Ein vinsælasta sænska söngkonan varðist fimlega aðdróttunum.

Það var ekkert grín fyrir marga af helstu máttarstólpum margra landa að komast hjá gagnrýni og vandræðum vegna þess hvernig aðstaða þeirra var gagnvart nasistum á stríðsárunum. 

Þannig var Louis Renault, frumkvöðull í franskri bílaframleiðslu ákærður eftir stríðið fyrir samvinnu við þýska hernámsliðið og verksmiðjurnar voru þjóðnýttar.  

Sænska söngkonan Sara Leander naut vinsælda víða í Evrópu í stríðsbyrjuun.  Þetta hafði áhrif á stöðu hennar í heimalandinu Svíþjóð, þar sem það var illa séð hve mjög hún viðhélt sðng sínum í Þýskalandi.  

Þar þurfti hún að sýna jafnvægislist, því að nasistar litu hana líka hornauga. 

Sagan segir að í opinberri samkomu hafi hinn illræmdi Joseph Göbbels hitt hana að máli og spurt hana ísmeygilega, hvort nafnið Sara væri ekki Gyðinganafn. 

Sara svaraði að bragði: 

"Það ættir þú að vita, Jósep minn."

 


mbl.is Var hún of elsk að nasistum?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Wilhelm Emilsson

Frábær saga! Minnir á grínið um að hinn fullkomni Aríi ætti sð vera hávaxinn eins og Göbbels, grannur eins og Göring og ljóshærður eins og Hitler.

Wilhelm Emilsson, 9.3.2024 kl. 23:26

2 Smámynd: Sigurður Þorsteinsson

Fyrir mig er þessi umfjöllun afar nálægt. Hef í eigin raun upplifað að áratugum síðar voru Þjóðverjar enn í uppgjöri við sjálfa sig. Nasistar voru ekki bara hermennirnir, heldur ekki síður konurnar. Listamennirnir, fræðimennirnir, fjölmiðlamennirnir. Afar margir  voru hluti af ,,góða fólkinu". Hvað margir voru tilbúnir að þagga niður lýðræðislega umræðu. 

Sigurður Þorsteinsson, 10.3.2024 kl. 04:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband