki tjá sig efnislega um þetta mál.

Hitt er alvarlegra, að þýska ríkisstjórnin hefur staðið fyrir mjög umfangmiklum tilraunum til að þagga þetta mál niður, og er að sjálfsögðu á engan hátt treystandi til að standa fyrir rannsóknum á því, sérstaklega eftir að ljóst er að lögregluyfirvöld hafa fengið fyrirmæli um að greina alls ekki frá uppruna geranda.

Ofangreint er náttúrulega skelfilega ógnvekjandi, en þessir þöggunartilburðir verða að lesast saman við aðgerðir þýskra yfirvalda til að þagga niður í, og saksækja þá sem gerast sekir um "hatursáróður" gegn innflytjendum, eins og greint er frá í grein Washington Post:

https://www.washingtonpost.com/world/europe/germany-springs-to-action-over-hate-speech-against-migrants/2016/01/06/6031218e-b315-11e5-8abc-d09392edc612_story.html?hpid=hp_hp-top-table-main_hatespeech-1101pm%3Ahomepage%2Fstory

Þjóðverjar þurfa ekki að hræðast valdatöku nasista, þeir eru nú þegar við völd.

Nú er bara spurningin, hvaða Churchill er í boði, til að berjast gegn der Fuhrer, Frau Merkel.

Hilmar (IP-tala skráð) 7.1.2016 kl. 19:50

34 identicon

Það voru merkileg sjónarmið sem komu fram í fréttum ríkissjóvarpsins (Ekki RÚV) í kvöld að það væri hægrimennska og jafnvel hægriöfgamennska að vilja verja konur gegn kynferðislegri áreitni og ofbeldi. Þetta er ekki alveg í samræmi við umræðuna á Íslandi undanfarin ár.

Þorsteinn Jónsson (IP-tala skráð) 7.1.2016 kl. 20:56

35 Smámynd: Theódór Norðkvist

Hilmar (IP-tala skráð) 7.1.2016 kl. 16:08

Finnar hafa a.m.k. manndóm til að verja kvenfólkið sitt og eru búnir að stofna svona sveitir.

http://www.mbl.is/frettir/erlent/2016/01/08/ofbeldi_i_finnlandi_a_nyarsnott/

Theódór Norðkvist, 10.1.2016 kl. 01:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband