Hluti draums frá 1965 og orkan er ekki endurnýjanleg.

Þeir, sem studdu Búrfellsvirkjun og álverið í Straumsvík á sjöunda áratug síðust aldar, gerðu það ekki aðeins vegna þess að þessar framkvæmdir myndu "skjóta nýjum stoðum undir hagkerfið" og að orkan yrði ódýrari í stórvirkjun heldur en í smærri virkjunum eins go við Sogið. 

Tvö önnur atriði vógu þungt. 

1. Samhliða álverinu myndu rísa upp verksmiðjur sem framleiddu fullunnar afurðir úr áli, til dæmis þakplötur úr áli, sem ekki tærðist. 

2. Orkan, sem beisluð yrði, væri og yrði endurnýjanleg orka. 

Hver varð siðan raunin?

1. Áratugir liðu, þar til nú, að það bólar á afleiddum iðnaði með fullunna vöru. Ein stórverksmiðja erlendis getur framleitt á hluta úr degi allar þakplótur úr áli sem Íslandingar þurfa árlega. Svipað gildir um fleiri fullunnar álvörur; hagkvæmni stærðar keppinautanna erlendis ræður úrslitum. Það sem verið er að gera hjá Norðuráli er aðeins hluti af draumnum frá 1965. 

2. Þróunin í virkjunum fyrir álverin hefur þróast í þá átt að æ stærri hluti hennar er fengin úr gufuaflsvirkjunum, þar sem ekki eru gerðar meiri kröfur til endurnýjanlegrar orku en þær, að orkan dugi í 50 ár. Það er ekki lengri ending en hjá kolaverum og ýsmum olíulindum heimsins, sem eru góð dæmi um óendurnýjanlega orku, öðru nafni rányrkju. 

Og í jökulánum, sem virkjaðar eru, fyllast miðlunarlón eins og Sultartangalón upp af aurseti, sem veldur vaxandi orkutapi.  


mbl.is Nýjar áherslur hjá Norðuráli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Engin orka er endurnýjanleg, ekki einusinni sólarorkan. 

Hörður þormar (IP-tala skráð) 14.12.2021 kl. 21:30

2 Smámynd: Ómar Ragnarsson

Orka rafstöðvanna í Soginu eru fengin með nýtingu á tæru vatni, þar sem auðvelt er að láta orkuna haldast óbreytta til eilífðar, miðað við orkuna úr gufuaflsvirkjunum á Nesjavalla-Hengilssvæðinu. 

Ómar Ragnarsson, 15.12.2021 kl. 00:43

3 Smámynd: Ómar Ragnarsson

Svipað er að segja um vatnsaflsvirkjanirnar í Noregi, en árið 2002 var því samt lýst yfir þar í landi að tími stórra vatnsaflsvirkjana í því landi væri liðinn. 

Ómar Ragnarsson, 15.12.2021 kl. 00:44

4 Smámynd: Hallgrímur Hrafn Gíslason

Álpönnuverksmiðjan Alpan framleiddi 500 þusund pönnur árlega, Margt hefur verið skoðað i sambandivið fullvinnslu áls en alltaf hefur flutningskostnaður gert út um arðsemina,  Alcoa fjarðarál hefur framleitt strengi fyrir markaðinn og var Ísal ekki að blanda ál í barra fyrir markaðinn.

Búrfell var virkjun með litið lón  til að jafna út dægursveiflur á vatnsrennslinu og hefur fullkomlega staðið undir væntingum og þrám sem vöknuðu upp ur 1960.

Ég man þa tíð að frettamaður hja Sjonvarpinu var með hástemdar lýsingar yfir gufuaflsvirkjunar kostum þar a meðal í Kverkfjöllum 

Hallgrímur Hrafn Gíslason, 15.12.2021 kl. 09:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband