Jarðvegur hatursins.

Það er þekkt fyrirbæri að efnahagssamdráttur og kreppa eykur á úlfúð, deilur, hatur og illvirki og magnar upp stríðshættu.

Þetta gerðist á Sturlungaöld og þess vegna var þá meiri ófriður á Íslandi og fleiri níðingsverk unnin en á nokkrum öðrum tíma í sögu landsins.

Ef efnahagur Vesturlanda hefði haldið áfram að blómgast eftir Locarnosamningana við Þýskaland á þriðja áratugnum hefði Hitler varla fengið þá fótfestu sem hann fékk.

Nasistarnir nærðust á hatursáróðri og fordómum.

Þótt færa megi að því rök að flesir verstu illvirkjar mannkyns myndu fremja voðaverk sín, hvernig sem umhverfisaðstæður eru, verður því ekki neitað að jarðvegurinn fyrir þá marga eru fordómar, hatur og heift.

Þann jarðveg hefur verið að finna í röðum margra stuðningsmanna nýrra hreyfinga í Evrópu sem vilja skera upp herör gegn því þjóðfélagi jöfnuðar, mannréttinda, samkenndar og umburðarlyndis sem ríkt hefur á Norðurlöndum.

Jussi Halla-Aho jafnar saman hatursáróðri sínum og boðskap Kóransins og kemur þannig upp um fáfræði sína og fordóma, því að þessari fullyðingu hans má hvergi finna stað í Kóraninum.

Hann hefur líkt innflytjendum við verstu glæpamenn okkar samtíma og gengið í því efni lengra en Hitler, sem líkti Gyðingum við rottur og sníkjudýr en gekk aldrei svo langt að segja að þeir væru versta tegund glæpamanna, sem til væru.

Kristur sagði ekki að ástæðulausu: "Sælir eru friðflytjendur, því þeir munu Guð sjá", heldur var boðskapur hans sá að ekki mætti eitra jarðveg þjóðfélagsins með hatri og mannfyrirlitningu, heldur rækta hann í þágu friðar og kærleika sem sprytti upp á því góða sem til væri sáð, eins og hann lýsti í sögunni um sáðmanninn sem fór út að sá.  

Boðskapur margra af fylgjendum öfgahreyfinganna í Evrópu er litaður af hatri friðarspilla.

Jussi Halla-Aho, sem segist verða fyrir einelti, hefur ekki haft sóma af þeim skoðunum, sem hann hefur breitt út.  Hann og aðrir sem hvetja til illinda bera vissa ábyrgð. Á hinn bóginn ber að varast að gjalda líku líkt og efna til ófriðar með honum og skoðanabræðrum hans eða kenna þeim um mesta ódæði, sem framið hefur verið á Norðurlöndum í 66 ár.

Ekki má líða að hatrið breiðist út, því að það er vatn á myllu þeirra sem vilja þjóðfélagsgerð Norðurlanda feiga.

Og í kristnu samfélagi mega ekki gleymast orð Krists sem sagði okkur að elska óvini okkar og biðja fyrir þeim.


mbl.is Segist verða fyrir einelti vegna Breiviks
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ómar ! !

Þú verður að kynna þér umræður í Evropu sem er að gerast núna. Fjöldi ráðamanna: Angela Merkel, Cameron, og m.fl. segja að multikultur (fjölmenningarsamfélag) sé dæmt til að misheppnast. Við skulum ekki hæla norðurlöndum fyrir mannréttindi eða umburðarlyndi.

Þeir eru akkúrat núna að uppskera afrakstur af þeirri fávisku í Noregi. Og að vera með sér meðvitaður um sitt land og uppruna, er í dag talið "rasismi" af verstu gerð.

Hvernig framvinda verður t,d, í Svíþjóð, sem hefur flestar nauðganir í Evrópu, og innflytjendur kalla sænskar stúlkur "Svennehoror",

Þetta er bara afrakstur á "umburðarlyndi" og heimsku ráðamanna.

Hefur þú kynnt þér hvernig fjölmenningar samfélagið er að þróast í London? Er það þetta "umburðarlyndis" samfélag sem þú vilt að þínir afkomendur fái að lifa með? HUGSAÐU!

Jóhanna (IP-tala skráð) 5.8.2011 kl. 16:17

2 identicon

Sammála Jóhanni ættir að lesa þig aðeins um hvað er að gerast í Evrópu.

Gettó eru löngu byrjað að myndast í mörgum borgum og fólk sem eru ekki múslímar verða fyrir miklum aðkasti þanga til þau eru rekinn í burtu svo múslíma fjölskylda getur flutt inn.

Og það er nánast nauðgunar bylgja í gangi í Norðulöndunum og flestir gerendur eru frá Sómalíu.

Sérð bara að núna eru allir hægriflokkar að vinna kostningar sem eru með á stefnuskránni að hindra fleiri innflytjendur komi í landið.

Nema kannski núna í Noregi því þetta hryðjaverka fífl hefur komið óorð á alla hægri flokka þar í landi.

kari (IP-tala skráð) 5.8.2011 kl. 16:57

3 identicon

Í múslimaríkjum hvar er aldurinn við að maður taki sér konu? Minnir í frétt sem vísaði til að fertugur maður væri að taka til sín tíu ára stelpu sem kvonfang. Finnst þér það eitthvað annað en barnaníð?

h (IP-tala skráð) 5.8.2011 kl. 18:57

4 identicon

Það er nú klént að blanda kristni inn í þetta, biblían er púra stríðstól, hún er full af tilskipunum um morð og yfirgang.
Eitt dæmi af MÖRGUM
“Do not think that I came to bring peace on Earth; I did not come to bring peace, but a sword. For I came to set a man against his father, and a daughter against her mother, and a daughter-in-law against her mother-in-law; and a man’s enemies will be the members of his household. He who loves father or mother more than Me is not worthy of Me; and he who loves son or daughter more than Me is not worthy of Me. And he who does not take his cross and follow Me is not worthy of Me. He who has found his life will lose it, and he who has lost his life for My sake will find it.” (Matthew 10:34-39 NASB)

Að auki tók hann 100% undir allt sem GT sagði, það er hreinlega óafsakanlegt með öllu að taka undir slík skrif.

Disclaimer
Jesu var aldrei til;

DoctorE (IP-tala skráð) 5.8.2011 kl. 21:33

5 Smámynd: Ómar Ragnarsson

Þið segið að það hafi myndast gettó í mörgum borgum Evrópu. Á dögum Hitlers voru gettóin þyrnir í augum hans. Hann sá aðeins eina lausn við því: Að "hreinsa" Evrópu af Gyðingum.

Hvernig eru hugmyndir ykkar, sem hér skrifið að ofan, um að "hreinsa" burt gettó Evrópu?

Ómar Ragnarsson, 5.8.2011 kl. 23:49

6 identicon

Einu sinn grínisti - ávallt grínisti. Ég held að þú vitir ekkert um utanríkismál.

Rétthugsun (IP-tala skráð) 6.8.2011 kl. 00:19

7 identicon

"Samkend og umburðarlyndi" Þótt K sýni umburðarlyndi við I í 1000 ár, þá kemur I aldrei til móts við K því í grunnfílósófíunni hjá I í 1450 ár er K óvinur þar til hann undirgengst I. Ég hélt að þú værir það vel að þér í þessum málum að ekki þyrfti að árétta það.

Þegar minkurinn er kominn inn í samfélagið er ekki hægt að útrýma honum.Það er gettó í Malmö sem heitir Rosengard og samanstendur af 99% múslimum.Þetta gettó er að útrýma sér sjálft með íkveikjum í bílum,stigagöngum bílakjöllurum, ruslagámum o.mf. Þegar slökkvuliðið mætir í fylgd með lögreglu, þá byrjar steinkast með meiru á björgunasveitina, bæði farartæki og menn.Eins og ég sagði í upphafi þá samlagast ekki múslimar vestrænum lýðræðisríkjum og hafa engann áhuga á því. Það eina sem þeir gera er að heimta, heimta og HEIMTA og koma ekki til móts við samfélagið, því þeim er illa við það.Múslimar eru hér til að yfirtaka og ekkert annað.HUGSA!

V.Jóhannsson (IP-tala skráð) 6.8.2011 kl. 01:04

8 identicon

Þvílíkt og annað eins, nákvæmlega það sem Ómar er að vara við' birtist hér á commentunum eingöngu hatur. Kristur kenndi elska skaltu náungann eins og sjálfan þig. Sá yðar er saklaus er kasti fyrsta steininum. Hvað er eiginlega í gangi. er samfélagið orðið svona sjúkt að það sé ekki lengur hægt að nota það góða sem kemur frá kenningum Krists vegna þess að það sé úr Biblíunni. Þið eruð aumkunarverðir.

Rafn Haraldur Sigurðsson (IP-tala skráð) 6.8.2011 kl. 01:55

9 identicon

Eg er samala sidasta rædumanni.  Manhatur er ekki neitt til ad bygga framtidinnina å. Hofum thad i huga ad oll hofum vid rett a ad lifa a thessari jor og tha skirftir thad einu kvort vid erum kristinn eda muslimar.  Munnum ad kærleikurinn og mangæska er thad afl sem til tharf til ad upprøta manvonsku og ofbeldi.  Godar stundir.  Fra Noregi

Sævar Gundi Sævarsson (IP-tala skráð) 6.8.2011 kl. 06:47

10 identicon

Það er nú reyndar ekki rétt að Jesú hafi sagt þetta með syndlausa og að kasta steininum, það er seinni tíma tilbúningur sem kom í biblíu árhundruðum seinna, líklega frá einum þýðenda biblíu.
Biblían hefur tekið sífeldum breytingum til að falla að siðferði manna á hverjum tíma, við sjáum þetta hér á íslandi, td í nýjustu þýðingu þar sem breytt er orðalagi á ýmsum stöðum, eins og með samkynhneigða.
Gunnar Á krossinum telur sitt eintak af biblíu vera heilagra en það sem ríkiskirkjan er með.. en það er ekki original eintak, original eintak er ekki til. Megnið af öllum sögum NT eru falsaðar; Þetta getur her og einn séð með því einu að lesa þær; Aðrir hafa hreinlega sannað það.

Eins og ég sagði þá tók meintur messías 100% undir orð gamla testamenntis, að það væri 100% orð guðs, þar mætti ekki breyta einum staf.


Og hvert var hans helsta hlutverk? Jú það var að bjóða ukkur fyrirgefningu fyrir erfðarsyndina(Adam & Eva að borða eplið), ef við skráðum okkur ekki í kristinn söfnuð að þá ætlaði hann að pynta okkur til eilífðar.
Í gegnum aldirnar föru kristnir menn myrðandi um heim allan, útrýmdu heilu þjóðflokkunum, rændu og rupluðu í nafni Jesú; Héldu þræla í nafni jesú.
Biblían er nefnilega þannig bók að hver og einn getur lesið nákvæmlega það sem hann vill út úr bókinni, alveg eins og norski morðhundurinn.
Slíkar bækur eru ónýtar sem siðferðisviðmið; Það eina sem heldur ykkur(Sem eruð normal) inni í þessari trú er vanþekking ykkar, einnig þa að fra barnaaldri hefur ykkur verið innrættir sma hlutar úr bókinni, sagt að ættingjar ykkar og vinir sem eru látnir séu hjá Jesú.

Jesú var aldrei til í alvörunni; Muhammad var þó til og notaði sér trúarbrögð til að komas sinni twisted heimsmynd á koppinn

DoctorE (IP-tala skráð) 6.8.2011 kl. 09:51

11 identicon

Rafn H. S. Múhamed sagði: Ef maðurinn beygir sig ekki undir Islam, þá drepið hann. Þetta viðgengst enn í dag, því það má eigu breita sem stendur í Kóraninum og þú veist kannski þótt þú búir í vernduðu umhverfi, að múslimskar konur sem líta við öðrum mönnum en múslimskum eru nánast undantekningarlaust drepnar og þá af sínum ættingum. Það sem er vinsælast í dag hér á vesturlöndum er að henda þeim fram af svölum í háhýsum, því þá lítur það út sem sjálfmorð og engin er sakfeldur fyrir MORÐIÐ.Þú ættir að flytja inn í eitt svona getto á norðurlöndum og sjá veruleikann í réttu ljósi, því þar nærist hatrið í moskunum. - Þú getur líka kynnt þér hvernig farið er með þá krisnu í Egyptalandi í dag, bara svona sem dæmi.

V.Jóhannsson (IP-tala skráð) 6.8.2011 kl. 11:18

12 identicon

V.Jóhannsson.. Og hvað segir biblían um það sama? Þú verður að athuga að kóran er byggður á biblíu; Meira að segja sami guð; Þeir viðurkenna Jesú sem spámann en ekki guð.

Það er ekki hægt að standa og benda á eitthvað ógeð í íslam og vera svo sjálfur kristinn/gyðingur;
Trúarbrögð Abrahams eru algerlega jafn ógeðfelld.
Það sem gerir líf manna á vesturlöndum frjálsara og réttlátara er ekki kristni, það er hversu mikið við hunsum úr kristni/biblíu.

Kynna sér þetta...

DoctorE (IP-tala skráð) 6.8.2011 kl. 11:52

13 identicon

Ómar - þú byrgir ekki brunninn eftir að barnið er dottið ofaní.Gettóin eru komin til að vera með allri þeirri óhamingju sem þeim fylgir og sem koma niður á öllu samfélaginu, en það finnast einstaklingar í stjórnmálum sem viðurkenna ekki mistök af ótta við að missa atkvæði frá illa upplýstum lýðnum í landinu. Fjölmiðlar t.d. í Svíþjóð gera allt til að hylma yfir afbrotamenn af erlendum uppruna til að valda ekki óróa hjá fólki, en ef hann er sænskur, þá kemur nafn og jafnvel mynd af viðkomandi. Því er troðið inn í fólkið að afbrotamenn í Svíþjóð séu "púrsvenskar" en ekki innflytjendur.Censur!!!

DoctorE- Abraham, ert þú að tala um mann sem fór frá Úr til Kananalands fyrir rúmum fimm þúsund (5000) árum síðan? Ég er að tala um fólk í dag, sem iðkar trú friðarins í allri sinni dýrð með fjölda nauðgunum, ránum, misþyrmingum, íkveikjum, tryggingasvindli með fleiru hér á vesturlöndum og lítur á krisna sem hunda, en margir af þessum hundum skilja ekki neitt og taka endalaust á móti með kærleik sem verður dýrkeyptur fyrir rest.Basta.

V.Jóhannsson (IP-tala skráð) 6.8.2011 kl. 12:35

14 identicon

Já kristnir í dag sem eru búnir að DISSA stóran hluta biblíu.  Kristnir í USA sem hindra sjálfsögð mannréttindi samkynhneigðra, kristnir í Afríku sem BRENNA börn og konur fyrir galdra.
Hey já og bandaríski herinn sem réttælir og þjálfar upp  hermenn til að sprengja upp fólk með kjarnorkusprengum.. allt réttlætt með biblíu
http://doctore0.wordpress.com/2011/08/04/air-force-halts-christian-war-course/

 
Það er ekki neinn kærleikur í biblíu, ekki frekar en í kóran; Hver sá sem sér þetta ekki er einfaldlega blindaður af græðgi í það sem hann getur ekki fengið, eilíft líf í lúxus.
Menn verða að vera siðblindir til að falla fyrir þessum ritum

DoctorE (IP-tala skráð) 6.8.2011 kl. 12:39

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband