Friðsamleg valdbeiting.

Ísraelsmenn hafa hersetið stór svæði í Palestínu í 43 ár með valdi þvert ofan í alþjóðalög og samþykktir Sameinuðu þjóðanna. Þeir byggja upp gyðingabyggðir á þessu landi með valdi og sýna hver það er, sem ræður, með því að tilkynna nýjustu valdbeitinguna beint upp í opið geðið á varforseta Bandaríkjanna þegar hann er þar í heimsókn. 

Gagnrýni á þetta svarar íslraelski utanríkisráðherrann með því að í gagnrýninni sé verið að beita valdi og valdbeiting sé af hinu illa ! 

Við höfum átt dæmi í sögunni um menn sem hafa allan þann tíma sem þeir hafa beitt valdi sínu, fordæmt valdbeitingu og sagst vera að berjast fyrir friði.

Hér í gamla daga var sagt að þetta héti að snúa Faðirvorinu upp á andskotann.

Helförin fyrir 65 árum er fyrir löng hætt að réttlæta allt það sem Ísraelsmenn gera og segja. Það er afar dapurlegt fyrir svo mikilhæfa þjóð með merka sögu.  

 


mbl.is Ísraelsmenn gagnrýna kvartettinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd:  Úrsúla Jünemann

Já, það er merkilegt hvað Ísrael getur sýnt öllum heiminum langa töngina. Þarna er framið þjóðarmorð á íbúum Palestína og heimurinn horfir á og ekkert gerist. Skyldi frekjan og yfirgangurinn alltaf sigra?

Úrsúla Jünemann, 19.3.2010 kl. 16:35

2 identicon

Ég hef alltaf borið mikla virðingu fyrir Gyðingum og afrekum þeirra á sviði vísinda. Nefni aðeins tvo títana; Isaac Newton og Albert Einstein. Þessa dagana sýnir The Israel Academy of Sciences í fyrsta skipti 46 handskrifuðu blöð Einsteins um almennu afstæðiskenninguna. Sýning er aðeins í þrjár vikur. Hvert blað er undir gleri í kassa og lýsingin er sérhönnuð svo letrið skemmist ekki. Í NZZ mátti lesa eftirfarandi; Es ist ein erhabenes Gefühl, die von Hand beschriebenen Blätter mit allen Durchstreichungen und Korrekturen vor sich zu haben. Fast jede Seite strotzt von sorgfältig zu Papier gebrachten mathematischen Gleichungen. Daneben nimmt sich eine ebenfalls ausgestellte Postkarte an seine Mutter, in der Einstein ihr freudig von der Bestätigung der allgemeinen Relativitätstheorie durch eine von Sir Arthur Eddington geleitete britische Expedition berichtet, rührend aus. Nebenbei schreibt er seiner Mutter, dass er es bedauere, dass sie sich nicht gut fühle.  En ég get ekki lengur stutt stefnu Ísrael gegn íbúum Palestínu. Orðið þjóðarmorð (genocide) á hinsvegar ekki rétt á sér í þeirri umræðu. Slík orð má ekki skrumskæla.

Haukur Kristinsson (IP-tala skráð) 19.3.2010 kl. 20:48

3 identicon

Man, þegar ég sem unglingur, studdi heils hugar Ísraelsmenn í sex daga stríðinu. Man einnig eftir mynd af Ólafi Thors og Ben Gurion á Þingvöllum. Það voru heillandi leiðtogar tveggja smáþjóða, með rómantíska fortíð.

En, vegna atferlis Ísraelsmanna á herteknu svæðunum nú, koma manni í hug tvö orð þekkt úr sögu tuttugustu aldar.

Lebensraum  og  untermensch.

einsi (IP-tala skráð) 19.3.2010 kl. 21:21

4 identicon

Ég hef farið nokkrar ferðir um Ísrael og Jórdaníu. Þau lönd áttu í upphafi að vera eitt og sama landið fyrir gyðinga sem bedúina (Araba). Í einni ferðinni sagði mér leiðsögumaður sem var bedúini, að þau lög væru um allan heim Araba að eyðimörkin væri einskismanns land. í ríki Ottómana var sami skilningur á landi og eignarrétti á því. Menn eignuðust ekki landið nema þeir hæfu ræktun á því.

Þessi umræddi viðburður að byggja í Austur-Jerúsalem er sama og að byggja  í eyðimörk. Um er að ræða hæð sem kölluð er Pisgat Ze´ev og þar er ekkert land tekið aðeins nýtt á landi sem gyðingum var ætlað en Arabar hafa einmitt verið sá aðili sem "tók landið" sé miðað við að Transjórdanía var gjöf Breta til þessara þjóða. En að þær geti ekki lifað í friði er mér vonbrigði því gyðingar hafa komið vel fram við Arabana.

Hússein Saudi, faðir núverandi konungs Saudi-Arabíu sagði :"Bara að Arabar og gyðingar gætu búið saman því Arabar myndu hagnast á þvi".

Mér finnst sumir sem nota hér orðin "lebensraum" og slíka heiti skauta framhjá sögulegum staðreyndum og snúa "Faðirvorinu" uppá þú veist, þann í neðra!

kær  kveðja

Snorri í Betel

snorri í betel (IP-tala skráð) 20.3.2010 kl. 00:12

5 identicon

Snorri,

Aðalatriðið er, að Ísraelsmenn eru að brjóta alþjóðalög  með framferði sínu á herteknu svæðunum, þ.m.t. Austur-Jerúsalem. Landamæri Ísraels hafa legið ljós fyrir frá 1948.

Með því að sölsa undir sig annarra manna land, og haga sér þar, eins og staðreyndir sýna, þá er ekki nema von að rifjuð séu upp orðin tvö. Lebensraum og untemensch. 

Kannski skýrir það líka hve Ísrael er orðið illa kynnt  víðast hvar. Því miður.

Þar sem þú ert, Snorri, þekktur að guðsótta og góðum siðum, þá trúi eg ekki að þú mælir bót brotum á alþjóðalögum Blikka

einsi (IP-tala skráð) 20.3.2010 kl. 17:51

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband