Öfgarnar í veðrinu.

Óskaplega er það leitt

sem almættið hér gaf:

Annað hvort er alltof heitt

eða að fenna í kaf.


mbl.is Hitinn hægði á smölun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

ÉG HELD ÉG GANGI EKKI HEIM! SÁLFRÆÐI 101 FYRIR SMALA.  (LAG: MY BONNIE...)

Í teitinu er aldrei  asi

á óþekktargemlingum þeim.

Ef gnægð er af drykkum og grasi,

ganga þeir alls ekki heim!

Þjóðólfur, bóndi að Frekjuskarði (IP-tala skráð) 29.8.2013 kl. 10:49

2 Smámynd: Þorsteinn Briem

Í dag, 29. ágúst, er höfuðdagur.

"Sú þjóðtrú hefur lifað lengi að veður breytist á höfuðdag og haldist þannig næstu þrjár vikur."

" Í Almanaki Þjóðvinafélagsins frá 1884 stendur þessi skýring:

"29. Augustus er kallaður höfuðdagur; hann var fyrrum haldinn heilagur í minningu þess að þann dag átti Heródes konungur Antipas að hafa látið hálshöggva Jón skírara, árið 31. e. Kr.""
Hvenær er höfuðdagur? - Vísindavefurinn

Þorsteinn Briem, 29.8.2013 kl. 15:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband