Það hlýtur að koma að þessu. Af hverju ekki nú?

Það er varasamt að rugga stöðugleikabátnum, sem þjóðarskútan er um þessar mundir. Á hinn bóginn hlýtur að koma að því að aflétta gjaldeyrishöftum, þótt ekki sé nema að hluta og halda áfram þeirri vegferð sem hafin var í því skyni fyrir 4-5 árum. 

Ef krónan lækkar, er hætta á hækkun vöruverðs og verðbólgu, en á hinn bóginn er ljóst, að ef einhvern tíma á að taka slaginn, er það helst nú, þegar gengið er komið hættulega hátt. 

Ef það tekst að gera þetta án mikilla hræringa kann rétti tíminn að vera einmitt nú. 


mbl.is Ræða afnám hafta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þorsteinn Briem

"Fjórfrelsið gildir á öllu Evrópska efnahagssvæðinu og það felur í sér frjáls vöru- og þjónustuviðskipti, frjálsa fjármagnsflutninga og sameiginlegan vinnumarkað.

Að auki kveður samningurinn um Evrópska efnahagssvæðið á um samvinnu ríkjanna á svæðinu í til dæmis félagsmálum, jafnréttis-, neytenda-, umhverfis-, mennta-, vísinda- og tæknimálum."

Þorsteinn Briem, 12.3.2017 kl. 15:58

2 Smámynd: Þorsteinn Briem

Í dag:

"Öll fjár­magns­höft á ein­stak­linga, fyr­ir­tæki og líf­eyr­is­sjóði verða af­num­in með nýj­um regl­um Seðlabanka Íslands um gjald­eyr­is­mál.

Þetta kom fram á blaðamanna­fundi for­sæt­is- og fjár­málaráðherra en þeir kynntu breyt­ing­ar á reglu­gerð varðandi af­nám gjald­eyr­is­hafta.

Höft­in verða af­num­in frá og með þriðju­degi seg­ir for­sæt­is­ráðherra, Bjarni Bene­dikts­son."

Öll fjármagnshöft afnumin á þriðjudaginn

Þorsteinn Briem, 12.3.2017 kl. 16:08

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband