Jay Leno núna, Simon Cowell hér um árið.

Þáttastjórnendur virðast vera hrasgjarnir, Jay Leno marg beinbrotinn; Simon Cowell á rafhjóli fyrir nokkrum misserum, og í gærkvöldi sagði Gísli Einarsson frá atvikum þar sem hann hefði misst fótanna.   

Leno var á gömlu amerísku Indian vélhjóli, en Indian er næsti bær við Harley Davidson í vélhjólaflórunni og þessi hjól oft um 400 kíló á þyngd eða meira. 

Leno braut á sér báðar hnéskeljarnar og virðist samkvæmt því ekki hafa verið með hnéhlífar. 

Síðuhafi notar alltaf hnéhlífar á sínum þremur léttbifhjólum, en hið léttasta þessara hjóla er rafreiðhjól sem er aðeins um 30 kíló. 

Í árekstri við bíl 2016 brotnaði ökkli og hnén lemstruðust án þess að brotna. Ef þá hefðu verið bæði vélhjólastígvél með ökklavörn og líka hnéhlífar hefðu meiðslin orðið miklu minni.  

Leno er moldríkur og hnéhlífar eru bæði léttar, meðfærilegar og ódýrar. 


mbl.is Jay Leno aftur slasaður með mörg beinbrot
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband