Alhvít jörð á Brúardalaleið til Sauðárflugvallar og Grágæsadals í gær.

Jörð var alhvít í gær á leiðinni til Grágæsadals og Sauðárflugvallar. 

Flugvöllurinn sjálfur var þó marauður og beið aðeins völtunar og annara skylduviðvika sem gilda um skráða og viðurkennda flugvelli. 

Þetta er sérkennilegt í júlí og því svolítið skrýtið þótt ekki sé það einsdæmi. 

Annað enn óvenjulegra sást á leiðinni, en það verður að bíða morguns að birta myndir af því, vegna tæknilegra örðugleika til sendinga á myndum þarna inni á öræfunum. 


mbl.is Tveggja metra skaflar við Öskju
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er það kannski ferða-sendibíll?

Eftir ferð frá Reykjavík í ferð, sem var búin að dragast allt of lengi, til þess að opna Sauðárflugvöll á Brúaröræfum, situr ýmislegt eftir af þvi, sem sást á leiðinni. 

Meðal þess voru allir hinir mörgu "ferða-sendibílar án afturglugga á hliðunum, sem sáust hvarvetna. 

Þegar gisting fyrir einn mann yfir nótt kostar orðið um 50 þúsund kall, er ekki mikill vandi að sjá, þarna eru komnir bílar "fyrir fólk, sem kann að njóta lífsins" eins og segir í viðtengdri frétt á mbl.is, en hefur aðeins efni á því líkt og á þennan veg. 


mbl.is Bíll fyrir fólk sem kann að njóta lífsins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Valið "með hjólunum" í flótta frá borginni.

Sú var tíðin að helstu bílaumboðin voru með bækistöðvar sínar vestan Rauðarárstígs. Við þá götu var Egill Vilhjálmsson, sem hafði umboð fyrir Willy´s og Studebaker. 

Langt fram undir 1950 var meira en helmingur skráðra bíla hér á landi af gerðinni Willy´s og annað tveggja Ford-umboða, Sveinn Egilsson, byggði við Hlemm. 

Þegar Volkswagen hóf innreið sína 1955, var umboðið vestar, við Hverfisgötu. 

SÍS var við skammt frá Þjóðleikhúsinu, við Sölvhólsgötu, og hafði umboð fyrir GM merkin Chevrolet, Pontiac, Oldsmobile, Buick og Cadillac. 

Síðan fór að komast á hreyfing til austurs fyrir bílaumboðin, sem stendur enn. 

Jeep og Fiat eru komin lengst, en Fiat var í nokkurn tíma við hliðina á Stjörnubíói við Laugaveg, og nú er Jeep komið upp í Mosfellsbæ. 

BL var lengi við Suðurlandsbraut, en er nú vestast í Ártúnshöfðanum. 

Hekla flutti sig styst austast á Laugaveginn en Bílabúð Benna er nú við Krókháls með sinn Chevrolet auk Porsche og SsangJong. 

Suzuki hefur haldið sig sem fastast í hátt í hálfa öld í Skeifunni, og Toyota var lengi í Kópavogi, en er nú í Kauptúni í Garðabæ. 

Þar hefur verið að rísa vaxandi hverfi fjölda bílaumboða, og má segja að flóttinn frá Reykjavík hafi náð ákveðnu hámarki þegar Hekla flytur sig nú líka eins og allir aðrir, út í annað sveitafélag. 

Sagt var um fólksflóttann frá Austur-Þýskalandi, að fólkið "kysi með fótunum." 

Ef svipað orðalag er notað um bílaumboðin má segja þau "kjósi með hjólunum" í færslu sinni út í úthverfi borgarinnar, og að það fólk, sem nú flyst austur fyrir fjall og suður með sjó  kjósi líka "með hjólunum."  


mbl.is Hekla skoðar höfuðstöðvar í Garðabæ
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Stutt er jarðlíf, áfram lifa ljóð..."

Ýmislegt má greinilega segja um gildi tónlistar, ljóða og manna, ef marka má athugasemdir við næsta pistil á undan þessum á síðunni. 

Í tilefni af því valdi síðuhafi tíu ferskeytlur eftir nokkur þekkt íslenskt skáld, þar sem vísunum yrði raðað þannig að úr yrðu þrír til fjórir dramatískir ferlar, tengdir saman af þessu stefi í viðeigandi heimasmíðuðu lagi:

"Stutt er jarðlíf, áfram lifa ljóð,

ljóma´í minningunni skær,

auðga menningu hjá okkar þjóð,

aldrei fölva á þau slær. 

 

Fyrsta þemað er íslenskt umhverfi, annað er mannauður og gleðskapur, 

Þriðja er samskipti ölkærs manns og ástkonu hans, fyrst túlkuð með augnavísunni frægu Vatnsenda-Rósu og síðar dapurlegra sambandsslita, en að lokum eru það örlög listaskáldsins góða, og ljóðlína númer 3 breytis í:

"Lýsa örlögum hjá okkar þjóð". 

Laginu Ferskeytlum sungnum af Ljóðavinum er hægt að fletta upp spiluðu á facebook síðunni "omar ragnarsson", ath. o ekki með kommu, og þá er kannski komið tilefni til að pæla í því hvernig munnmælavísan um augun, sem birst hefur ýmsum myndum, er eins og langömmubarn Rósu lærði það af ömmukné, svona:

Augun mín eru´ eins og þín, 

með ofurlitla steina. 

Ég á þín og þú átt mín, 

þú veist, hvað ég meina.  


"Heyr himna smiður": Máttur tónlistar og ljóða.

Kolbeinn Tumason var einn af höfðingjum Sturlungaaldar á Íslandi, sem þrátt fyrir kristna trú stóð í stríði með tilheyrandi manndrápum, ekki aðeins við aðra veraldlega höfðingja, ef svo bar undir, heldur líka hinn geistlega biskup. 

Þegar hann undirbjó sig fyrir Víðinesbardaga, stóð hann fyrir hinu venjulega eðli stríðs, að drepa eða vera drepinn.  

Hann mótar í huga sér ðrvæntingarfulla bæn til skapara síns, þar mikið ber á kristnum hugtökum eins og "mildingur" og mjúk miskunn" þegar hann biður um náð og hjálp.  

Hann fer til bardagans og fellur sjálfur, en eftir standa sálmur, sem mun vera elsti varðveitti sálmurinn á Norðurlöndum og sú staðreynd, að höfundur hans stundaði manndráp og mannfórnir á mesta ribbandatíma íslandssögunnar. 

Líða nú átta aldir, og þá tekur snilldar tónskáld sig til og gerir svo stórkostlegt lag við ljóð ribbaldans, að hann öðlast alveg nýja ímynd, sem berst víða um lönd. 

Sú verðskuldaða frægð fagurs boðskaps trúar, auðmýktar og mildi, er næsta fágæt en sýnir þann mikla mátt, sem tónlist og ljóð með dýrmætu innihaldi getur búið yfir í mannheimum. 

 


mbl.is Heyr, himna smiður í Hollywood
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Viðskiptalögmálið: Því betra aðgengi, þeim mun meiri neysla.

Ofangreind niðurstaða hefur verið margsönnuð í ótal könnunum erlendis og hún hefur því ratað inn í stefnumörkum Alþjóða heilbrigðisstofnunarinnar.

Ástæðan er einföld í lýsingu þess fólks, sem kynnst hefur áfengisbölinu, sem er einn af helstu heilsufarlegu vágestum heimsins og speglast í ummælunum, sem viðtengt viðtal á mbl.is býr yfir.   

Áfengið er nefnilega engin venjuleg neysluvara og því meiri möguleikar sem eru opnaðir fyrir neyslu þess, þeim mun meiri verður neyslan. 

Hún verður kannski ekki umtalsvert meiri hjá hluta neytenda, en "skaðleg neysla á áfengi eykst hjá hluta fólks, þegar möguleikinn á að fá áfengi sent heim hvernæar sem er sólarhringsins er fyrir hendi" eins og fólk, sem þekkir best vandamálið, segir. 

Þetta lögmál sést vel í ýmsu öðru, svo sem heimsendingarþjónustu pizzu. Sú þjónusta væri ekki stunduð nema vegna þess að hún stuðlar að aukinni neyslu. 

En pizza og áfengi eru ólíkar neysluvörur, og ekki er vitað af því að neysla á pizzu sé alvarlegt heilsufarsvandamál. 


mbl.is „Áfengi er engin venjuleg neysluvara“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Afar dýrmætt framfaramál.

Stórbatnandi mælingar, rannsóknir, umfang og uppgötvanir er erfitt að meta til fulls ennþá, en miðað við það að nývaknað eldvirknistímabil gæti verið veruleiki næstu alda á því svæði sem yfirgnæfandi meirihluti þjóðarinnar býr á, er bætt spágeta er ekkert minna en eitt af stærstu málefnum í byggðaþróun og efnahagslífi landsins. 


mbl.is Kvika frá þremur mismunandi stöðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Aðskilnaðarsinnar" og landareignir ófriðarefni öld eftir öld.

Úkraínustríðið hefði ekki átt að koma eins mikið á óvart og raun var, því að í eðli sínu er þar um að ræða eitt rótgrónasta meginstef óteljandi styrjalda, sem háðar hafa verið í sögu mannkynsins. 

Og afar oft snerist það um þjóðernishugmyndir einstakra þjóðflokka, sem miðuðu tilveru sína við landsvæði og menningararf eins og sögu og tungu. 

Strax í lok 19. aldar voru menn komnir í vandræði við Gyðinga og þeirra Zíonisma, sem höfðu þá miklu styrjaldabók Biblíuna sem helsta leiðarljós, en þar var órofið meginstef útlegð Gyðingaþjóðarinnar frá "Fyrirheitna landinu," sem þá bar heitið Palestína.  

Í umræðum ráðamanna þáverandi stórvelda var í fullri alvöru farið að ræða um það að úthluta Gyðingum Úganda til eignar og afnota.  

Af því varð þó ekki og í framhaldinu beindist hugur Zíonista fyrst og fremst að Palestínu og hefur öll tilvist Gyðingaþjóðarinnar beinst að því að ná undir sig Fyrirheitna landinu öllu.

Áður hefur nafnalisti með heitum svonefndra "aðskilnaðarsina" verið rakinn hér á síðunni, og var nafnalistinn sjaldan eins stór og í Versalasamningunum 1919. 

Úr Austurríki-Ungverjalandi kvörnuðust ný ríki, þar sem raðað var í sumum tilfellum upp á nýtt í ríki, sem voru samsett af ríkjum "aðskilnaðarsinna", svo sem Tékkóslóvakía. 

Landvinningar Adolfs Hitlers lutu að því að eyða því ríki, og 15. mars 1939 lýsti hann því yfir að "Tékkóslóvakía væri ekki lengur til."

Þýskumælandi 14 milljónir í Súdetahéruðunum sameinuðust þá Þýskalandi og Pólland nældi sér líka í sneið fyrir sig.

Athyglisvert er, að í ræðu Pútins við innrásina í Úkraínu notaði hann svipaða lýsingu og Hitler við að sýna fram á að Úkraína væri í raun ekki og hefði aldrei verið raunverulegt ríki með tilsvarandi þjóð. 

Á Krímskaga og í Donbass hluta landsins væru rússneskumælandi minnihlutar "aðskilnaðarsinna" sem ættu fullan rétt á að verða sjálfstæð ríki eða jafnvel hluti af Rússlandi. 

Nýjasta málið af þessum toga er tilvist Kúrda í fimm ríkjum í Miðausturlöndum, sem blandast inn í stækkun NATO.  

Að þessu leyti eru þeir aðskilnaðarsinnar í fimm löndum, eilíft nútíma þrætepli, sem virkar truflandi á skipun landamerkja og alþjóðastjórnmál.

Sjálfstæði Íslands 1918 snerist um okkur sem þjóð "aðskilnaðarsinna" frá Danmörku. 

1918 var fest í Sambandssáttmálann, að eftir 25 ár gætu Íslendingar fengið "aðskilnað" frá konungssambandinu Danmörk-Ísland. 

Sjálfstæðisbarátta okkar kostaði ekkert mannslíf og er það alveg einstakt.  


mbl.is Vill stóran hluta Úkraínu og löngu stríði spáð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Meðal annars að baki þrjú flugtök í Reykjavík með 177 um borð.

Þegar Kárahnjúkavirkjun var í smíðum bauð Landsbankinn, aðal viðskiptabanki Landsvirkjunar, helstu viðskiptavinum sínum þrívegis í dagsferð á virkjanasvæðið og var flogið austur á smekkfullri Boeing 757 þotu frá Reykjavík, en notuð Fokker-vél með gesti frá Akureyri.  

Boeing 757 hefur þann kost fram yfir 737 að flatarmál vængjanna er þriðjungi meira og er hún því ótrúlega öflug í flugtökum og lendingum, einkum þegar hægt að komast af með miklu minna eldsneyti en nota þarf á löngum millilandaflugleiðum.  

Þar að auki eru nútíma þotuhreyflar svo miklu hljóðlátari en eldri hreyflar, að af ber. 

757 lék sér svo að þessu verkefni, að enga athygli vakti á sinni tíð. 

Raunar hafði önnur farþegaþota, sem tók 88 í sæti, verið notað allt að því daglega á vellinum,  

Það var BAE 146 fjögurra hreyfla þotan, sem notuð var hér árum saman í Færeyjaflugi og nánast enginn varð var við þegar hún hóf sig til flugs eðe lenti á Reykjavíkurflugvelli. 


mbl.is Fljúga Boeing 757 til Akureyrar og Egilsstaða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Engin flugvélahjólför?

Það var sennilega fjölbreyttari umferð um Surtsey fyrstu árin en flestir halda. 

Astæðan er sú, að fyrstu árin var reynt að hafa eyjuna eins ósnortna og hægt var svo að hægt væri að rannsaka sem best landnám plantna og dýra á henni.  

Eftir gosið var mögulegt að lenda þar gúmbátum í fjörunni á sandtanga, sem var á henni að norðanverðu, og fór síðuhafi eina slíka ferð út í eyjuna ásamt Árna Johnsen og Guðlaugi Friðþórssyni. 

En auk þess var þessi fyrstu ár notuð lítil tveggja sæta skammbrautarflugvél TF-REB, af gerðinni Piper PA 18 Super Cub til að ferja menn og búnað í vísindaleiðöngrum milli lands og eyjar, og flaug síðuhafi slíka ferð þangað. 

Með árunum minnkaði tanginn vegna brims, en hugsanlega hefur síðasta ferð flugvélar út í Surtsey verið flogin 1986 á fjögurra sæta flugvél af gerðinni Cessna 182 Skylane, TF-FRÚ. 

Það var einungis mögulegt í hvössum norðaustan vindi að lenda þar, en rétt meðan staldrað var örstutt við og vélinni komið í flugtaksstöðu, lægði vindinn um helming. 

Spennandi bið og von að að hitta á hviðu og það, að vindurinn var aðeins meiri nokkrum metrum ofar heldur en alveg niðri við jörð. 

Um leið og flugtak yrði hafið, yrði ekki aftur snúið, þetta voru á að giska 60 metrar. 

Smá auka gustur lyfti henni á bláenda flugtaksbrunsins stutta, og augnabliki síðar svo mikill vindur að vélin stóð næstum upp á endann í klifri sínu.  

Enda aðeins einn maður um borð, auk lágmarks eldsneyti.  

Spurningunni um flugvélahjólför var fljótsvarað á árunum 1970 til 1986. 

Hin gríðarlega veðrun sem hin afskekkta eyja var þekkt fyrir, afmáði jafnóðum öll spor, sem voru á sandtanganum, sem hvarf síðan sjálfur að mestu. 


mbl.is Gengu fram á áratuga gamalt fótspor
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband