Sorg og líkn.

 

SAMÚĐARKVEĐJA. 

 

SORG OG LÍKN.  (Međ sínu lagi)

 

Söknuđurinn sár;

sorgarkvöl og tár. 

 

Ljúfur Drottinn lífiđ gefur;

líka misjöfn kjör, 

og í sinni hendi hefur

happ á tćpri skör.

Feigđin grimm um fjöriđ krefur. 

Fátt er oft um svör. 

Enginn veit hver annan grefur;

örlög ráđa för.   

 

Söknuđurinn sár; 

sorgarkvöl og tár. 

 

Líkna höfug hryggđartárin;

hörfar myrkriđ svart. 

Látum tímann lćkna sárin, 

ţótt lögmáliđ sé hart. 

Valt er lán og vegir hálir;

víst ţó huggun er

ţađ, sem góđar, gengnar sálir

gáfu okkur hér. 

 

Söknuđurinn sár;

sorgarlíkn og tár. 

 

Og ég veit ađ orđstír lifir;

ást og kćrleiksţel. 

Sá, sem vakir öllu yfir 

ć mun stjórna vel. 

Vítt um geim, um lífsins lendur

lofuđ séu´hans verk. 

Felum okkur í hans hendur, 

ćđrulaus og sterk. 

 

Söknuđurinn sár. 

Sorgarlíkn og tár;

sorgarsortinn dvín;

sólin rís og skín.    

 

 

 


mbl.is Nöfn ţeirra sem létust í flugslysinu
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

Bein útsending 1973 og síđar óklippt í Kröflueldum.

Enginn ćátti von á ţví í ársbyrjun ađ stutt vćri í  ţađ ađ sjónvarpa beint frá eldgosum á Íslandi. En ţetta tókst nú samt í Heimaeyjargosinu međ ţví ađ setja upp myndavél á Klifinu og koma ţađan á beinni útsendingu til sjónvarpsnotenda um allt land.

Útsendingin var án hljóđs, en i Kröflueldum var farin önnur leiđ. Flogiđ var međ kvikmyndatökumann og jarđfrćđing eftir endilangri gjósandi sprungunni viđ Kröflu og tekiđ upp heilt og óklippt myndskeiđ međ lýsingu hans á allri sprungunni. 

Síđan flogiđ međ filmuspóluna til ákureyrar og međ áćtlunarflugi ţađan til Reykjavíkur. 

Ţađan var ţessu heila óklippta myndskeiđi sjónvarpađ til landsmanna ađeins tveimur klukkustundum eftir ađ ţađ var tekiđ.  


mbl.is Bein útsending: Eldgos á Reykjanesskaga
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

Bloggfćrslur 11. júlí 2023

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband