Færsluflokkur: Bloggar
6.1.2014 | 10:26
"Alveg óskyld mál"? Kanntu annan ?
Umhverfisráðherra segir að ákvörðun hans um breytingu á mörkum friðlands Þjórsárvera og Norðlingaölduveita séu alveg óskyld mál. Aðstoðarmaður hans segir að Norðlingaölduveita verði áfram í verndarflokki.
Skoðum eftirfarandi atburðarás.
1. Á fyrsta vinnudegi núverandi iðnaðarráðherra lýsir hún því yfir að stefnt verði ótrautt að byggingu álvers í Helguvík. Ríkisstjórnin lýsir í framhaldinu yfir einróma stuðning við álverið.
2. Síðar kemur fram að atbeini Landsvirkjunar sé nauðsynlegur til þess að koma byggingu álversins áfram.
3. Nokkrum dögum fyrir fyrirhugaða og umsamda undirritun samkomulags um útvíkkun á friðlandi Þjórsárvera aflýsir umhverfisráðherra undirrituninni.
4. Í fyrradag er flutt frétt af nýrri útfærslu ráðherra á friðlandsmörkum, sem opnar fyrir gerð Norðlingaölduveitu en ráðherrann segir að þessi nýja útfærsla sín og Norðlingaölduveita séu alveg óskyld mál og aðstoðarmaðurinn segir að Norðlingaölduveita sé áfram í verndarflokki.(Verndarflokkur er heiti yfir þá virkjanakosti sem eru slegnir út af borðinu)
5. Í gær er flutt frétt af því að Landsvirkjun hafi sent inn umsókn til Orkustofnunar um nýja útfærslu Norðlingaölduveitu enda sé hún afar hagkvæmur virkjanakostur.
"Alveg óskyld mál" og "verndarflokkur" (friðun) ? Kanntu annan?
![]() |
Ný Norðlingaölduveita |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 10:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
5.1.2014 | 23:17
Gaman væri að bera þetta saman við 1979.
Í viðbót við það sem Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur upplýsir í tengdri frétt á mbl.is má nefna það, að Trausti Jónsson hefur upplýst á bloggsíðu sinni að hann muni ekki eftir jafnmörgum lægðum dýpri en 930 millibör á jafn stuttum tíma og verið hefur undanfarið. Þess má geta að lægsti loftþrýstingur sem mælst hefur á Íslandi var 920 millibör (hectopascals)
Trausti er iðinn við veðurfarskannanir aftur í tímann á Veðurstofunni og gaman væri ef hann hefði tíma til að bera þessa langvarandi hlýju norðan- og norðaustanátt saman við hið óvenjulega veðurfar árið 1979, sem mig grunar að hafi verið kaldasta ár 20. aldarinnar eftir 1920.
Árið 1979 voru austan- og norðaustanáttir alveg sérstaklega algengar, en andstætt því, sem nú er, voru þær sérlega kaldar og áttu mestan þátt í einstakri hafísmyndun og harðindum 1979 og svo köldu árferði að vetur gekk í garð á Grímsstöðum á Fjöllum með snjóum í september, en gagnstætt því sem gerst hefur bæði 2013 og 2012, hlýnaði nær ekkert eftir það.
Annað vakti athygli mína 1979: Ég held að það hafi aðeins tvisvar gerst allt árið, að það kæmi suðvestanátt í Reykjavík. Gaman væri ef Trausti gæti fundið út, hvort þetta hefur gerst nokkurt annað ár síðan 1950.
Lægðirnar fóru svo sunnarlega yfir Atlantshafið árið 1979 að kuldaskilin, sem jafnan fara yfir landið á eftir suðaustanáttinni, komust aldrei svona norðarlega.
Veðrið var því mánuðum saman þannig að það hvessti og rigndi á suðaustan með landsynningi, en síðan færðist vindurinn til norðanáttar með kuldarigningu eða snjókomu fyrir norðan, eftir því hvort þetta gerðist að sumri eða vetri.
Ég minnist þess heldur ekki síðan ég fór að fylgjast með veðrinu um 1950 að norðanáttin hafi verið svona hlý vikum saman að vetrarlagi.
Öfgarnar í veðrinu eru sannarlega miklar samanber kuldana í Bandaríkjunum, það hve hlýtt árið 2013 var í Ástralíu og það, að nú eru hlýindi og rigning í Moskvu og ég hef verið að fylgjast með því undanfarnar vikur að hinn illræmdi kaldi rússneski vetur lætur enn bíða eftir sér þótt komið sé fram yfir áramót.
![]() |
Veðurkerfin standa á haus |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt 6.1.2014 kl. 00:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
5.1.2014 | 20:12
Drengurinn á götunni í fátækrahverfi Maputo.
Portúgalskur þjálfari sem var á ferð um illræmdasta fátækrahverfi Maputo, höfuðborgar Mósambík, uppgötvaði knattspyrnusnillinginn Eusebio þegar hann sá þennan tötrum klædda götudreng leika listir sínar á götunni.
Þetta var gæfa fyrir knattspyrnuna, því Eusebio var markahæsti leikmaðurinn á HM í Englandi 1966 og stjarna leikanna. Ferillinn var einstakur og það er þriggja daga þjóðarsorg í Portúgal.
Mér er þetta ofarlega í huga því að á ferð um þetta sama fátækrahverfi fyrir sjö árum sá ég fyrir einbera tilviljun götudreng leika ótrúlegar listir á götuhorni í hverfinu. Hef ég aldrei fyrr né síðar séð sumt af því sem hann gerði við boltann þá örstuttu stund sem ég horfði á hann.
Mér varð hugsað til þess þá, að ef ég væri knattspyrnuþjálfari en ekki ferðamaður frá fjarlægu landi, hvort það gæti haft jafn mikil áhrif á knattspyrnusöguna og það að þarna var Eusebio uppgötvaður 40 árum fyrr, að þessi tötrum klæddi drengur væri uppgötvaður og honum komið í hendurna á þeim, sem kunna að vinna úr slíkum efniviði.
Eins og ástandið var á þessum slóðum 2006, voru líkurnar á því að þessi götudrengur fengi alnæmi að mig minnir 1 á móti 7. Líkurnar nánast engar á því að hann fengi að njóta hæfileika sinna og hann er kannski ekki einu sinni lífs í dag.
Hvílík sóun á hæfileikum !
![]() |
Eusebio látinn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 20:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
5.1.2014 | 19:16
Sofandaháttur og andúð gagnvart grasrót flugsins.
Komið hefur fram að ákveðið hafi verið að allt leiguflug, kennsluflug og flug smærri flugvéla verði burtrekið frá Reykjavík á árinu 2025. Mikil skammsýni og þröngsýni felst í þessu sem og skipulagðri aðför gegn Reykjavíkurflugvelli, sem staðið hefur í 35 ár.
Reykjavík var vagga flugs á Íslandi frá 1919 og Reykjavíkurflugvöllur vagga grasrótarinnar, flugnáms og flugreksturs frá því að völlurinn var byggður.
Völlurinn fóstraði Flugfélag Íslands, Loftleiðir, Flugsýn, Flugþjónustu Björns Pálssonar, Vængi, Arnarflug, Flugfélagið Erni, Þyt, Flugstöðina, Odin Air, Flugskóla Helga Jónssonar, Flugskóla Íslands, Íslandsflug, Landhelgisgæsluna, Þyrluþjónustuna, svo eitthvað sé nefnt, auk allra fyrirtækjanna og stofnananna sem þjóna fluginu og þúsundir manna eiga atvinnu sína undir.
Nú er auglýst eftir flugmönnum og flugfólki í stórum stíl og ljóst er að það verður skortur á nýjum íslenskum flugmönnum.
Eðlileg viðbrögð við þessu væri að hlúa betur að grasrótinni á Reykjavíkurflugvelli, því að þar eru langbestu aðstæðurnar fyrir hana, bæði hvað snertir veðurfar, flugvöll og öll skilyrði nærsamfélagsins.
Ég læt líka segja mér það tvisvar að öllu leiguflugi skuli úthýst frá vellinum. Á fólk þá að fara til Keflavíkur í öfuga átt við flugleiðina þegar það vill fara í leiguflug?
Sem dæmi um sívaxandi takmarkanir má nefna það að á virkum dögum er bannað að lenda nema eina lendingu á hverju loftfari eftir klukkan fimm á virkum dögum og eftir klukkan fjögur á sunnudögum, rétt eins og fólk sé að fara að sofa svona snemma.
Skilningur virðist á gildi samgangna á landi og sjó og gildi hinna mismunandi atvinnugreina en hins vegar einkennileg andúð á því sem tengist samgöngum í lofti.
Að vísu kemur hvað eftir annað fram í skoðanakönnunum að 70% borgarbúar vilji hafa flugvöllinn áfram þar sem hann er, en svo er að sjá sem ráðamenn í borginni séu staðráðnir í að hafa þann vilja að engu.
![]() |
300 þreyttu flugverjapróf |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 19:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (30)
5.1.2014 | 15:28
Sérstök heimsmynd heldur Pírötum uppi.
Ég held að þeir vanmeti Pírata, stöðu þeirra og heimsmynd, sem halda því fram að þeir "muni ekki þola álagið til lengdar" vegna þess að þeir séu nokkurs konar aðkomumenn í pólitík ("átsæter") og séu "bæði með hægri og vinstri á móti sér."
Komið hefur fram að mest af fylgi Pírata sé í aldurshópnum 18-28 ára, en í þeim aldurshópi eru um 20% kjósenda.
Út úr því má fá að allt að fjórðungur þess fólks á þessum aldri, sem fara á kjörstað til að kjósa, kjósi Pírata.
Sé svo, er það glettilega hátt hlutfall á í þessum aldursflokki, á stærð við stærstu flokkana og fer áreiðanlega stækkandi að óbreyttu eftir því sem nýir árgangar koma inn.
Ég fékk að skyggnast svolítið inn í heimsmynd Pírata á ráðstefnu í Brussel í mars í fyrra og komst að þeirri niðurstöðu, að svo framarlega sem þeir nenntu að fara á kjörstað myndu þeir komast yfir 5% múrinn í fylgi. Það gekk eftir.
Þetta, að nenna að fara á kjörstað, er það eina sem ég sé að geti verið Pírötum fjötur um fót hvað snertir fylgi í kosningum, því að hugsjón þeirra er að færa stjórnmálin sem beinasta leið til kjósendanna með netlýðræði og beinni stjórnmálaþáttöku almennings en verið hefur með því að virkja möguleika netsins.
Ef kosningar verða færðar inn á netið eins og til dæmis Styrmir Gunnarsson hefur mælt með og ég styð, - kannski í byrjun með því að gefa kost á báðum kosningaformunum vegna gamla fólksins og fleiri kjósenda sem eiga erfitt með eða eru tregir til að taka upp netkosningar, - þarf ekki að spyrja að útkomunni eins og málum er háttað í dag.
Ef síðustu kosningar hefðu verið netkosningar hefðu Píratar líklega fengið meira en 10% fylgi.
Eins og nú háttar til, stækkar aldurshópurinn sífellt sem Píratar höfða til, og við næstu kosningar verður þetta aldurshópurinn 18-32ja ára sem þýðir 40% stækkun.
Mér sýnist Píratar lifa jöfnum höndum í netheimum en raunheimi og jafnvel frekar í netheimum ef eitthvað er. Í því felast griðarlegir jákvæðir möguleikar en einnig neikvæðir, einkum ef ýmis konar sýndarveruleiki netheima verður svo sterkur að hann valtar yfir veruleika raunheima.
Jón Þór Ólafsson þingmaður Pírata skrifar ágætan pistil um samkennd og samúð í blað nú um hátíðarnar og í jákvæðu og uppbyggjandi hugarfari eins og þar birtist getur styrkur Pírata legið.
Þá skipta hægri og vinstri minna máli.
Og styrkur þeirra liggur fyrst og fremst í því að nýta til framfara, lýðræðis og sanngirni möguleikana sem nútímafjarskipti hafa opnað.
En það eru líka dökkar hliðar á netheimum, sem koma nú í ljós. Sem dæmi má nefna sívaxandi niðurhal á netinu sem beinlínis rænir höfundarrétthöfum tekjum fyrir vinnu sína og framlag, sem sannanlega er bæði lögmætt og sannagjarnt að þeir fái borgað fyrir.
Reynslan af ástandinu sýnir, að það er barnalegt að halda að með því að höfða til samvisku hvers og eins sé hægt að fá fólk almennt til að virða höfundarréttinn. Það hefur einfaldlega ekki virkað.
Ef þannig væri farið um alla hluti þyrfti enga löggæslu eða eftirlit á hinum ýmsu sviðum þjóðfélagsins.
Ég hef trú á því jákvæða sem Píratar standa fyrir en vil líka brýna þá til þess að gæta að dökkum hliðum netheima, sem gætu orðið þeim fjötur um fót ef þeir ætla að láta sem ekkert sé.
Ég hef líka trú á því að ýmis vandamál, sem koma upp varðandi átök heimsmynda netheima og raunheima, muni verða hægt að leysa og verði leyst, og að það sé ekki ógnvænlegt, heldur spennandi verkefni að leysa þau viðfangsefni.
Ný tækni með möguleikunum á að lifa sig inn í sýndarveruleika getur verið afar gagnlegur og gefandi, en það þarf að gæta að þeim hættum, sem geta skapast ef þessi sýndarveruleiki stangast gróflega á við raunveruleikann sjálfan.
Samkenndin, sem Jón Þór talar um í blaðagrein sinni, verður aldrei fóstruð eins vel á Skype eins og með beinum mannlegum samskiptum með gamla laginu. Að því leyti til verður alger flótti inn í netheima ekki nein heildarlausn á viðfangsefnum nútímans.
![]() |
Píratar þoli ekki álagið til lengdar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (15)
5.1.2014 | 00:07
Man einhver eftir þessum bílum ?
Í tengslum við "Naumhyggjubílasafn Íslands" sem er áhugamál mitt leitar hugur minn oft til bíla, sem ekki voru örbílar en hins vegar langódýrustu bílarnir eða þeir minnstu eða ódýrastir af sínu tagi.
Ég hef nú umráð yfir rúmlega tug örbíla sem kandídata fyrir safnið en auk þess yfir nokkrum fleiri bílum, sem ekki eru örbílar en eru annað hvort nú eða voru á einhverjum tíma minnstir af sínu tagi eða "ódýrastir".
Dæmi um þá er "ódýrasti húsbíll landsins", UAZ 52, frambyggður Rússi 1972, - "minnsti jöklajeppi landsins", Suzuki Fox 1986, - "minnsti Toyota jöklajeppi landsins, 2ja manna Hilux árgerð 1989 - minnsti bíll landins 1956-1959, Fiat 600/Zastava 750, - og minnsti 5 manna bíllinn á markaðnum 1984-1988, Daihatsu Charade ´86.
Í Útvarpshúsinu hefur verið til mynd af fyrrum Útvarpshúsi við Skúlagötu og ég hef gamnað mér við að aldursgreina myndina með því að nota mér það, að stór austur-þýskur sendibíll af gerðinni Garant 32 stóð fyrir utan húsið.
Þetta voru á árunum 1957-59 ásamt IFA P-70, lélegustu bílar, sem fluttir voru til landsins og entust nánast ekki neitt.
Af þeim sökum var ljóst að myndin af útvarpshúsinu gat ekki verið eldri en frá 1957 og ekki yngri en frá 1960 !
Ég man vel eftir því þegar IFA P-70 var fyrst sýndur, annað hvort í þáverandi húsi Sveins Egilssonar eða húsi áföstu því.
Hann var með þversum tvígengisvél frammi í og framhjóladrif.
Hægt var að fá hann bæði sem venjulegan stallbak og líka sem skutbíl, eins og sést á meðfylgjandi myndum.
Sölumaðurinn fullyrti að vegna þess að bílinn væri úr pappaplasti væri hann undraléttur og benti á tölu í bæklingi, 560 kíló!
Þetta þótti hér merkilegt og næsta ótrúlegt, því að bíllinn var 3,73 m á lengd og um 1,50 á breidd og því langtum léttari en nokkur annar bíll af þeirri stærð ef þetta var rétt.
Þegar ég fór að skoða tölurnar nánar kom í ljós að þetta var aðeins þyngdin á öðrum ás bílsins fullhlöðnum ! Fullhlaðinn vó bíllinn tæplega 1200 kíló.
Síðar komst ég að því að bílinn var milli 800 og 900 kíló að þyngd tómur og að með aðeins rúmlega 600 rúmsentimetrá 22ja hestafla tvígengisvél var hann algerlega kraftlaus og komst varla yfir 80 kílómetra hraða !
Sem dæmi um hrákasmíð á bílnum má nefna, að botninn á farangursgeymslunni var úr lélegum krossviði sem var ekki einu sinni almennilega fastur heldur gat losnað við minnsta áreiti !
En þetta var langódýrasti nýi bíllinn á markaðnum árið 1957.
Á þessum árum voru einnig fluttir inn nokkrir Wartburg-bílar frá Austur-Þýskalandi, sem voru mun skárri, úr stáli og með 900 cc vél sem skilaði þeim miklu betur áfram.
Trabant tók við af P-70 1959 og var 250 kílóum léttari og mun betur hannaður bíll. Trabant verður auðvitað að vera á naumhyggjubílasafni ef af verður enda skásti austur-þýski bíllinn.
En nú er það spurning mín, og kannski er hún of seint fram komin: Eru einhverjir sem kynntust P-70 og Garant 32 eða vita eitthvað um þessa bíla og gætu þeir upplýsingum um það til mín? Eiga kannski myndir af þessum bílum?
Garant var dísilknúinn og með alveg sérstaklega grófu og háværu vélarhljóði, aðeins framleiddur á árunum 1957-61 og var notaður á sendibílastöðvum og víðar.
Myndin, sem fylgir hér af honum, er sú eina sem ég gat fundið á netinu, og er af pallbílsgerð hans.
Þessir bílar eru ekki einasta vitnisburður um naumhyggju í bílaeign, sem gat höfðað til nokkra Íslendinga á þessum árum, heldur fela þeir líka í sér pólitískar minjar um gjaldeyris- og haftastefnu vinstri stjórnarinnar 1956-1958 sem og afleiðingar af þorskastríði Íslendinga og Breta, sem leiddi af sér innflutningsbann á íslenkum fiski til Bretlands og vöruskiptasamninga við kommúnistalönd Austur-Evrópu.
Bloggar | Breytt 10.1.2014 kl. 10:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
4.1.2014 | 23:23
Fyrirrennarar Savannatríósins og Ríó tríósins.
Notkun orðsins "fyrirrennarar" í fyrirsögn þessa pistils kann að þykja vafasöm. Hvernig getur erlendur söng dúett verið fyrirmynd fyrir íslensk söngtríó?
Svarið er einfalt. Tvö ártöl sköpuðu vatnaskil í íslenskri dægurtónlistarsögu, 1951 og 1986.
Í bæði skiptin var einokun á útvarpssendingum rofin, í fyrra skiptið með tilkomu Kanaútvarpsins og í síðara skiptið þegar útvarp- og sjónvarpsssendingar voru gefnar alveg frjálsar.
Fyrstu 15 ár Kanaútvarpsins og Kanasjónvarpsins ólu þessar stöðvar upp nýja kynslóð í tónlistarefnum, ungt fólk, "rokk- og Bítlakynslóðina, sem drakk í sig tónlist og annað efni Kanans með móðurmjólkinni.
Þegar rokkið fór á fullt 1956 spruttu upp hljómsveitir kornungra tónlistarmanna eins og Plúdó-sextett, síðar Lúdósextett, sem lögðu ásamt Hljómum 1964 grunn að nýrri flóru í dægurtónlist hér á landi.
Þótt KK-sextett og svipaðar hljómsveitir væru kannski bestu hljómsveitirnar til að byrja með, hvað snerti getu og færni, voru þær aldrei hreinræktaðar rokkhljómsveitir, einfaldlega vegna aldurs meðlima þeirra.
1957 skutust Everly-bræður upp á toppinn í Ameríku og það kvað við alveg nýjan tón.
Þegar bandarísk hjón voru í heimsókn hjá foreldrum mínum um 1960 voru þau forvitin um íslenska léttmenningu, ekki síst vegna þess sem ég var þá að bralla. Þau vildu fá nánari útlistun á því sem ég og aðrir skemmtikraftar værum að gera.
Þeim þótti val mitt á tónlist fyrir gamanvísur og viðfangsefni í eftirhermum sérkennilegt. Í Ameríku voru þá enn hinir eldri eins og Sammy Davis jr sem fremstir stóðu og notuðu frekar eldri tegundir tónlistar.
Þeim þótti hins vegar skiljanlegt að upp myndu spretta hér sönghópar á borð við Everlybræður, sem þau sögðu hafa gríðarleg og næstum byltingarkennd áhrif í Bandaríkjunum.
Þau reyndust hafa á réttu að standa því að einmitt um þetta leyti var Savanna-tríóið að hasla sér völl og síðar Ríó tríó.
Everlybræður höfðu mikil áhrif á marga af fremstu poppurum Ameríku og Evrópu og þess vegna leyfi ég mér að kalla þá fyrirrennara Savanna- og Ríó tríóanna.
Þetta voru góð áhrif hér á landi og allir fórdómar varðandi það hve hættulegt og lélegt væri að "apa upp eftir útlendingum" reyndust rangir. Savannatríóið sótti í sjóð íslenskra og erlendra þjóðlaga og gerði þessa tegund tónlistar alíslenska.
Sama má segja um arfleifð Ríó tríósins.
Nú er Phil Everly allur og þar með dúettinn Everlybræður. Fráfall Phils snertir íslenska tónlist og íslenska menningu. Bræðurnir unnu brautryðjendastarf í Ameríku sem hvatti kornunga Íslendinga til að gera svipað hér á landi.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
4.1.2014 | 22:35
Gott að ráðherrar kynnist endemis samgöngum.
Vestfirðir eru eini landshlutinn sem er enn eru með svipaðar aðstæður í samgöngum og voru fyrir meira en hálfri öld.
Þetta er eini landshlutinn sem ekki er með flugvöll fyrir alvöru alþjóðlegar samgöngur og eini landshlutinn þar sem ekki má fljúga nema í dagsbirtu, en það þýðir að aðeins 4-5 klukkustundir eru nothæfar á hverjum sólarhring um háveturinn og oft er veðrið verst þá en skárra hinar 18-19 stundirnar.
Í öllum öðrum landshlutum eru flugvellir sem nota má jafnt í myrkri sem birtu.
Milli Ísafjarðar og Patreksfjarðar þarf að aka þrefalt lengri leið á veturna en ef heilsársvegur lægi milli þessara staða um jarðgöng milli Dýrafjarðar og Arnarfjarðar.
Það er til marks um hve þessi meira en 400 kílómetra langa vetrarleið er fáránlega löng, að það tekur tíu mínútur að skreppa á flugvél frá Ísafirði til Bíldudals og 25 mínútur að aka þaðan til Patreksfjarðar.
Gott er að ráðherra kynnist þessum endemis samgöngum, þótt því miður sé ekki í augsýn að þessi staða breytist á næstu árum.
Grundvallarmistökin voru að mínu mati gerð fyrir 35-40 árum, þegar ákveðið var að láta veg um Ísaafjarðardjúp og Steingrímsfjarðarheiði fá forgang fram yfir aðra kosti.
![]() |
Ráðherra veðurtepptur á Flateyri |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
4.1.2014 | 18:50
Er það frétt að rúta bíði á umferðarljósum?
Atvikið á Keflavíkurflugvelli sem trónir efst á lista yfir mest lesnu frétt dagsins á mbl.is, er jafn hversdagslegt og að rúta komi að umferðarljósum og sé stöðvuð vegna þess að það kviknar gult og síðar rautt ljós á götuvitanum.
Svo algengt er að flugvélar verði að víkja fyrir annarri flugumferð að það er engin frétt í sjálfu sér, allra síst þegar umferðin er mest. Ef öll þau tilfelli væru talin þar sem flugvélar verða að seinka för vegna til að umferðin gangi upp, eru þessi atvik að meðaltali fjölmörg á dag á hverjum flugvelli.
Svo haldið sé áfram með samanburðinn á rútu og stórri flugvél er eini mismunurinn sá, að hægt er að stöðva rútuna alveg á götunni eða veginum, meðan vikið er fyrir annarri umferð, en flugvélin getur ekki stöðvað sig í loftinu heldur verður að fara í hring eða "lengja í" eins og flugumferðarstjórar biðja oft flugmenn um að gera.
Nákvæmlega engin hætta var á ferðum á Keflavíkurflugvelli í gær. Málið var einfalt: Það tók aðeins lengri tíma en áætlað var fyrir flugvélina, sem var á jörðu niðri, að komast út af brautinni, og vélin sem var í aðflugi "lengdi því í" og seinkaði lendingu sinni því að fara hring og lenda að því búnu.
![]() |
Flugvél var fyrir á flugbrautinni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
4.1.2014 | 12:18
"Rugludalsbunguveita".
Eitt hið eftirminnilegasta úr bókinni "1984" eftir George Orwell var lýsing hans á möguleikum valdhafa til þess að nota villandi hugtök og umpóla merkingu orða til að rugla fólk og ná fram markmiðum sínum.
Allt of mikið er um þetta í virkjanamálum á Íslandi. Það sést best á því að skoða breytinguna, sem hefur orðið frá fyrstu virkjununum og virkjanahugmyndinum. Elliðaárvirkjun, Urriðafossvirkjun, Ljósafossvirkjun, Írafossvirkjun, Skeiðsfossvirkjun, Hrauneyjafossvirkjun, Mjólkárvirkjun og Blönduvirkjun eru gott dæmi um rökrétt nöfn.
Fallorka þessara fossa og þessara vatnfalla var virkjuð. Menn voru heiðarlegir og rökfastir eftir því sem því varð við komið.
Á sama hátt væru rétt nöfn á Norðlingaölduveitu og Kvíslaveitu Þjórsárvirkjun og Kvíslavirkjun. Fallorka Þjórsár er virkjuð með því að taka hana úr náttúrulegum farvegi sínum og færa hana yfir í annað vatnasvið þar sem fallorka hennar nýtist í hverflum virkjananna í því vatnasviði.
Fallorka kvíslanna, sem falla úr austri í efsta hluta Þjórsár, er virkjuð með því að taka þær úr náttúrulegum farvegum sínum og færa þær yfir í annað vatnasvið.
Ég heyri á nær öllum, meðal annars fjölmiðlafólki, sem hefur samband við mig, að það er búið að rugla það með villandi nafngiftum á fyrirbærum.
Skal engan undra, því ef sama aðferð hefði verið notuð við að gefa Blönduvirkjun nafn og við nafngift Norðlingaölduveitu, hefði hún hlotið nafnið Rugludalsbunguveita !
Það var nefnlega reist stífla, sem nær yfir í svonefnda Rugludalsbungu og er notuð til að veita ánni úr náttúrulegum farvegi sínum sem var í Blöndugljúfri.
Annað dæmi um villandi hugtakasmíð eru nöfnin á flokkun virkjanahugmynda í rammaáætlun í verndarflokk, biðflokk og nýtingarflokk.
Með þessum heitum er gefið í skyn að virkjun sé eina mögulega formið á nýtingu. Gildi Gullfoss ósnortins er hins vegar besta dæmið um það, hve þessi uppsetning er villandi.
Hið rétta væri að talað væri um verndarnýtingu og orkunýtingu. Gullfoss er klassadæmi um verndarnýtingu sem skilar mun meiri ávinningi en orkunýting hefði gert.
Mér dettur ekki í hug að nota orðið nýtingarflokk og með því að nota orðið virkjun frekar en nýtingu er ég meira að segja ekki fullkomlega rökvís þótt ég telji mig neyðast til að einfalda málið og lagfæra með því í stað þess að játast algerlega undir hina villandi uppsetningu.
Bendi á bloggpistlana hér á undan um málið og facebook-síðu mína og einnig á fróðleik um þessa virkjun Þjórsár á náttúrukortinu á vef Framtíðarlandsins.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 12:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)