Færsluflokkur: Bloggar
15.10.2017 | 12:47
Þjóðgarður með störfum og tekjum er í boði ef ekki verður virkjað.
Á málþingi í Árnesi í sumar hélt stjórnandi mats á umhverfisáhrifum Hvalárvirkjunar því blákalt fram að það væri hægt að gera þjóðgarð á stærsta ósnortna víðerni Vestfjarða þótt Hvalárvirkjun yrði reist. Mörg dæmi væru um það erlendis að slíkt væri gert.
Svo virtist sem enginn myndi andmæla þessu og að fundarmenn tækju þetta sem staðreynd.
Sem betur fór var hægt að standa upp og skora á stjórnanda matsins að nefna dæmi um þetta og segja honum frá því að í ferðum um 30 þjóðgarða og 18 virkjanasvæði í Kanada, Bandaríkjunum, Noregi, Svíþjóð, Finnlandi og Portúgal hefði komið berlega í ljós að aðeins væri að finna tvo staði þar sem miðlunarlón lægju við mörk þjóðgarða og hefðu þau bæði verið gerð fyrir 80-120 árum þegar viðhorf voru allt önnur en nú.
Þetta eru Hetch-Hetchy norður af Yosemite-þjóðgarðinum og Grand Lake við jaðar Rocky Mountain þjóðgarðsins í Colorado.
Hvorugt lónið var inni í þjóðgarði en vatn í við Grand Lake væri lónið hluti af vatnsmiðlun, sem væri framkvæmd þannig að þetta náttúrugerða vatn væri þannig tengt við hið raunverulega miðlunarlón utan þjóðgarðsins, að yfirborð náttúrugerða vatnsins væri haldið stöðugu.
Stjórnandinn góði svaraði mér ekki.
Hvalárvirkjun mun ekki skapa eitt einasta starf eftir byggingu hennar.
Stór Drangajökulsþjóðgarður gæti hins vegar skapað allmörg störf og líklegast er að þau skiptust svipað og störfin við Vatnajökulsþjóðgarð og yrðu flest unnin af konum á barneignaaldri, en slíkt skiptir sköpum um varðandi viðhald byggðar.
Þessi þjóðgarður, stækkun á friðlandi Hornstranda, inni í því hjarta Vestfjarða, sem sýnt er í grófum dráttum á myndinni, er í boði, en aðeins ef svæðið er ósnortið en ekki virkjað.
Þótt lagður verði virkjanavegur upp á Ófeigsfjarðarheiði mun enginn þeirra meira en 80% ferðamanna, sem koma til landsins til að upplifa ósnortna náttúru, fara þangað upp.
Meðal annars vegna þessa fór ég á hjólinu Létti Vestfjarðahringinn síðastliðið sumar í beinu framhaldi af hringnum um þjóðveg eitt í kynningu á diskasettinu "Hjarta landsins" þar sem ein mynd af fjórum á settinu er frá Vestfjörðum.
![]() |
Það er ekkert betra í boði |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (19)
14.10.2017 | 21:59
"Hvort eð er" röksemdin og bilanir öfugu megin við tengingu.
"Hvort eð er" röksemdin hefur verið fyrirferðarmikil hjá virkjanamönnum í gegnum tíðina.
Nú er hún orðuð þannig að það sé "hvort eð er" komið svo langt í undirbúningi fyrir Hvalárvirkjun að ekki verði aftur snúið.
Náttúruverndarsamtök eru ásakaðar fyrir að hafa ekki fyrr sýnt andstöðu við virkjunina.
Ef þau hefðu gert það hefðu þau verið ásökuð um að vaða fram áður en Skipulagsstofnun væri búin að skoða málið.
Sífellt er klifað á því að það að virkjanakostur fari í svonefndan nýtingarflokk hjá rammaáætlun (þetta er leiðandi heiti því að í verndun felst yfirleitt líka nýting) þýði sjálfkrafa að virkjað verði.
Það er alrangt, því að ef það væri svo, þyrfti ekkert álit Skipulagsstofnunar né mat á umhverfisáhrifum.
Á korti sem sýnt er yfir bilanir á Vesturlínu sést, að nær allar bilanirnar verða fyrir vestan Kollafjörð þar sem línan á að koma frá Hvalárvirkjun inn á Vesturlínu.
Hvalárvirkjunarlínan mun sáralitlu breyta um bilanatíðnina, sem framkvæmdastjóri Vesturverks segir að hafi verið ástæða þess að hann og Vesturverk fóru af stað með þetta verkefni.
Fyrir liggur að það verkefni að styrkja Vesturlínu eða leggja línu um Ísafjarðardjúp til Ísafjarðar yrði svo dýrt að það yrði augljóslega ekki gert.
Merkilegt er að úr því að framkvæmdastjóranum fannst nauðsynlegt að virkja til að minnka rafmagnstruflanir vestra skyldi hann ekki fara í að virkja í botni Hestfjarðar eða Skötufjarðar, sem er margfalt nær Ísafirði en virkjun hinum megin á Vestfjarðakjálkanum.
Röksemdin varðandi sparnað á útblæstri varaaflstöðva dettur dauð niður en í staðinn kæmi aukalega útblástur allra hinna stórvirku vinnuvéla sem notaðar yrðu við virkjunina.
![]() |
Nú förum við og virkjum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:10 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
14.10.2017 | 16:52
Hin þrönga sýn virðist yfirgnæfandi.
Í gær voru tvö atriði samliggjandi á dagskrá Arctic Circle sem sneru að áhrifum loftslagsbreytinga á heimsvísu.
Annars vegar ávarp, kynning og umræður varðandi yfirlýsingu Alkirkjuráðsins sem lesin var á Lögbergi og undirrituð í Þingvallakirkju í gærmorgun, þar sem prestar og leiðtogar þeirra 500 milljóna kristinna manna, sem eru innan vébanda ráðsins eru hvatir til þess að láta til sín taka í umræðum og aðgerðum varðandi vaxandi umhverfisvanda heimsins, en hins vegar umfjöllun og umræður um niðurstöður svonefnds hóps sem kom saman í Marrakesh fyrir frumkvæði Ólafs Ragnars Grímssonar til að komast að markvissri og einfaldrar niðurstöðu varðandi það að beisla afl almennings og þar með ráðamanna til baráttu gegn loftslags- og umhverfisvandanum.
Þegar rennt er yfir umfjöllun íslenska fjölmiðla um Arctic Circle virðist hins vegar hin þrönga sýn á beina efnahagslega hagsmuni þjóðanna á norðurslóðum yfirgnæfandi.
Fyrirsögnin á tengdri frétt á mbl.is, "tryggja þarf sjálfbæra þróun" lofa góðu, en innihald fréttarinnar veldur vonbrigðjum.
Vitnað er í orð utanríkisráðherra Íslanda um "sjálfbæra þróun efnahags-og viðskiptalífs, í sátt við umhverfið efnahags- og viðskiptalífs á svæðinu, að vísu í sátt við umhverfið á svæðinu."
Að vísu heitir ráðstefnan Arctic Circle en viðfangsefni Marrakeshópsins, sem Ólafur Ragnar kynnti, sýnir að málið er miklu stærra og snertir allt mannkynið.
Má sem dæmi nefna að fulltrúi Fiji eyja lýst því á áhrifaríkan hátt í pallborði Alkirkjuráðsins á Arctic Circle hver áhrif bráðnandi jöklar á Íslandi og norðurslóðum hafa á búsetuskilyrði og hag hundraða milljóna manna sunnar á hnettinum.
Á Fiji-eyjum hvílir tilvera fátæks 800 þúsund manna þjóðfélags að mestu á nýtingu á ströndum eyjanna, en nú þegar er hækkandi sjávarborð farið að valda vandræðum.
Hér á landi sjá fulltrúar hinna fjarlægu þjóða þá bráðnandi og minnkandi jökla sem eru að verða örlagavaldar fyrir varnarlaust fólk hinum megin á hnettinum.
En þröng sýn á eðli viðfangsefna Arctic Circle, virðist yfirgnæfandi hjá fjölmiðlunum, helst umfjöllun um hin "fjölbreyttu tækifæri" sen bráðnun íssins og hlýnandi loftslag muni færa þjóðum á norðurslóðum, en siður umfjöllun um neikvæðar hliðar eins og súrnun sjáar, hvað þá alvarlegar afleiðingar annars staðar á hnettinum.
Vonandi er þó enn tími til að bæta úr því.
![]() |
Tryggja þarf sjálfbæra þróun |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 19:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
14.10.2017 | 13:39
Ekki gott þegar beinn hagsmunaaðili eins og landeigandi ræður úrslitum.
Reglur um vanhæfi varðandi mikla einkahagsmuni hafa verið að siast inn hér á landi, en því miður of hægt.
Vanhæfi felst meðal annars í því að dómari telst vanhæfur að dæma í umdeilanlegu máli sonar sínst og víkur sæti.
Engi skiptir þótt hann segist ætla að dæma son sinn svo hart að allir sjái að hann hafi tekið óhlutdræga afstöðu.
Ef hann gerir það hefur það bitnað á syni hans hver faðir hans var.
Í vanhæfisreglunum felst að ekki skiptir máli hvort málið er umdeilanlegt eða ekki, tengsl úrskurðaraðila og aðila máls vega þyngra.
Í hreppsnefnd Árneshrepps, sem miklu ræður um gang margra mála í hreppnum, ætti landeigandi, sem græðir persónulega á því að selja jörð sína til umdeilanlegra framkvæmda að sjálfsögðu að víkja sæti þegar hreppsnefnd tekur afdrifaríkar ákvarðanir um mál.
![]() |
Snerist hugur um Hvalárvirkjun |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
14.10.2017 | 06:59
Hvalárvirkjun skapar ekkert starf til frambúðar, gagnstætt friðun.
Vatnajökulsþjóðgarður hefur skapað 70 störf og þar af eru 70 prósent starfanna konur á barneignaaldri, en sá fjöldi ræður úrslitum um lífsmöguleika byggða.
Drangajökulsþjóðgarður myndi að vísu ekki skapa eins mörg störf, en samt yrði himinn og haf á milli þess, sem við það myndi skapast, og Hvalárvirkjunar sem skapar EKKERT starf.
Það gleymist alltaf þegar gefið er upp hve margir muni fá vinnu við virkjanaframkvæmdirnar, að þau störf eru til stutts tíma, kannski í mesta lagi tveggja til þriggja ára, og eftir að virkjun er fullgerð missa ALLIR atvinnuna.
Hinu megin við flóann átti Blönduvirkjun að "bjarga" Norðvesturlandi á níunda áratugnum.
Niðurstaðan varð sú, að þegar virkjanaframkvæmdum var lokið, misstu allir atvinnuna, sem framkvæmdunum fylgdu og í hönd fór mesta mannfjöldahrun í fjórðungnum síðan í Móðuharðindunum.
Á málþingi í Árnesi í sumar ætlaði yfirmaður gerðar mats á umhverfisáhrifum að komast upp með það að fullyrða við fundarmenn, að það yrði hægt að hafa virkjunina inni í þjóðgarði, af því að slíkt væri alsiða erlendis.
Sem betur fór var hægt að reka þetta ofan í hann, því að þeir, sem halda þessu fram hafa ekki getað nefnt nein dæmi um slíkt utan tvö í Bandaríkjunum, þar sem virkjun var samliggjandi þjóðgarði og slíkt var gert fyrir meira en öld þegar allt önnur viðhorf ríktu.
Vesturverk lofar stórkostlegum vegabótum í formi vegarslóða þvert yfir Ófeigsfjarðarheiði vestur í Djúp.
Einn fundarmanna orðaði viðbrögð sín við þessu svona: Við höfum fengið alveg nóg af vegum sem eru ófærir vegna snjóa mestallt árið, enda myndi þessi vegarslóði liggja í meira en 500 metrra hæð yfir sjávarmáli.
P.S. Magma Energy á yfirgnæfandi hlut í HS orku, sem á meirihluta í Vesturverki, en raunverulegur eigandi Magma Energy kanadíski auðkýfingurinn Ross Beaty.
![]() |
Aðþrengd sveit tekst á við virkjunaráform |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)
13.10.2017 | 22:51
Kirkjuleiðtogar 500 milljóna manna gegn sérgræðginni.
Á ráðstefnunni Arctic Circle í dag flutti yfirmaður Orthodox kirkjunnar í Constantinópel, sem talar fyrir kirkjudeildiur með 500 milljónir manna innanborðs, ályktun Alkirkjuráðsins sem samþykkt var á Lögbergi á Þingvöllum í í morgun og undirrituð þar, þar sem kennimenn kristinna kirkna um allan heim eru hvattir til að taka afstöðu í umhverfismálum.
Myndirnar hér á síðunni eru frá Þingvöllum og Hörpu i dag, en á Þingvöllum lásu fjórir fulltrúar yfirlýsinguna.
Það er mikilvægt stórt og fréttnæmt skref bæði á alþjóðlega vísu og hér á landi þegar fjölmennar og áhrifaríkar trúarhreyfingar taka höndum saman í mikilvægustu málum samtímans og framtíðarinnar.
Alkirkjuráðið hefur innan sinna vébanda kristið fólk allt frá Alaska og Samahéruðum Norðurlanda til Fijieyja í Eyjaálfu.
Fjölmiðlar og margir aðrir áhrifaríkir aðilar virðast hins vegar ekki skynja þetta, og gott dæmi er fréttaflutningur og pistlaskrif, sem líta á Arctic Circle eingöngu út frá sjónarmiðum sérgræði, sem til dæmis endurspeglast í slagorðum á borð við að ráðstefnan snúist eingöngu um það sem við Íslendingar gægum grætt mest á, ný tækifæri til þess að láta norræn lönd blómstra.
Í dag var hins vegar ekki annað að heyra en að aðalverkefni ráðstefnunnar sé að benda á þá ógn sem stafar af hlýnun lofthjúpsins um víða veröld og til dæmis hið beina samhengi á milli þess að bráðið vatn frá jöklunum hækki yfirborð sjávar hinum megin á hnettinum og muni jafnvel færa í kaf heimkynni tuga eða jafnvel hundraða milljóna manna.
Þess vegna sé mannkynið að falla á tíma við að takast á við vandann.
P. S. Af hverju þarf að þýða "running out of time" hrátt upp úr enskunni: "...renna út á tíma"?
Hingað til hefur nægt að segja á íslensku: "falla á tíma."
![]() |
Erum að renna út á tíma |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
13.10.2017 | 15:38
Erfðara eftir því sem framboðin eru fleiri.
Þegar litið er fjölda þeirra nafna, sem framboð þurfa að skila til yfirkjörstjórna, sýnist það í fyrstu ekki vera stórmál, miðað við það að kjósendur eru meira en 200 þúsund.
En annað kemur á daginn. Það er ekki nóg að tilskilinn fjöldi hafi áhuga á því að vera á framboðslistum, því að afar mörgum finnst alls ekki sama hvar þeir eru á listunum,
Það felst ekki aðeins í margir vilji vera sem efst á lista, heldur líka á því að margir vilja vera sem neðst á lista, og síðan eru ástæður annarra jafn fjölbreytilegar og þeir eru margir.
Það nálgast oft að vera óleysanlegt viðfangsefni að raða á lista.
Og það hefur oft orðið illleysanlegt verkefni að safna meðmælendum, því að ótrúlega margir fara rangt með það í hvaða kjördæmi þeir eru og aðrir eyðileggja undirskriftir sínar með því að hafa skrifað nafn sitt á fleiri lista.
Það getur verið þumalfingursregla að það þurfi að safna minnst 20 prósent fleiri undirskriftum en krafist er, vegna þess hve margar undirskriftir verða ógildar.
![]() |
Vantar undirskrift eins framboðsaðila |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 15:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
13.10.2017 | 08:02
Firring og afneitun.
Óvenjuleg firring og afneitun einkennir hegðun Bandaríkjaforseta dag eftir dag, nú síðast með útgöngu BNA úr UNESCO og fordæmingu forsetans á umfangi hjálparstarfs á Puerto Rico, en grunnur þessarar hegðunar virðist vera stærilæti yfir "mætti" og dýrð Bandaríkjanna og Ísraels og vesöld Palestínu og Puerto Rico.
Mótsagnir hafa valdið því að þessi maður hefur komist til valda.
Eitt atriði í því að það tókst, var, að hann var eini frambjóðandinn í aðdraganda forsetakosninganna sem sagðist berjast gegn "spillingunni í Washington", en margt sem hann sagði um hana átti við rök að styðjast.
Hið hlálega var, að sjálfur er og hefur Trump verið umvafinn spillingu og hroka alla tíð.
En slagorð hans um að skera upp herör gegn spilltri valdastétt í Washington átti stóran þátt að færa honum forsetaembættið á silfurfati.
![]() |
Trump kvartar yfir kostnaði Maríu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 08:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
12.10.2017 | 22:49
Teikn á himni á Bessastöðum í dag?
Um fimmleytið í dag blasti við óvenjuleg sjón frá Bessastöðum. Um það leyti sem Alkirkjuráðið kom þangað í heimsókn með nokkrum mönnum, sem kallast heitinu "hans heilagleiki."
Yfir suður- og suðausturhimininn dró sérkennileg ský upp á himininn líkt svonefndri maríutásu nema að það var margfalt lægra á lofti.
Síðan var gengið inn og forsetanum heilsað með greinileg merki um höfuðmeiðsli, og var engu líkara en að um teikn væri að ræða á himni í tilefni dagsins.
Við könnun á netinu kom í ljós að íslenska nafnið á svona skýjum er júgúrský.
Stefnt er að því að setja lifandi mynd af þessu fyrirbæri inn á facebook síðu mína.
![]() |
Forsetinn slasaðist í baði |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
12.10.2017 | 14:12
Umræðan er enn stórlega bjöguð.
Umræðan um orkumál, virkjanir og umhverfis-og náttúruverndarmál hefur lengi verið bjöguð hér á landi.
Leyndarhygga er mikið notað orð um þessar mundir og leitun er að sviði í þjóðlífinu þar sem hún hefur verið meiri en á þessu sviði.
Það hefur til dæmis verið vitað síðan upplýst var um það í sjónvarpsþætti um Kröfluvirkjun árið 1978, eða fyrir tæpum 40 árum, að ekki væru gerðar meiri kröfur um endurnýjanlega orku en það að orkan entist í 50 ár áður en hún yrði uppurin.
Það þýðir einfaldlega að þessi orka er langt frá því að vera endurnýjanleg á þann hátt að hún geti staðist kröfur um sjálfbæra þróun, en þetta hugtak er þegar orðið og verður í vaxandi mæli höfuðviðfangsefni mannkynsins.
Tíu árúm eftir að Kárahnjúkavirkjun var gerð, veit þjóðin ekki enn hverju var fórnað og áttar sig ekki enn á því að Hjalladal, á stærð við Hvalfjorð en þrefalt dýpri en Hvalfjörður, var sökkt í aurugasta vatnsfall heims, sem á eftir að fylla þennan dal með eistæðum listaverkum Jðklu, upp á um það einni öld.
Samkvæmt 1. áfanga rammaáætlunar, sem auðvitað var ekki gefin út fyrr en búið var að skrifa undir samninga varðandi Kárahnjúkavirkjun, fól þessi virkjun í sér mestu neikvæðu óafturkræfu umhverfisspjöll, sem möguleg voru á Íslandi.
Ein helsta röksemdin fyrir því að virkja alla virkjanlega orku á Íslandi er sú drífa verði í að gera þetta vegna loftslagsvandans.
Ef þetta sjónarmið heimtar að einstæðustu og dýrmætustu náttúruverðmætum heims sé fórnað fyrst, á undan öðrum svæðum, má benda á, að meira að segja Bandaríkjamenn, sem valda mesta útblæstri á íbúa af öllum jarðarbúum, dettur ekki í hug að fórna Yellowstone, þar sem er langmesta samanlagða jarðvarma- og vatnsorka Norður-Ameríku, heldur segja BAndaríkjamenn, meira að segja sérfræðingar í jarðvarmavirkjunum, að Yellowstone sé heilög jörð.
![]() |
Mátturinn eða dýrðin? |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)