Getur lyfta verið smitdreifari?

Nokkur skipti hjá síðuhafa í nánd við fólk, sem reykir eða notar ilmvötn, gefa sennilega einhverja vísbendingu um dreifingu kórónaveirunnar. 

Í þessum tilfellum nægði eins metra reglan engan veginn til að halda andrúmsloftinu hreinu, og tveggja metra reglan virtist að vísu gefa skárri vörn, en samt ekki algilda heldur. 

Vindáttin skipti máli í þeim tilfellum, þar sem staðið var utanhúss og lengja tvo metrana talsvert, og lyftur virtust búa yfir aðstæðum, þar sem mengað loft gæti verið kyrrstætt í lokuðu rými lengi. 

Í einu tilfellinu gekk manneskja út úr lyftunni með angandi loft sem lagðist yfir þá, sem mættu henni og þegar komið var inn í lyftuna, var lyktin alls ráðandi. 

Nokkrum mínútum síðar þurfti að nota lyftuna aftur, og þá var "stækjan" þar enn. 

Nú er slíkt loft líklegra léttara en mettað öndunarloft úr lungum fólks, en svona atvik vekja umhugsun um það, hve mikið vandaverk smitvarnir geta verið. 

 

 


mbl.is Svona dreifir kórónuveiran sér
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þorsteinn Siglaugsson

Átta metra reglan er málið Ómar. Eða jafnvel bara neðanjarðarbyrgi.

Þorsteinn Siglaugsson, 26.9.2020 kl. 19:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband