HRUKKU Í GANG !

Íslensku strákarnir hrukku í gang svo um munaði í kvöld. Bara ef það hefði gerst fyrr, því að nú var við erfiðari mótherja að etja en í fyrri sigurleik. Snorri Steinn Guðjónsson og Hreiðar Guðmundsson áttu stórleik en það sem gerði kannski gæfumuninn var það að leikur íslenska liðsins var svo jafngóður eftir að það náði tökum á honum og æ betri eftir því sem leið á. Þeir misstu dampinn aldrei niður til loka leiksins.

Snorri Steinn Guðjónsson var maður leiksins og sýndi nú loksins sitt besta og það munar um það þegar borið er saman við frammistöðu hans í fyrr leikjum.

Þegar leikstjórnandi blómstrar hefur það áhrif á allt liðið og sama er að segja um klassamarkvörslu.

Gaman að þessu!  

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband