Spennandi möguleiki.

Stjórnmál hafa ekki gott orð á sér hér á landi eftir Hrunið. Þau sukku það djúpt í einstæðum darraðardansi í Borgarstjórn Reykjavíkur frá 2007 til 2009, að ekki dugði þótt borgarfulltrúar tækju sig eftirminnilega í gegn með gerbreyttum vinnubrögðum í lok kjörtímabilsins, fóru upp úr skotgröfunum og unnu saman sem heild það sem eftir var kjörtímabilsins á þann hátt að einstætt var í sögu borgarstjórnar.

Sem borgarstjóri átti Hanna Birna Kristjánsdóttir mikinn þátt í því en samt hefði ekki tekist svona vel til nema fyrir samstarfsvilja allra. 

En óánægja með stjórnmál hafa oft fengið útrás hjá kjósendum í sveitarstjórnarkosningum, svo sem dæmin frá 1958, 1978 og 1982 sýndu, og vantraust kjósenda á stjórnmálamönnum réði því ferðinni 2010. 

Engu að síður hafa kannanir sýnt, að af einstaklningum hefur Hanna Birna notið mest trausts. 

Hún kom á óvart enda voru margir tortryggnir þegar hún fór út í stjórnmálin. "Alin upp sem puntudúkka í Valhöll". "Bara kjafturinn, ekkert annað". Svona ummæli mátti heyra. 

En Hanna Birna kom með ný vinnubrögð og nýja pólitík inn í borgarmálin.

Íslensku stjórnmálaflokkarnir hafa átt erfitt eftir Hrunið, sem olli trúnaðarbresti milli þeirra og mikils meirihluta kjósenda ef marka má traust þeirra á Alþingi. 

Af þeim sökum veitir þeim ekki af að fá sem frambærilegast fólk til að starfa fyrir sig og skiptir ekki máli hver flokkurinn er.

Hætt er við að svipaðar efasemdir komi upp nú og þegar Hanna Birna haslaði sér fyrst völl í stjórnmálum. 

Minnt verður á að borgarmálapólitík og landsmálapólitík séu ólík og ekki sjálfgefið að góð frammistaða í sveitarstjórnarmálum sé ávísun á það sama í landsmálum. 

Í augum flestra er Hanna Birna þar alveg óskrifað blað og lítið vitað um þekkingu hennar á landshögum utan höfuðborgarsvæðisins auk þess sem ekki er á almanna vitorði hvernig hugur hennar er til ýmissa ágreiningsmála sjálfstæðismanna. 

Á móti kemur að Hann Birna hefur ekki aðeins beitt sér fyrir nýjum vinnubrögðum og stjórnunarstíl þegar hún var borgarstjóri, heldur hefur hún fullan hug á því að innleiða nýjar hugmyndir í almennt stjórnmálastarf. 

Framboð hennar á landsvísu er því spennandi möguleiki og ég ekki frá því að nú sé rétti tíminn fyrir hana að láta slag standa og líta til þess að oddvitahlutverk í bæjarstjórn og siðar borgarstjórn Reykjavíkur voru oft stökkpallur til forystu í Sjálfstæðisflokknum og forsætisráðherraembættis eins og þessi nafnaruna sýnir: Bjarni Benediktsson, Gunnar Thoroddsen, Geir Hallgrímsson, Davíð Oddsson.


mbl.is Útilokar ekki neitt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þessu einvalaliði sem hefur stjórnað borginni,síðasta áratug. tókst það sem maður hélt að væri ekki hægt, að keyra Orkuveituna því sem næst í þrot. Og er Hanna Birna engin undantekning, því undir hennar stjórn var Orkuveitan í mörg ár.

Jón Sig. (IP-tala skráð) 7.9.2011 kl. 22:40

2 Smámynd: Gústaf Níelsson

Hvers á Þorsteinn Pálsson að gjalda, Ómar?

Gústaf Níelsson, 8.9.2011 kl. 00:13

3 Smámynd: Ómar Ragnarsson

Þorsteinn Pálsson var aldrei borgarstjóri eða oddviti Sjálfstæðismanna í Reykjavík.

Ómar Ragnarsson, 8.9.2011 kl. 02:16

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband