Jákvætt við leysinguna: Snjóalög minnka.

Til þess að sú flughálka myndist á vegum, götum, gangstéttum og bílastæðum verður að vera fyrir hendi samþjappaður snjór sem er orðinn að klaka. img_2318.jpg

Því meiri snjóalög og frostum og hláku á víxl, því meiri hætta á umfangsmikilli hálku. 

Að sjálfsögðu er hálkan hið versta mál, en á móti kemur, að séu hún og bráðnunin hún nógu mikil, verður von til þess að það hláni í gegn þannig að svona svell myndist ekki aftur í sama mæli og nú er.  img_2323_2.jpg

Mikil hlýindi og minni snjóalög eru mér nokkurs virði persónulega eins og sést af þeim aðstæðum sem nú ríkja þar sem FRÚin stendur á Selfossflugvelli, en þar hefur ekki komið svona mikill snjór í sögu flugvallarins. 


mbl.is Kröftugri leysing í vændum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Auðvitað er leysingn jákvæð en hún þarf  bara að  vera almennileg. Þessi hrina dugar ekki til því strax kólnar aftur með éljum. Það þarf að koma góð hláka í svo sem viku.

Sigurður Þór Guðjónsson, 8.1.2012 kl. 13:36

2 identicon

Sem gamall Selfyssingur verð ég að leiðrétta þig vinur.

Núna er "venjulegur" vetur eins og gamlir Selfyssingar muna. Hefur bara ekki sést í ca 20 ár.

Fyrir svona rúmum 20 árum tók ég "torfæruæfingar" á Opel Cadett útbúnum keðjum á Selfossflugvelli, og slapp án þess að nota skóflu, enda bíllinn léttur. Ég var alveg hissa hvað ég gat þvælt bílnum.

Ári síðar var ég að þvælast þar með vini mínum á Range Rover, og sluppum við með naumindum af flugvellinum án þess að moka okkur upp.

Síðasti alvöru veturinn á Suðurlandi til þessa var 1989-1990, og síðasta alvöru stórhríðarbomban var í Desember 1999 (Mig minnir að það hafi verið fimmtudag eða föstudag í desemberbyrjun).  Svona með mínum augum séð, en ég er nú bæði háður veðri í mínu starfi, og hef gaman að grúska í þv, þannig að svona lagað gleymist ekki svo glatt ;)

Jón Logi (IP-tala skráð) 8.1.2012 kl. 17:05

3 Smámynd: Ívar Pálsson

Saltburður á götur og gangstéttir gengur á uppsafnaðan klakann og flýtir hlánuninni. En borgaryfirvöld takmarka saltið og fórna lífsgæðum og öryggi íbúanna í staðinn.

Ívar Pálsson, 9.1.2012 kl. 09:04

4 Smámynd: Ómar Ragnarsson

Þakka þér fyrir fróðleikinn, Jón Logi. En vinir mínir á Selfossi sögðu mér að síðasti gamlársdagur hefði verið hinn fyrsti í sögu vallarins sem þeir gátu ekki haldið þeim vana sínum að fara út á flugvöll og halda þar árlegan fund með tilheyrandi útdrætti á flugvélum.

Ómar Ragnarsson, 10.1.2012 kl. 11:03

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband