Órói við Hamarinn í aðdraganda Gjálpargossins 1996. Smágos 2011?

Órói við Hamarinn mánuðum á undan Gjálpargosinu 1996 byrjaði þótti út af fyrir sig ekki benda til þess að eldgos væri í vændum.  

Þó voru reyndar uppi vangaveltur að einhver kvika hefði komist upp úr jörð þar um slóðir en síðan ekki söguna meir. 

Í júlí 2011 voru hræringar undir jökli; og vísindamenn voru ekki alveg sammála; hugsanlega smágos en líka hugsanlega vaxandi jarðhitavirkni. 

Óvissa um svona fyrirbrigði er alveg í samræmi við það, að skjálftar og skjálfahrinur enda hvergi nærri alltaf með eldgosi. 


mbl.is Jarðskjálfti af stærðinni 2,5 við Hamarinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eitthvað annað drepur þig fyrst.

Þótt niðurstöður "blóðskimunar til bjargar" virðist við fyrstu sýn ekki uppörvandi, gat síðuhafi séð margar jákvæðar hliðar á þessu dýrmæta framtaki. 

Blóðeitrun í fæti, sem lagði viðkomandi í rúmið í nokkrar vikur, reyndist heppni, þegar að var gætt, ekki bara að unninn var bugur á henni, heldur vegna þess að í tengslum við hana var boðið upp á ókeypis "blóskimun til bjargar" sem leiddi síðan af sér bréf, sem tilkynnti um niðurstöðuna: "Forstig að mergæxli." 

Hægt var að segja sínum nánustu frá þessu með þeim orðum að þetta væri góð frétt. Nú, hvernig þá? 

Jú, ef þessi skimun hefði ekki verið gerð, væri ekkert vitað um þetta, en í staðinn fór í gang ferli þar sem fylgst yrði sem best með stöðunni. 

Nánari skoðun leiddi líka annað í ljós, sem útaf fyrir sig voru góðar fréttir, svo kaldhæðnislega sem það hljómar: 

"Þetta er á miklu frumstigi og þú skalt ekki hafa of miklar áhyggjur af þessu; þú ert orðinn svo gamall, að langlíklegast er að eitthvað annað drepi þig fyrst." 

Við hliðina á blóðskimunarstaðnum í húsi Krabbameinsfélagsins eru dyr með áletruninni "Lífið er núna", aðsetur samtaka sem bera heitið "Kraftur". 

Meðan beðið var eftir blóðskimuninni þarna, sköpuðust fróðlegar og gefandi umræður um málefnin, sem þarna voru á sveimi og gáfu tilefni til þess að gera hughreystingar- og uppörvunarþrungið lag og ljóð undir heitinu "Lífið er núna". 

Það felur í sér einfalda alþýðuheimspeki, en samt var þetta það snúið, að gerð lags, ljóðs og tónlistarmyndbands, sem nýlega birtist á facebook síðu minni, tók þrjú ár.  


mbl.is Um fjögur þúsund með forstig æxlis
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 20. desember 2021

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband