Fordæmalausar hremmingar. Menn til tunglsins en ekki til drengjanna.

Raunir tailensku fótboltadrengjanna eru fordæmalausar og enn sárari fyrir þá sök að þessa þolraun þeirra skuli bera upp á sama tíma og úrslitaleikir HM fara fram. 

Þetta er svo ægileg þolraun á allan hátt, að hætt er við að óskir um að þeir geti leitt leikmenn í lokaleik HM inn á völlinn virki barnalegar, svo máttfarnir og þrekaðir sem þeir eru þegar orðnir. 

Á næsta ári verða 50 ár liðin síðan menn voru sendir til tunglsins en það virðist vera mönnum um megn að bjarga þessum drengjum frá beiskum bana.  


mbl.is Boðið á úrslitaleikinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 6. júlí 2018

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband