Keimlíkt Gálgahraunsmálinu.

Í Gálgahraunsmálinu 2013 voru nokkur atriiði þar sem of gamalt framkvæmdaleyfi og of gamalt mat á umhverfisáhrifum komu til álita. Einnig hvort gilda ættu ákvæði´Árósasammingsins um lögaðild fjölmennra náttúruverndar- og umhverfissamtaka.

Þrýstingur framkvæmdaraðila á vegagerðina réðist af því, að verið var að láta sameiningu Álftaneshrepps og Garðabæjar ganga í gegn, en sú sameining breytti veginum úr þjóðvegi á kostnað ríkisins í innanbæjarveg. 

Með atbeina lögreglu í október 2013 var beitt 60 manna liði auk stærsta skriðbeltatækis á Íslandi, risavaxinni jarðýtu sem rótaðist eftir veglínununni heilan dag til þess að "eyðileggja andlagið" eins og Skúli Bjarnason lögfræðingur Hraunavina lýsti þeirri aðgerð. 

Þrátt fyrir ákvæði náttúruverndarlaga um að hraun njóti sérstakrar verndar, var þetta gert átölulaust, en ákvæðið er til þess að hnykkja á þeirri sérstöðu hrauna, að sé þeim raskað, séu þau spjöll óafturkræf um alla eilífið; það er ekki hægt að endurgera hraun yfir í upprunalega mynd. 

Svo virðist sem hér á landi ríki landlægt sinnuleysi um náttúruverndarlegt gildi hrauna, samanber fyrirhugaða virkjun í Hverfisfljóti, sem heitir ekki réttu nafni, heldur er kölluð Hnútuvirkjun, þótt engin Hnúta sé virkjuð.  


mbl.is Kæra og krefjast nýs umhverfismats
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

 Það er þetta með eiga ekki lögvarða hagsmun sem er mikið notað af bákninu til að komast hjá því að taka efnislega afstöðu.

Bjarni (IP-tala skráð) 11.7.2022 kl. 09:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband