Einn maður, ein hugmynd, eitt verðmætasta fyrirtæki íslenskrar sögu.

Latibær eða Lazytown var upphaflega ein hugnynd hjá einum manni, sem óx og dafnaði upp í það að verða verðmætasta vörumerki Íslands. 

Hugmyndin gekk ekki út á það að framleiða hráefni eða varning, sem mældur væri í tonnum og það  framleiddi heldur ekki orku eða söluvörur, sem gáfu af sér orkugjafa. 

Nei, allt og sumt sem þurfti var frjótt hugvit og líkamlegt atgervi framleiðandans, Magnúsar Schevings.

Enn í dag eimir eftir af þeim hugsunarhætti að þeir sem starfa við listir eða svonefndar skapandi greinar séu afætur á þjóðfélaginu.  

Þegar slíkt fólk er spurt hvað það hafi fyrir stafni og svarar því skilmerkilega, kemur ótrúlega oft önnur önnur spurning í kjölfarið, næsta dæmigerð: Já, einmitt það, en við hvað vinnurðu?


mbl.is Réttindin flutt út og Latabæ slitið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband