Dýrð sumarblíðunnar.

 IMG_0439

Síðustu dagar hafa verið einstakir og sumrin síðustu ár eru mun hlýrri og blíðviðrasamari en ég minnist.

Hér  fyrir ofan er mynd tekin af svölum blokkarinnar, sem ég bý í, og engu er líkara en að settur hafi verið logandi gullskjöldur upp á topp Landsvirkjunarhússins.

Þetta sést betur ef tvísmellt er á myndina og hún stækkuð. IMG_0365

Á flugi yfir Hrafntinnusker, Jökulgil, Frostastaðavatn og Tungnaá að lendingarstað við Veiðivötn bar margt fyrir augu í dag og ég skutla kannski inn nokkrum myndum úr ferðinni. IMG_0414Jökulgilið er risavaxinn undraheimur óteljandi gilja af öllum stærðum, gerðum og litum.

Hraunin, sem hafa runnið út í Frostastaðavatn, eru líka sérstök. IMG_0388Og fjölbreytni Veiðivatna er rómuð.


mbl.is Silfurský á himni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband