29.6.2022 | 15:10
Aðflugsskilyrðin eru helsti ókostur Akureyrarflugvallar sem varavallar.
Frá Íslandi eru um 1300 kílómetrar til næstu landa með nothæfa millilandaflugvelli.
Vogar í Færeyjum eru út úr þeirri mynd.
Á meginlandi Evrópu eru í mesta lagi örfá hundruð kílómetra á milli gnægðar af fullkomnum og stórum völlum.
Af þessu leiðir, að varaflugvellir fyrir Keflavíkurflugvöll hér á landi hafa afgerandi þýðingu.
Reykjavíkurflugvöllur er bráðnauðsynlegur ef vél missir út hreyfil í flugtaki á <Keflavíkurflugvelli í lélegum skilyrðum þar, sem eru oft í þykkri súld og þoku stundum nothæf fyrir flugtak, en ófær fyrir lendingu.
Vegna skjóls frá Reykjanesfjallgarðinum eru veðurskilyrði á Reykjavíkurflugvelli oft betri og stutt að fara til varaflugvallarlendingar, en slíkt sparar líka nauðsynlegt eldsneyti miðað við að fara til Akureyrar eða Egilsstaða.
Styttra er að fara til Akureyrar, en á móti kemur, að erfitt getur verið að komast þar inn á afli eins hreyfils, vegna hárra fjalla og þrengsla og hindrana af þeirra völdum.
Á hinn bóginn eru flestir innviðir í þessu öðru stærsta borgarsamfélagi landsins öflugir, þótt dregist hafi úr hömlu að bæta og auka aðstöðuna á flugvellinum sjálfum.
Egilsstaðavöllur er hins vegar 50 prósent lengra í burtu, svo að valið milli þriggja varaflugvalla hér á landi, Reykjavíkur, Akureyrar og Egilsstaða, má ekki vera minna.
Og engan þeirra má vanmeta hjá þjóð, sem á allar sínar samgöngur við uumheiminn í aðeins tveimur gerðum þeirra, flugi og siglingum, en er án hinnar þriðju gerðar, landsamgöngunum.
Enn hallar mikið á Egilsstaðaflugvöll að flestu leyti, brautarlengd, stærð flughlaðs og fleira, sem alltof lengi hefur verið vanrækt.
![]() |
Sneru við vegna slæms skyggnis |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 20:10 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
28.6.2022 | 22:54
Hvernig er þyrlusnauða þjóðin búin undir risaóhapp á risaskipi?
Þegar Kaninn var enn og hét hér á Keflavíkurflugvelli hafði hann að lágmarki til afnota fimm björgunarþyrlur á Vellinum.
Að meðaltali þarfnast hver þyrla margfalt meiri tíma í viðhald og dvöl á jörðu niðri en flugvélar af svipaðri stærð, og þetta eiga allir að vita og vita allir í þyrlurekstri; ja; nema Íslendingar.
Raðamenn hér, í krafti sinnuleysis kjósenda, komast upp með það að geta engan veginn melt þá staðreynd að reksturskostnaður hverrar þyrlu er margfalt meiri en reksturskostnaður hverrar flugvélar af svipaðri stærð.
Þessi margnefnda staðreyn fer inn um annað eyrað og út um hitt áratugum saman.
Hafsvæðið umhverfis Íslands, efnahagslögsagan, eða auðlindalögsagan, sem kalla mætti björgunarsvæði okkar, er tugum sinnum stærra en flestra annarra þjóða.
Fyrir liggur æ verri staða í björgunarþyrlurekstri okkar miðað við sífellda fjölgun stórskipa á okkar hafsvæði, risastórum skemmtiferðaskipum með tugi þúsunda samtals innanborðs.
Við ættum að eiga nóga peninga til að standa eins og menn að þessu; peninga sem við græðum á ferðum þessara skipa í kringum landið.
Hvenær ætla menn að skilja, að við fáum engu um það ráðið hvenær stórslys verður á hafinu á sama tíma og ástandið er eins og það varð fyrir nokkrum dögu, að engin þyrla verður tiltæk?
Á virkilega að bíða eftir því?
![]() |
Skemmtiferðaskip sigldi á ísjaka |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
27.6.2022 | 23:03
Fyrir hverja er Bílastæðasjóður og hverjir eiga hann?
Svarið við þessari spurningu sýnist vera það, að íbúar Reykjavíkur eigi Bílastæðasjóð og að sjóðurinn starfi fyrir þessa eigendur.
En tvenns konara atvik í samskiptum við sjóðinn er hægt að nefna sem vitni um, að það sjónarmið sé algengt að Bílastæðasjóður eigi að þjóna duttlungum og valdafíkn starfsmanna og veita þeim ánægju af þeirri gerð.
Hér skal annað málið nefnt.
Þegar fyrsti rafbíllinn kom í stóra blokk fyrir fimm árum leist fólki misvel á hann, enda erfitt í fyrstu að finna heppilegan stað fyrir slíkt farartæki.
En fyrir einskæra heppni fannst lítill grjótstallur við litlar kjallaratröppur niður í geymslurými, sem var eins og hann hefði verið hannaður fyrirfram fyrir þennan litla bíl, er meira að segja vel stærri en bílkrílið, en á myndinni af bílnum, sést, hvernig bílastæðiin við blokkina eru sérmerkt með bláu merki sem einkastæði íbúanna.
Pallurinn var og er inni á lóð blokkarinnar, og hægt var að leggja hleðslusnúruna beint úr nefi bílsins niður lóðréttan vegg, og innan við dyr í 220 volta innstungu.
Þessi, að því er virtist endanlega lausn, fékk góðan hljómgrunn, einkum vegna þess, að með því að rafbíllinn stæði þarna tók hann ekkert bílastæði við blokkina frá öðrum bílum, og kostnaðinn við þessa einföldu tengingu borgaði eigandi bílsins.sjálfur.
En Adam var ekki lengi í paradís. Dag einn um hádegisbil var kominn miði á glugga bílsins, þar sem krafist var ellefu þúsund króna sektar!
Á yfirborðinu var gefið upp ferli til að vísa svona málum til sérstakrar skoðunar, en í samræðum við fólkið á þeim bæ kom fram ótrúlegur hugsunarháttur.
Þær upplýsingar fengust, að svo vel stæði nefnilega á að í samræmi við ný umferðarlög hefði gefist tækifæri til að semja nýja reglugerð, sem tryggði, að ef sektin yrði ekki greidd, hefði Bílastæðasjóður heimild til að gera bílinn upptækan með lögregluvaldi hvenær sem væri sólarhringsins!
Og ekki bara það, svo vel vildi nú til að sjóðurinn hefði heimild til að láta fjarlægja og gera upptæka alla bíla í Reykjavík, sem stæðu á einkalóðum fyrir framan bílskúra!
Gaman! Gaman! Að geta fengið að gera reglugerð að ítrasta geðþótta og krækja í heimild til eignaupptöku í raun!
Þótt eigendur blokkarinnar stæðu með rafbílseigandanum í þessu máli, skipti eignarhald húsfélagsins á grjótstallinum litla, sem enginn maður hafði stigið fæti sínum á, engu máli; niðurstaðan varð því öruggur sigur Bílastæðasjóðs og lausnin fólst í því að rafbíllinn smái stæði jafnan á einhverjum af merktu stæðunum við blokkina og tæki þar með að óþörfu stæði frá einhverjum öðrum bíleiganda og meira að segja stæði, sem væri tvöfalt stærra en sá litli þurfti.
Nú má sjá í viðtengdri frétt á mbl.is að Borgarlögmaður telji sig knúinn til þess að taka fyrir eins konar herferð Bílastæðasjóðs á hendur fötluðum.
Það þykir eðlilega frétt en kemur ekki öllum á óvart.
![]() |
Bílastæðasjóður brýtur á fötluðum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt 28.6.2022 kl. 15:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
27.6.2022 | 14:12
Tímamótin 1989 þegar tölvukubburinn blotnaði í Þórsmerkurferð.
Þegar talað er um "tíu ára gat í þekkingu og þjálfun" er það matsatriði hvort gatið sé ekki miklu eldra, jafnvel þrjátíu ár.
Þær eru margar, bilanirnar, sem eru minnisstæðar áttræðra, en ein þeirra er kannski einna minnisstæðust; sú fyrsta, sem varð eingöngu svo illskeytt, vegna þess að slíkar bilanir voru nýlunda á þessum árum.
á leið inn í Þórsmörk á nýlegum Jeep Cherokkee jeppa, steindrapst á bílnum eftir akstur yfir á í sumarvexti.
Fréttaferðin varð þar með ónýt, því að nú tók við margra klukkustunda bið eftir einhverjum, sem gæti komist að því, hvað væri að.
Þrautreyndir bifvélavirkjar stóðu og klóruðu sér í skallanum þangað til einn þeirra kvað upp úr með það að með útilokunaraðferð bærust bönd að sérstökum tölvukubbi, sem stjórnaði vinnslu vélarinnar.
Afgangurinnn af ónýtum vinnudegi fór í að mæla sér mót við bifvélavirkja frá Reykjavík, sem kynni til verka á þessu nýja sviði og kom austur.
Þegar hann var kominn með puttana í málið tók viðgerðin hálftíma.
Líklega er rétt að bilið á milli þeirra, sem kunna skil á nýjustu breytingunum á bílum og hinna, sem enn eru ekki komnir á hið nýja stig, hafi breikkað.
Það má líka orða það í hina áttina; að um sé að ræða bilið á milli þeirra sem enn kunna til verka, til dæmis í sambandi við bíla með gömlu blöndungunum frá þeim tíma, sem enn var sjaldgæft að sjá bílvélar með beinni innspýtingu.
![]() |
Tíu ára gat í þekkingu og þjálfun |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 14:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
26.6.2022 | 18:38
Þenslan komin aftur tvíefld.
Þenslan hér á landi, sem náði hámarki árið 2018, hvarf gersamlega í covid, en hefur nú lifnað svo hressilega við, að til vandaræða hefur komið.
Umferðin um Keflavíkurflugvöll er komin í methæðir, og af afspurn af ferðalögum til útlanda og heim er alls staðar sama viðkvæðið; margra klukkustunda tafir á flugvöllum bæði hér og erlendis og fréttir af örtröð á ferðamannastöðum berast úr öllum áttum, bæði frá útlöndum og héðan að heiman.
Öll gistirými á Vestfjörðum seld, metsala á hjólhýsum o. s. frv.
P.S. Nú síðast bættist við fréttin um heilan flokk stúlkna, sem átti flugfar til Madridar til þess að komast þaðan í lest til San Sebastian til keppni á stórmóti eftir áralangar æfingar, en fluginu var seinkað fyrst í tvígang og því síðan aflýst og þar með gríðarleg og langvinn vinna stórs hóps fólks gert ónýtt.
San Sebastian er í norðausturhorni Spánar í Baskalöndunum og vaknar spurningar um tvennt; í fyrsta lagi að fara jafn seint af stað í jafn þýðingarmikið og langt ferðalag og að haga sér eins og flugfélagið gerir.
![]() |
Íbúar björguðu tónleikum Emilíönu Torrini |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt 27.6.2022 kl. 00:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
26.6.2022 | 13:59
Musk hefur séð hann svartan fyrr. Hvimleitt séríslenskt mat á rafbílum.
Elon Nusk hefur búið við nær samfelldan fréttaflutning af yfirvofandi gjaldþroti vegna fjármálalegra hremminga allt frá því er hann hóf framleiðslu á bíl, sem var 100 prósent hannaður fyrir að ganga fyrir rafmagni og engu öðru.
Hundrað árum fyrr voru margir vantrúaðir á kenningu Henry Ford um að með því að einfalda bíla sína og framleiðsluaðferðina við þá auk þess að lækka söluverð þeirra margfaldlega væri hægt að gera Ford T að almenningseign.
Enn er haldið fast við það hér á Fróni að telja hybrid-bíla til rafbíla og fullyrða, að þeir gangi fyrir rafmagni, jafnvel þótt hvergi sé hægt að setja rafmagn á þá.
Síðuhafi veit um dæmi þess að keyptir hafi verið slíkir bílar í góðri trú á þá fullyrðingu, að þeir þyrftu ekki utanaðkomandi rafmagn, heldur framleiddu það sjálfir og notuðu síðan sama rafmagnið aftur og aftur! Og afleiðingin orðið sú, að bílarnir urðu stopp vegna bensinleysis, því að sama raforkan er ekki notuð aftur og aftur, heldur aðeins 8 prósent hið mesta.!
Fengin er út sú tala í skýrslum um bílainnflutning, að 20 prósent innfluttra bíla séu rafbílar með því að kalla þá nýorkubíla.
Hæpið er líka að setja tengiltvinnbíla á sama stall og 100 prósent rafbíla, því að séu eigendur tengiltvinnbíla latir við að nota hleðslustððvar eða þeir aka mikið utan þéttbýlis, getur megnið af orkunotkuninni falist í því að aka á orku frá jarðefnaeldsneyti.
![]() |
Verksmiðjur Tesla tapa milljörðum dala |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
25.6.2022 | 23:39
Las Vegas var breytt úr rándýrri lúxusborg í ódýra fjölskylduvæna borg.
Þegar ferðast var um Bandaríkin 1968 var sólarhrings dvöl með einni svefnnótt fjórum sinnum dýrari en í nokkurri annari af þeim fimm borgum, sem komið var til í hálfs mánaðar ferð.
Þá þegar var bara það dýrasta á boðstólum hvað snerti skemmtikrafta, svo að það var farið bæði á tónleika hjá Fats Domino og sýningu hjá Milton Berle.
Borgin var fræg fyrir spilavíti og hjónavígslur vegna lipurra laga um það efni.
Þrjátíu árum síðar hafði orðið gagnger byltin hvað snerti verðlagið. Yfirvöld borgarinnar höfðu ákveðið að breyta algerlega um stefnu, og það skilaði sér meðal annars í miklu ódýrari gistingu og raunar hræóyrri skammt utan við borgina.
Borgin er engri lík þarna úti í eyðimörkinni og í henni eru eftirlíkingar af frægustu byggingum heims eins og Pýramidunum, Eiffelturninn, Bridge of London, - nefndu það.
Þarna eru háðir helstu bardagar í hnefaleikum; þarna komu Elvis og allir til að brillera, já það eru engin takmörk fyrir viðburðum á heimsmælikvarða.
![]() |
Vegas: Leikvöllur fyrir lífskúnstnera |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.6.2022 | 13:58
Ísland: Næstum hvaða bíll sem er getur verið sportjeppi/rafjeppi.
SUV er skammstöfun yfir Sport Utility Vehicle, sem þýðir sport nytjabíll / fjölnotabíll. Sumir af fyrstu bílunum, svo sem Renault Espace og Dodge Caravan voru hábyggðir fjölnotabílar og þá datt engum hér á landi að klína jeppaheiti á þá.
En á síðustu árum heftur auglýsingagildi "jepp" valdið því að búið er að gereyða merkingu þess orðs og jafnvel rafbíll af venjulegri heildarhæð eða veghæð er kallaður rafjeppi, þótt hann sé aðeins með framdrifi en engu afturdrifi!
Blaðamaður mbl. eyðir miklu rými í ágæta umfjöllun um þetta rugl sem er og verður áfram rugl, þrátt fyrir vel ígrundaðar tilraunir til að koma skikki á þessa vitleysu.
![]() |
Skref inn í framtíðina |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
25.6.2022 | 08:30
Þegar "stórliði" gestanna var rúllað upp á Hrauninu.
Á þeim árum þegar Hemmi Gunn sá stundum um að velja lið til að heimsækja Litla-Hraun og leika knattspyrnuleik við heimamenn, voru yfirleitt þjóðþekktir liðsmenn í hópi aðkomumannanna en ekki endilega þjálfaðir leikmenn bestu knattspyrnuliðanna.
Engu að síður nægði reynsla og útsjónarsemi gestanna oftast til þess að úrslit leikjanna urðu gestunum í vil og þurfti ekki að hafa miklar áhyggjur af því.
En í eitt skiptið urðu mikil umskipti. Einn heimamanna sett lið þeirra í nokkurs konar harðar æfingabúðir og þjálfað þá svo gagngert, að þeir rúlluðu hreinlega gestaliðinu upp, og Hemmi, Henson og kó voru kjöldregnir.
Stjórnandi fanganna var vel skreyttur í stíl pönkara þeirra tím, með hanakamb og tilheyrandi glingur.
Þegar leikurinn stóð sem hæst ætlaði Henson ao skora mark af löngu færi, en þá vildi ekki betur til en svo að skotið geigaði svo stórlega að boltinn fór út fyrir fangelsisgirðinguna.
En þá brá svo við að þjálfarinn með hanakambinn tók snöggt viðbragð, hljóp með eldingarhraða að girðingunni, klifraði enn hraðar yfir hana og kom á sama augnabliki með boltann til baka yfir girðinguna.
Þetta gerðist svo hratt, að viðstaddir fangaverðir stóðu agndofa og horfðu á, án þess að geta neitt skipt sér af þessu, og hélt leikurinn því áfram eins og ekkert hefði í skorist.
Meðal gesta var einn útlendingur, sem sagðist aldrei hafa getað ímyndað sér annað eins, og sagði eftir á, að þetta atvik hefði verið það minnsttæðasta í Íslandsferð sinni.
![]() |
Sá ekki höggið koma |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
24.6.2022 | 12:43
Vantar víða merkingar á hjóla- og göngustígum á stórvarasömum stöðum.
Víða í hjólastígakerfinu í Reykjavík vantar merkingar á hættulegum stöðum. Sem dæmi má nefna algerlega blint horn á þröngum T-laga stígamótum við suðurhorn Skeifuhverfisins þar sem liggur alfaraleið hjólreiðamanna meðframm Miklubrautinni.
Tvær leiðir eru til að bæta úr þessu. Annars vegar að hafa þarna stöðvunarskyldu hjólreiðamannsins, sem kemur inn á stígamótin úr vestri, eða, að gera eins og þeir byrjuðu á í Færeyjum fyrir meira en 60 árum, að stilla þarna upp spegli sem hjólreiðamenn úr vestri séð hina blindu umferð koma.
Til gamans má geta þaes að fyrir 1955 leystu Þórshafnarbúar í Færeyjum svona vandamál með því að ökumenn "flautuðu fyrir horn" á þrengstu og blindustu hornunum!
![]() |
Hjólreiðamaðurinn slasaðist en hinn hvarf |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)