Eins og að horfa á mynd af vígvelli úr lofti?

Meðan goslok eru ekki komin goslok í á eldstöðvunum við Grindavík og hraunið, sem enn þrýstist að byggðinni í Grindavík og þrengir sífellt að honum, vex óvissan um örlög ´þessararar hrelldu byggðar, sem þar sem því miður sígur smám saman á ógæfuhlið. 

Þótt spáð sé goslokum í júlí, er spurningin sú hvort það nægi. 

Og hver ný kvikusöfnun verður gerir ástandið verra. 


mbl.is Þrengir stöðugt að bænum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvaða nýja möguleika getur Fossvogsbrú opnað?

Það blasir við að sú breyting, sem brú yfir Fossvog veldur á áhrifasvæði hennar, hefur nokkra sérstöðu í saamgöngukerfi höfuðborgarsvæðisins. 

Skoða verður vandlega þá möguleika, sem opnast, vegna þess að brúin er ekki gerð fyrir hefðbunda umferð einkabíla, svo að hugsanlegt er að ýmsar af breytingunum liggi ekki alveg í augum uppi við fyrstu sýn.    


mbl.is Kársnes verði nýr miðpunktur höfuðborgarsvæðisins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Óskalagið: Mona Lisa í flutningi Nat King Cole.

Málverkinu af Monu Lisu er hægt að lýsa með ýmsum orðum, Eitt slíkra er orðtakið "less is more."

Ein aðferðin við að njóta þess að berja þetta þekktasta portrett heims er til dæmis það að standa andspænis því tengur við góð hljómflutningstæki og hlusta á Nat King Cole syngja lagið um hana. 

Það má nota ýmsar aðferðir til að njóta þessa listaverks, sem fæddi af sér verðlaunalag og nýta til þess ýmsar útgáfur af því á Youtube.   


mbl.is Ein gátan um Monu Lisu leyst?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Óbyggðaferð í hópi..." 60 ára gömul sýn um nokkra þjóðgarða á Íslandi.

Fyrir sextíu árum hét eitt fjðgurra laga á plötu um nafngreindar íslenskar náttúruperlur "Óbyggðaferð". 

Þá var aðeins einn þjóðgarður til á landinu, Þingvallaþjóðgarður. Um hann giltu sérstök lög með því mjðg svo framúrstefnulega ákvæði að hann væri ævarandi eign íslensku þjóðarinnar, sem hvorki mætti selja né veðsetja.  

á plötunni voru nafngreindir nokkrir staðir, sem ekki voru þjóðgarðar, en hefðu allir efni til þess:  Kerlingarfjðll, Skaftafell, Atlavík og Þórsmörk. 

Kvörn tímans malar hægt og kannski þarf að bíða í nokkrar kynslóðir eftir því að sýnin á þessari plötu verði öll að veruleika.

Svona hljóðar erindið um Þórsmörk:

 

Þórsmörkina við þráum mest,

þangað menn dóla í langri lest 

og festa svo bílinn fyrir rest

og fá til við dðmur mangað. 

 

Í kjarrinu láta þeir flakka flest, 

í felunum þar er elskað mest, 

hafa með ættum við held ég prest

ef hættum við okkur þangað. 

 

Þórs-, Þórs-, Þórsmerkurferð, 

í Þórsmerkurferð við slórum.


mbl.is Þjóðgarður í Þórsmörk?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eins og aftan úr forneskju - "...fólkið kastaðist um allt, þrír út um gluggana."

Fréttin af rútuslysinu í gær hljóðar þannig, að hægt er að klípa sig í í handleggina og spyrja sjálfan sig: Á hvaða ári eru svona slys enn að gerast?  1975?

Það fylgir sögunni í þessari frétt, að mikil heppni skyldi vera fólgin í því að rútan var svo gömul, en hefði farið mun verr út úr slysinu ef hún hefði verið ný!

Fyrir fjörutíu árum var deilt um kosti og galla þess að hafa belti í rútum og merkilegt er að sjá þessi rök með og á móti enn hðfð á lofti. 


mbl.is Þrír köstuðust útbyrðis: „Ég eins og skopparakringla“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Spáði rétt um lok Holuhraungossins 2015. Hliðstæða við lok Kröfluelda?

Sennilega er leitun að íslenskum jarðeðlisfræðingi sem hefur jafn víðtæka reynslu og Haraldur Sigurðsson frá starfi og rannsóknum um víða veröld. 

Haraldur þótti djarfur þegar hann spáði fyrir um lok Holuhraungossins 2015 og jafnvel gripið til þess að nota orðið aðhlátursefni í því efni. 

En um það gilti orðtakið að sá hlær best sem síðast hlær. 

Margt í sambandi við gosið í Sundhnjúksgígaröðinni nú minnir á það hvernig ris og hnig í kvikuganginum í Kroflueldunum 1975 til 1984 stigmögnuðust jafnt allt til gosloka. 

Nú er spurningin hvað gerist nú við Grindavík og hversu nákvæm verður spá þeirra Haraldar og Gríms Björnssonar.


mbl.is Spá því að umbrotunum ljúki í júlí
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Utanríkisstefnan mikilvæg. Gereyðingarstyrjöld með kjarnavopnum tæki 72 klst.

Tvennt vakti sérstaka atygli við það að gjóa á tvennt í fjðlmiðlum í kvöld. Annars vegar fróðlegt viðtal við Baldur Þórhallsson á Samstöðunni, þar sem mikil þekking hans og yfirsýn á utanríkismálum okkar Íslendinga naut sín vel, en meginefni hennar felst í nánu samstarfi og samtali við aðrar þjóðir, sem Baldur lýsti einkar vel.  

Við það að horfa á þetta viðtal rifjaðist upp nýleg frétt um nýja bók Pulitzer verðlaunahafans Annie Jakobsen um nýjustu bók hennar, sem orðuð er við ný Pulitzerverðlaun vegna innihaldsins, sem byggir efnistökum hennar á þeirri útrýmingarhættu sem þriðja heimsstyrjöldin myndi búa lífi manna og dýra á jörðinni.Annie_Jacobsen_0373 

Nægir að nefna eina staðreynd, sem er niðurstaða bókarinnar: Slík stigmögnuð styrjöld myndi taka aðains 72 klukkustundir!!!


mbl.is Guðni heiðraður í Finnlandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Loksins farið að taka til hendi varðandi ökuþrjóta á rafskútum?

Á þessari bloggsíðu hefur lengi verið s til hendi varðandi kröfur um tafarlauar endurbætur á reglugerð um rafkkútur og notkun þeurra sen hefur valdið usla og meiðslum langt umfram það, sem hægt er að líða. DSC09763

Skrifandi síðunnar hefur nógu langa reynslu af því að nota hjólastíga til að geta borið um það, hverenig  sú staðreynd að slysatíðnin á rafskútunum er sú langhæsta í umferðinni. 

Hlálegt er að láta aðeins krakka vera skyld til að nota hlífðarhjálma og beinlínis vítavert að líða það að allt að þrír séu á hverri skútu og allir hjálmlausir. 

Engu virðist hægt aðþ treysta á hjólastígunum þar sem 25 km / klst hámarkshraði gildir, en samt vera hvergi óhultur fyrir rafskútum sem ekið er langt umfram þennan hraða og valda með  því ólíðandi slysahættu. Léttir og reiðhjól

Stutt er síðan ein slík kom á ofsahraða hjálmlaus yfir blinda beygju á hjólastíg og olli með því mikilli slysahættu. 

Það er engin afsökun að hlífðarhjálmar séu of þungir í vöfum; það er nægt úrval af nettum hjálmum á boðstólum. 

þeir, sem eru á ferðinni á þessum slóðum gangandi eða hjólandi, eru svo berskjaldaðir hlíflarlausir, að í þeim efnum er mikillar úrbóta þörf.

 

Geirsnef. Blíðfari Super Soco CUx.

 

 

 

 

 

 

 

 

á


mbl.is Ökumaður rafskútu handtekinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Of mikil linkind í kvennaboltanum?

Síendurtekin fólskubrot gegn Svindísi Jane Jónsdóttur vekja spurningar hvort nægilega fast sé tekið á dómgæslunni í þessari íþrótt. 

Mðrg dææmi eru um það úr knattspyrnunni að sú harkalega að slasa leikna og fljóta leikmenn er vísvitandi og stundum jafnvel skipulega notuð til þess að brjóta þá niður. 

Skrifanda þessarar síðu er enn í minni þegar harðsnúinn þjálfari setti kraftmikinn varnarmann í einu liðinu á Íslandsmótinu í það aðal hlutverk að brjóta svo fautalega á Ellerti Sölvasyni, Lolla í Val, eem var einstaklega leikinn og markheppinn, að hann brotnaði niður sálarlega. 

Þjálfarinn, sem var þýskur, reyndist reikna þetta rétt. Allur vindur var úr Lolla eftir þegar ógnvaldurinn átti í hlut. 


mbl.is Sveindís varð aftur fyrir fólskubroti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Erfiðasta viðfangsefnið, ástand jarðskorpunnar?

Sérfræðingar Veðurstofu Íslands fást við mörg atriði í umbrotunum á Reykjanesskaga, sem erfið eru viðfangs, en eitt það erfiðasta er að spá fyrir um það, hvenær eldgos geti hafist. 

Þetta á raunar við flestar eldstöðvar, svo sem Heklu sem sígur gjarnan við eldgos en þenst síðan út og hækkar þar til hún er komin í sömu hæð og hún var í við síðasta gos. 

Þetta gekk nokkuð vel í nokkur skipti, en eftir gosið árið 2000, hefur hins vegar brugðið svo við að sú gamla rumskar ekki þótt hún sé komin meira en áratug fram yfir tímann.  

Og nú virðist eitthvað svipað vera á seyði suður við Grindavík, að erfitt er að finna út hvenær og nákvæmlega hvar gýs næst. 

 


mbl.is Rólegt á vakt Veðurstofunnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband