Var morðið á Kennedy vegna slysaskots lífvarðar hans?

Í gegnum tíðina hefur verið hægt að lesa ótal skýrslur um morðið á Johnn F. Kennedy og horfa á margar heimilarmyndir. 

Aðallega hefur verið hnotið um fjölda kúlnanna, sem hæfðu forsetann, og almennt um fjöldann, sem hleypt var af. 

En eitt atriðið hefur falist í ferli einnar kúlunnar, sem jafnvel hafi hæft bæði forsetann og Conally ríkisstjóra Texas, sem sat beint fyrir framan hann. 

Sýnist mörgum, að ferill þeirrar kúlu hafi verið tæknilega óhugsandi. 

Í umfjölluninni hefur sumum samt sést yfir það að forsetinn sat hærra en ríkisstjórinn, sem sat fyrir framan hann.  

Sú kenning, sem helst kemur til greina ef sleppa á vangaveltum um leyniskyttur og samsæri, er að vegna fátsins sem kom á alla í bílalestinni, hafi lífvörður hans sem var í næsta bíl á eftir, hleypt óvart af skoti, sem hæft hefði Kennedy í hnakkann og farið í gegnum höfuð hans, og verið greinilega eina skotið sem var algerlega banvænt og gat farið í gegnum höfuðið með margfalt meiri áverka en nokkuð hinna og einnig komist áfram í beinni línu yfir í ríkisstjórann. 


mbl.is Munu birta skjöl um morðið á J.F.K. á næsta ári
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Þórhallsson

Mér skilst að það hafi verið þannnig að hann ætlaði að fara að segja heimsbyggðinni frá því að USA væri með contanct við verur frá öðrum stjörnukerfum.

Æðstu topparnir í hernum og að öllum líkindum NEW-WORLD-ORDER-klíkan / Illumanti;

þeir vildu halda því leyndu og litu svo á að þessi aftaka hafi verið eina leiðin til þess að þagga niður í honum: 

https://www.audible.com/pd/Kennedys-Last-Stand-Audiobook/B08S1XM48Y

https://www.amazon.com/Exposing-U-S-Government-Policies-Extraterrestrial/dp/0982290209

Jón Þórhallsson, 23.10.2021 kl. 13:02

2 Smámynd: Jónatan Karlsson

Það eru óneitanlega margar tilgátur um ástæður og framkvæmd morðsins á Kennedy, en líklega er á þessari stundu aðeins hægt að fullyrða að um samsæri eða öllu heldur stjórnarbyltingu hafi verið að ræða.

Tilgátan um slysaskot lífvarðar í bílalestinni getur varla átt við rök að styðjast, því riffillinn sem hann hélt á bar örugglega ekki hljóðdeyfi og því hefði fjöldi vitna heyrt og séð hann hleypa af, en í þess stað báru þau að síðasta-og sjálft banaskotið hefði komið komið ofan af grashólnum.

Úr þessu verður varla skorið nema lík og sérstaklega höfuð forsetans verði rannsakað betur, en það á líklega það sama við um þá aðkallandi krufningu eins og segja má um afdrif og örlög gjaldeyrissjóðs íslensku þjóðarinnar sem þeir Davíð og Geir ráðstöfuðu í upphafi hrunsins - að það er einfaldlega ekki áhugi á að komast að hinu sanna.

Jónatan Karlsson, 23.10.2021 kl. 15:08

3 identicon

Hann vildi ríkisvæða Seðlabankann og ljúka Vietnamstríðinu. En hnakkaskotið kom auðsjáanlega aftan frá.

GB (IP-tala skráð) 23.10.2021 kl. 15:48

4 Smámynd: Ómar Ragnarsson

Skotið, sem kom í hnakkann og fór út í gegnum ennið, var svakalegt og gat alls ekki hafa komið frá Oswaldi né úr neinni annarri átt en aftan frá.  

Ómar Ragnarsson, 23.10.2021 kl. 16:21

5 Smámynd: Jón Þórhallsson

New-world-order klikan eru sitt fólk inn í öllum stjórnkerfum sem að skipta einhverju máli hér á jörðu og eflaust líka inn í rúv-sjónvarpi þar sem að þjóðin er forheimskuð og afvegaleidd vísvitnadi.

Þeir starfa oft bara á bak við tjöldin og nota venjulegt fólk / sína undirmenn sem málpípur  /strengjabrúður.

Jón Þórhallsson, 23.10.2021 kl. 19:32

6 identicon

Sæll Ómar,

Nei, þetta var ekki slysaskot, heldur mjög vel skipulagt af ásettu ráði, það voru þessi skuggastjórnvöld ásamt CIA og Mossad er stóðu að þessu, svo og höfðu vit á því að fela alla slóðina. Nú og í dag þá vill þetta lið alls ekki opinbera þessi gögn. Þeir hafa reyndar þurft að glíma við marga uppljóstrara og gengið frá þeim, svo og bannað bækur eins og t.d. Final Judgment eftir Michael Collins Piper heitinn. 
KV. Þorsteinn  

Final Judgment: The Missing Link in the JFK Assassination Conspiracy eBook  : Piper, Michael Collins: Amazon.in: Books
 
CMC. THE ITALIAN UNDERCOVER CIA AND MOSSAD STATION AND THE ASSASSINATION OF  JFK: Metta, Michele, DeBrosse, Jim: 9781719822664: Amazon.com: Books
Conspiracy theories

Þorsteinn Sch Thorsteinsson (IP-tala skráð) 23.10.2021 kl. 22:28

9 Smámynd: Jónatan Karlsson

A.m.k eitt höfuðskot kom frá hólnum, því höfuð JFK hentist aftur og til vinstri og slettur og beinflísar (sem Jaqulin reyndi að ná í á) þeyttust m.a. á lögreglumann á vélhjóli aftan og vinstra meginn við forsetabílinn.

Það vildu margir Kennedy feigan, t.d. Mafían (Files, Nicoletti ofl.) CIA (Charles Harrelson o.fl.) FBI og Mossad (v.Dimona)

Síðustu misserin er áberandi áróðurinn fyrir því að það sé nú bara best að trúa því að Oswald hafi staðið einn að þessu, líkt og hvað varðar skýringar yfirvalda á 11.sept.2001.

Jónatan Karlsson, 24.10.2021 kl. 11:04

10 identicon

No photo description available.

Þorsteinn Sch Thorsteinsson (IP-tala skráð) 25.10.2021 kl. 19:21

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband