"Að hugsa um hvað við erum að gera."

Í dag ók ég á minnsta fjögurra manna bílnum í umferðinni, Fiat 500, frá Siglufirði til Reykjavíkur. p1011473.jpg

Ég hafði skilið hann eftir á Ólafsfirði í október í fyrra eftir skemmtun þar í tilefni af hálfrar aldar starfa minna á landsbyggðinni sem skemmtikraftur, en þá dundi yfir fyrsta kafhríð vetrarins með ófærð, sem hentaði ekki fyrir sumardekkin á Fiatinum.

Snillingurinn Sigurjón Magnússon tók hann að sér og lagfærði bilun í viftu og ég fór nú á honum yfir Lágheiði til Siglufjarðar á fimmtudag, þar sem hann stóð fyrir utan Síldarminjasafnið þar til í dag. dscf5905.jpg

Var það gert til að gefa tóninn fyrir tveggja stunda fjölmenna tónleika í safninu í gærkvöldi, þar sem mér veittist sú ánægja að vinna með Sturlaugi Kristjánssyni og hljómsveit á hans vegum við að flytja lög af margvíslegum toga frá ferli mínum.

Það var bíll af þessari gerð sem ég nefndi "Fiat-lús" í laginu Kappakstri, sem Gunnar og Felix hafa endurvakið og var meðal laga sem ég flutti á þessum tónleikum eftir nær hálfrar aldar hlé. 

 Auðvitað skaust ég á Fiatinum upp í Siglufjarðarskarð og endurlifði þá tíma þegar maður fór á "Litla gul", NSU-Prinz, um allt land í upphafi ferilsins jafnt sumar sem vetur. dscf5902.jpg

Prinzinn var fyrsti GTI-bíllinn að því leyti að hann var afar kraftmikill, 30 hestöfl, sem fóru létt með að skjóta aðeins 480 kílóa kvikindinu áfram og taka aðra og miklu stærri bíla þess tíma í bakaríið. 

Fiat 500 var hins vegar aðeins 13 hestöfl í upphafi og aldrei aflmeiri en 18 hestöfl. Í mínu eintaki er minnsta bílvél á Íslandi, 499cc, skráð 18 hestöfl, en mig grunar að vegna þess að tvívegis hefur vélin í þessum bíl yfirhitnað skili hún varla meira en 13 hestöflum. 

Engu að síður var þessi bíll upphaflega hannaður til að geta þotið þindarlaust á 95 kílómetra hraða ef vegurinn var láréttur og logn eða meðvindur. 

En á leiðinni milli Siglufjarðar og Reykjavíkur eru margar brekkur og vindar geta blásið á móti. 

Þar með er komin upp sú staða að maður reyni eftir bestu getu að tefja ekki fyrir hraðari umferð þegar ekið er hægar en á 90. 

Margt athyglisvert kemur upp þegar reynt er að leysa þetta verkefni. Fiatinn er mjósti bíll flotans, feti mjórri en minnstu nýju bílarnir og því ætti að vera auðvelt að hleypa fram úr. 

Ég gef stefnuljós til hægri og vík út á brún til merkis um að ég sé meðvitaður um framúrakstur, sé hann í bígerð. 

Með því fylgir að þegar viðkomandi bíll fer fram úr mér, hægi ég á mér eins og þarf til þess að framúraksturinn taki sem stystan tíma og verði sem öruggastur. 

En hvað eftir annað þegar verið var að leysa úr þessu í dag og hraðskreiðari bílar að fara fram úr mér, var eins og sumir bílstjórar, sem komu á móti, reiddust mjög. 

Í stað þess að hnika sér út á kantinn héldu þeir sig við miðlínuna, flautuðu og blikkuðu, gáfu í, og virtust gera allt sem þeir gátu til að gera ástandið sem hættulegast. 

Mér varð hvað eftir annað hugsað til orða sýslumannsins á Selfossi í fyrradag í spjalli okkar Andra Freys Viðarssonar við hann. Ólafur Helgi taldi mikilvægast að ökumenn "hugsuðu um það sem þeir væru að gera" og átti við það að kæruleysi, sofandaháttur og hugsunarlaust tillitsleysi væru mestu bölvaldarnir í umferðinni. 

Nokkrum sinnum kom það fyrir í dag að framundan var blindhæð og vegna þess að ég sá fyrr yfir hana en sá sem vildi fara fram úr mér, gaf ég stefnuljós til vinstri og vék inn að miðlínu til þess að vara hann við. 

Langflestir ökumannanna, sem ég varaði við, áttuðu sig á þessu og veifuð mér þakksamlega þegar ég liðkaði fyrir þeim eins fljót og vel og hægt var þegar komið var í betri skilyrði. 

Nokkrir ökumenn virtust hins vegar leggja þetta út á versta veg, þ. e. að ég væri með frekju og dónaskap, flautuðu og blikkuðu og létu óánægju sína í ljós en voru síðan fljótir að hætta því þegar þeir sáu, af hverju ég hafði gert þetta. 

Allt ber þetta að sama brunni, í átt til þess sem sýslumaðurinn sagði. Það er ekki aðeins að menn hugsi ekki um það sem þeir gera eða beri að gera, heldur virðast þeir ekki heldur hugsa um það sem aðrir eru að gera eða að horfa af yfirsýn yfir það sem er í kringum þá. 

 

Pri 


mbl.is Umferð mjög hæg
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Aðalsteinn Agnarsson

Ómar, þú varst heppin að sleppa heill  suður.

Aðalsteinn Agnarsson, 27.6.2010 kl. 22:28

2 Smámynd: Aðalsteinn Agnarsson

Þessi bíll er eins og mús.

Aðalsteinn Agnarsson, 27.6.2010 kl. 23:14

3 Smámynd: Ómar Ragnarsson

Enda var fyrirrennari hans, Fiat eldri 500, kallaður "Topolino" sem er ítalska nafnið á Mikka mús.

Ómar Ragnarsson, 27.6.2010 kl. 23:29

4 Smámynd: Aðalsteinn Agnarsson

Þú ert alltaf flottur Ómar.

Aðalsteinn Agnarsson, 28.6.2010 kl. 00:03

5 Smámynd: Dingli

Það á að banna svona pöddur á þjóðvegum landsins, allavega Hringveginum. Stórjeppamógúll á leið í sveitasæluna dólandi sér á 120 með 30 fermetra luxusvillu dinglandi á króknum þarf ekki annað en að missa vindilinn í klofið--slaa-babss! Og engin padda lengur!

Það sér hver maður að sonalagað getur ekki gengið.

Dingli, 28.6.2010 kl. 03:05

6 Smámynd: Einar Steinsson

Ég bý í Austurríki og hérna sér maður öðru hvoru bíla sem heita "Puch 500". Þeir voru byggðir á Fiat 500 með framleiðsluleyfi en Steyr-Daimler-Puch sem framleiddu þá notuðu sína eigin vél og drifrás. Vélin var flöt tveggja sílendra 16 hestöfl. Ég hef stundum spáð í að reyna að eignast eina svona "mús"

http://en.wikipedia.org/wiki/Puch_500

Einar Steinsson, 28.6.2010 kl. 18:07

7 Smámynd: Ómar Ragnarsson

Steyr-Puch 500 var að öllu leyti eins og Fiat 500 nema að vélin var "boxara-vél" með tvo lárétta strokka, sem lágu hvor á móti öðrum líkt og í Citroen bragga.

Einhvern tíma sá ég svona bíl auglýstan á Ebay, en það þarf talsverða yfirlegu til að rekast á slíkt fágæti. 

Ómar Ragnarsson, 29.6.2010 kl. 00:17

8 Smámynd: Dingli

Hef ef til vill ekki fylgst nógu vel með, en hvar er Prinzinn? Sá hann síðast á planinu við útvarpshúsið.

Dingli, 29.6.2010 kl. 22:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband