Stóð mjög tæpt 2009.

Það fór ekki hátt sem gerðist þegar Búsáhaldabyltingin stóð sem hæst, að litlu munaði að lögreglan yrði algerlega uppiskroppa með búnað, sem hún notar í óeirðum.

Þessu tókst að bjarga í horn samkvæmt þeim upplýsingum sem ég fékk þá. 


mbl.is Alvarlegt þjóðfélagsástand ríkjandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhannes Laxdal Baldvinsson

Uppiskroppa með hvað, Ómar? Kylfur, táragas? Svona fullyrðingar þarf að skýra nánar

Jóhannes Laxdal Baldvinsson, 18.10.2011 kl. 19:25

2 Smámynd: Ómar Ragnarsson

Uppiskroppa með gas. Ég gagnrýndi á sínum tíma að ekki skyldi rannsökuð nánar framganga lögreglunnar við Rauðavatn og seinna, þegar ég  var sjálfur viðstaddur bak við Alþingishúsið var ég gagnrýninn á sumt af því sem hún gerði.

Á hinn bóginn voru oft áberandi ofbeldismenn, sem sækjast eftir hasar í mótmælaaðgerðum og koma óorði á friðsama mótmælendur.

Vegna tilvistar slíkra manna viðurkenni ég að lögreglan þarf að hafa yfir þeim búnaði að ráða, sem notaður er í slíkum tilfellum.

Mótmælendur sjálfir viðurkenndu þetta í raun þegar þeir í síðustu mótmælaaðgerðunum slógu skjaldborg um lögregluna til að verja hana fyrir þessum fáu en áberandi ofbeldisseggjum.

Ómar Ragnarsson, 18.10.2011 kl. 19:46

3 Smámynd: Sigurður Haraldsson

Lögregla verður að gera upp hug sinn hverja hún vill verja í framtíðinni okkur eða stjórnmálamafíuna sem er ná tengt bankamafíuni og dómstólum!

Sigurður Haraldsson, 18.10.2011 kl. 20:06

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband