Táknrænar ljósmyndir.

Sú var tíðin að sæmilegt samband var á milli Rússlands og Bandaríkjanna, til dæmis á fyrra valdatímabili Pútíns. Bush_Putin_and_ZAZ_car

Ein af ljósmyndunum, sem birtar voru af Pútín og George W. Bush, þáverandi Bandaríkjaforseta, þegar hann var í opinberri heimsókn í Rússlandi, var fyrsti bíllin sem Pútín eignaðist.

Hann er af gerðinni ZAZ Zaphorozhets og var áratugum saman ódýrasti bíllinn sem framleiddur var í Sovétríkjunum sálugu, hannaður í kringum 1960, með loftkælda vél að aftan og afturdrif,ætlaður fyrir almenning í Sovétríkjunum á svipaðan hátt og Volkswagen í Þýskalandi.

Honum svipaði grunsamlega mikið til NSU Prinz 4, sem aftur var smækkuð stæling á Chevrolet Corvair. 
ZAZ 968. Putin

Pútín hefur mikið dálæti á þessum fyrsta bíl sínum, því að til eru fleiri myndir af honum þar sem hann stendur við hlið hans.  

Það sem er athyglisvert við myndina er, að bíllinn var framleiddur í Zaphorozhets í austurhluta Úkraínu þar sem nú er helsti átakapunktur Rússlands og Úkraínu eða öllu heldur Vesturveldanna og Rússlands.

En efnahagslegt samband Rússlands og Úkraínu hefur lengi verið mun nánara og flóknara en samband Kanada og Bandaríkjanna, vegna þess að á Sovéttímanum voru framleidd mikilsverð hergögn í Úkraínu, allt frá kjarnorkuvopnum og stórum herflugvélum til fjölbreyttra hergagna af ýmsum gerðum, að ekki sé minnst á framleiðslu Úkraínumanna á vörum til borgaralegra nota, eins og myndirnaf af Pútín, Bush og ZAZ-bílnum bera með sér. 

Ef korti af Úkraínu og Rússlandi er snúið á hvolf, blasir við nokkurs konar spegilmynd af Bandaríkjunum og Kanada. Og samband Rússlands og Úkraínu var líkast til mun nánara og flóknara en samband Kanada og Bandaríkjanna hefur verið. 

Það gæti útskýrt að hluta hinn sjúklega ótta og tortryggni, sem nú speglast í ýmsum orðum og gerðum Pútíns varðandi Úkraínudeiluna. 


mbl.is Fangaskipti í Úkraínu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þorsteinn Briem

Úkraína var í Sovétríkjunum en einnig til að mynda Eistland og Lettland, þar sem um fjórðungur íbúanna er af rússnesku bergi brotinn og þau ríki hafa verið í Evrópusambandinu og NATO frá árinu 2004.

"In the 2001 Ukrainian census, 8,334,100 identified as ethnic Russians (17.3% of the population of Ukraine [þar af um 5% á Krímskaganum]), this is the combined figure for persons originating from outside of Ukraine and the autochthonous population declaring Russian ethnicity."

Þorsteinn Briem, 27.12.2014 kl. 22:12

2 Smámynd: Þorsteinn Briem

Nú er um aldarfjórðungur liðinn frá því að Sovétríkin hrundu endanlega.

Þorsteinn Briem, 27.12.2014 kl. 22:23

3 identicon

Bandaríkin og Kanada áttu ekki í Styrjöldum eins og Pólverjar og Úkraínumenn áttu við Sovétmenn. Úkraínumenn 1917-1921, og Pólverjar 1919-1921, þae sem Pólverjar coru þá í endann einnig gegn Úkraínska Sovétlýðveldinu ef ég man rétt.
Það hefur alltaf verið grunnt á því góða þarna á milli æ síðan.
Fjöldi Rússa í sumum innlimuðum ríkjum á svo eina skýringu aðra en viðveru hers og vinsældir viðkomandi ríkis. Þarna voru markvissir þjóðflutningar í gangi. Nefni kannski Litháen, þar sem ómældum mannfjölda var stýrt til Síberíu, og Rússar settir upp í Litháen á meðan.
Mæli með KGB safninu í Vilnius....

Jón Logi (IP-tala skráð) 27.12.2014 kl. 22:34

4 Smámynd: Þorsteinn Briem

Rannsókn sýnir að fjórðungur rússneskra karlmanna nær ekki 55 ára aldri og Rússar undir þrítugu muna harla lítið eftir Sovéttímanum.

Þorsteinn Briem, 27.12.2014 kl. 22:38

5 identicon

DAVID ICKE - WW3 will bring in the New World Order & One World Government (Iran, Israel, Control)  

https://www.youtube.com/watch?v=7ChVA4P9aHI

Helgi Armannsson (IP-tala skráð) 28.12.2014 kl. 12:15

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband