Ýmsar hliðar á samskiptum Rodmans við Norður-Kóreumenn.

Samskipti vestrænna þjóða við slæmar einræðisstjórnir hafa alla tíð orðið tilefni deilna um gagnsemi eða skaðsemi slíks.

Einræðisstjórnir geta oft á tíðum nýtt sér aðstöðu sína til að koma á fót afreksíþróttafólki í fremstu röð og þurfa svo sem ekki erlenda aðstoð til þess.

17 milljónir Austur-Þjóðverja gátu til dæmis komist í allra fremstu röð í flestum greinum íþrótta meðan DDR var og hét.

Ungverjar áttu besta knattspyrnulandslið heims á árunum 1950 til 1956.

Norður-Kóreumenn komu fyrst á óvart á HM í knattspyrnu 1966 þegar lið þeirra vann óvænt afrek þótt það kæmist ekki í úrslit.

Vel getur verið að það sé meira gagn en ógagn sem Dennis Rodman gerir með því að vera í vinfengi við harðstjórnina í Norður-Kóreu. Að minnsta kosti er opinn smá gluggi til vesturs í gegnum hann á meðan og kannski geta vitneskja og tengsl Rodmans gert gagn í heimalandi hans ef svo ber undir, án þess að hann þurfi beinlínis að rjúfa trúnað, sem hlýtur að vera skilyrði fyrir veru hans í Norður-Kóreu. 

Rodman varð þekktur fyrir skrautlega hegðun á leikvellinum á sínum tíma og fyrir það að vera næsta óútreiknanlegur í uppátækjum sínum. Það er því hægt að spyrja margra spurninga nú um þessi nýjustu uppátæki hans og hvort þau gætu skipt einhverju máli varðandi "vini" hans í Norður-Kóreu.

En reynslan sýnir að gagnvart firringu gerspilltra harðstjóra hrökkva áhrif eins aðkomumanns oft skammt.  


mbl.is Rodman til N-Kóreu enn á ný
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þorsteinn Briem

28.6.2008:

"Lögð hefur verið 260 metra löng flugbraut fyrir flygildi á Hólmsheiði."

"Fisfélag Reykjavíkur stendur að þessum framkvæmdum."

"Fisfélagið er flugíþróttaklúbbur og í honum eru rúmlega 100 manns sem fljúga á flygildum með eða án mótors og menn sem stökkva fram af hengjum og láta sig svífa á svifvængjum og svifdrekum."

Flugvöllur fyrir flygildi á Hólmsheiði


Frá fis-flugvellinum á Hólmsheiði

Þorsteinn Briem, 27.12.2013 kl. 20:31

5 Smámynd: Þorsteinn Briem

Steini Briem

Steini Briem

Ábyrgðarmaður skv. Þjóðskrá: Þorsteinn Briem

Þorsteinn Briem, 31.12.2013 kl. 00:03

6 Smámynd: Þorsteinn Briem

Steini Briem

Steini Briem

Ábyrgðarmaður skv. Þjóðskrá: Þorsteinn Briem

Þorsteinn Briem, 31.12.2013 kl. 00:06

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband