Þótt fyrr hefði verið.

Egil Ólafsson hefur oft lag á að orða hlutina skemmtilega. Á samkomu fyrir nokkrum dögum sagði hann að líklega værum við Íslendingar enn á sama stigi og við landnám og ekki komnir lengra en það.

Það er talsvert til í þessu. Víkingaöldin ýtti undir dýrkun á því að sölsa undir sig verðmæti með hverju því ofbeldi sem tll þess þurfti, "....Standa uppi í stafni, / stýra dýrum knerri / halda svo til hafnar / og höggva mann og annan."

Rannsóknir hafa leitt í ljós að á fyrstu öldum Íslandsbyggðar var stunduð einhver stórfelldasta rányrkja gagnvart landi sem dæmi eru um í heiminum, þegar skógar og kjarr landsins voru hoggin svo mjög að Ara fróða þótti ástæða til þess að geta þess sérstaklega að land hefði verið viði vaxið milli fjalls og fjöru þegar landið var numið.

Sama hugarfar fór langt með sjávarauðlindina þegar kjörorðið var "togara inn í hvert þorp," og aflakóngstitillinn var eftirsóknarverðasti titill landsins.

Enn meiri græðgi fór í gang með því að skapa nokkurs konar stóriðjutrúarbrögð hér á landi þar sem "orkufrekur iðnaður" varð að skurðgoði og sent bænarbréf til helstu orkubruðlara heims 1995 um að kaupa af okkur "ódýrustu orku í heimi" með "sveigjanlegu á umhverfisárhrifum eftir þörfum."

Þegar fyrsta álverið var reist í Straumsvík var því veifað að rísa myndi stórkostlegur úrvinnsluiðnaður við hlið álversins og þess vegna væri aðalatriðið að hafa orkuverðið eins lágt og þyrfti til að selja orkuna, skítt með það hvort tap yrði á sölunni.

50 árum seinna bólar ekkert á þeim stórbrotnu verksmiðjuhverfum, sem áttu að rísa til að vinna úr álinu, enda er það svo, að erlenda verksmiðjan, sem framleiðir þakplötur úr áli, sem selur okkur mest af slíkum plötum, framleiðir fyrir allar þarfir Íslendinga á hálfum degi og nýtur hagkvæmni stærðarinnar.

Það var því löngu mál til komið að komast út úr græðgisfíkninni og bruðls-hugsunarhættinum sem ráðið hefur ríkjum, og taka upp vinnubrögð verðmætaaukningar eins og Hörður Arnarson stóð fyrir meðan hann stýrði fyrirtækinu Marel.

Ég spurði Egil Ólafsson um einfalt dæmi um þennan hugsunarhátt og hann sagði mér frá því að fyrir skemmstu hefði hann séð mann einn leggja 400 hestafla pallbílsdreka í tvö bílastæði í miðbænum, fara út úr bílnum og reka erindi sín í hálftíma með bílinn í gangi allan tímann.

Ef einhver hefur séð hliðstæðu í erlendri borg er hann beðinn um að gefa sig fram.

 

  


mbl.is Trúir á tvöföldun í orkuiðnaði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ný mynd af Íslandi blasir við, því Akureyri er VBS.

Stundum er talað um að Ísland sé orðið borgríki með einni borg og landsbyggð umhverfis. Þetta má draga í efa miðað við nýjustu sýn manna á það hvað sé hægt að skilgreina sem borg.

Alþjóðlega er notað hugtak undir heitinu FUA, sem er skammstöfun fyrir Functional Urban Area, eða VBS á íslensku, Virkt Borgar Samfélag.

Til að falla undir það hugtak verður að uppfylla eftirtalin skilyrði:

Þéttbýli með meira en 15 þúsund íbúa.

Ferðatími frjá jaðri samfélagsins inn til miðju þess innan við 45 mínútur.

Samkvæmt þessu er Ísland borgríki með tveimur borgarsamfélögum og landsbyggð umhverfis.

Annars vegar Reykjavíkursvæðið frá Sandgerði og Borgarnesi í vestri til Þjórsár í austri  - 

- og hins vegar Akureyrarsvæðið frá Öxnadalsheiði í vestri til Lauga í Reykjadal í austri og frá Ólafsfirði í norðri til botns Eyjafjarðardals í suðri.

Hella og Bifröst eru rétt við jaðar VBS Reykjavíkur,  -  og Siglufjörður, Húsavík  og Mývatn rétt við jaðar VBS Akureyrar.  

Og vegna þess að innan við 45 mínútur tekur að fara í flugi á milli miðju Akureyrar og miðju Reykjavíkur eru þessi tvö svæði á mörkum þess að vera eitt Virkt Borgar Svæði. Sem styður það enn frekar að Akureyri sé virkt borgarsamfélag.

Í starfi stjórnlagaráðs lagði ég mikið upp úr því að leggja þessa nýju sýn til grundvallar, því að hún gerir úrelt mörg af ríkjandi viðhorfum til kjördæmaskipanar og fleiri mikilvægra þátta og tefur fyrir því og torveldar að unnið sé á raunhæfan hátt úr viðfangsefnum nýs tíma.  

Það er auðvitað út í hött að tala um þorpið Voga á Vatnsleysuströnd sem "landsbyggð" og fráleitt að Vogar eigi sameiginlega landsbyggðarhagsmuni með Höfn í Hornafirði.


mbl.is Akureyri þenst út - MYNDIR
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það er munur eða hér heima.

Oftast eru janúar og febrúar með flestu og mestu vetrarveðrin hér á landi, stundum nær samfleytt eins og í hitteðfyrra. Snjór. Bandaríkjum

En í ár hafa íbúar á austurströnd Bandaríkjanna orðið að taka þetta á sig  og ljósmyndir sem birtast í fréttum fjölmiðla sýna ástand sem við erum vönust á þessum árstíma.

Á sama tíma sem hitinn er vel yfir meðallagi hér viku eftir viku og á sunnan  og vestaverðu landinu hefur veður verið með eindæmum hagfellt. Borgarnes 14.2.14

Læt flakka með myndir sem teknar voru um miðnæturskeið á við tunglsljós á leiðinni frá Ólafsvík til Reykjavíkur.

 Efri myndin er tekin rétt fyrir vestan Borgarnes og Hafnarfjallið er í baksýn, en nær er sá flötur jarðarinnar sem bílljósin lýsa upp.

Neðri myndin er tekin yfir Hvalfjarðarmynnið í átt að Esjunni, Kjalarnesi, Reykjanesfjallgarðinum og austurhluta Reykjavíkur. Hvalfj. 14.2.14 nótt

Það er ekki ónýtt að aka um fagrar slóðir í dimmasta skammdeginu og njóta landslagsins eins og um bjarta sumarnótt væri að ræða. Ís-land hvað?


mbl.is Miklar vetrarhörkur vestanhafs
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ósnertanlegt forneskjuland.

Sádi-Arabía er land gríðarlegra andstæðna, hvað þjóðlíf og kjör þegnanna snertir. Leitun er að landi þar sem þvílíkt alræði spilltra valdahafa ríkir og þjóðlífið er njörvað niður í forneskjulegar viðjar misréttis og kúgunar kvenna. Við samanburðinn blikna léleg réttindi samkynhneigðra í Rússlandi, sem svo mikið hefur verið rætt um að undanförnu.

Hvers vegna fer "arabíska vorið" alveg fram hjá Sádi-Arabíu? Hvers vegna er ekki bullandi ólga í landinu?

Af því að það eru  til nógir peningar til að kaupa hvað sem þarf til að hafa alla góða í anda rómversku keisaranna sem héldu völdum með því að útvega tvennt; brauð og leiki.  

Svarið er sem sé sígilt og einfalt: Sádi-Arabía er og hefur verið langríkasta olíuríki heims, svo ríkt, að í lymskulegri samvinnu við Bandaríkjamenn tókst Sádunum að leggja stærsta skerfinn að því að fella Sovétríkin á sínum tíma og knýja þau til taps í Kalda stríðinu, einfaldlega með því að auka framboð á olíu og verðfella hana, en slíkt þoldi olíuframleiðslulandið Sovétríkin alls ekki.

Þegar krónprinsinn í Sadi-Arabíu fer á skíði í Klettafjöllum, tekur hann heilt hótel á leigu, þyrlur, limmósínur og herskara aðstoðarfólks, og hverfið þar sem hann býr er umgirt öryggisgirðingu.

Ofurjeppaelskendurnir Bandaríkjamenn hneykslast en láta gott heita því að þeir verða að hafa Sádana góða.

Við lifum á síðustu árum gróðæris olíualdar og allir beygja sig fyrir olíuguði þeim sem eru heimstrúarbrögðin núna í raun.

Kínverjar láta í raun gott heita að Bandaríkjamenn hafi tekið að sér að standa straum af því að vera alheimslögregla olíuvaldsins og ráðast inn í hvert það ríki, sem ógnað geti jafnvæginu sem tryggir jafnan straum svarta gullsins um allan heim.  

Sádarnir eru "hinir ósnertanlegu" okkar tíma.


mbl.is Kaupa rauðar rósir í laumi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Dagur elskendanna", með sínu lagi.

Sumum þótti það óþarfi fyrir rúmum aldarfjórðungi þegar Valdís heitin Gunnarsdóttir fór að fjalla um Valentínusardaginn og halda honum á lofti á Bylgjunni, fannst ekki við hæfi að taka upp "bandarískan hátiðisdag".

Fyrirbærið er þó alþjóðlegt og flestir íslenskir hátíðisdagar eru komnir til okkar frá útlöndum.

Hann hefur fyrir tilviljun verið markverður í mínu lífi vegna þess að ég hitti lífsförunaut minn 14. febrúar 1961 og við höfum haldið upp á hann æ síðan, þó lengst af án þess að vita af því að þetta væri Valentínusardagurinn.

Á hálfrar aldar afmæli fyrstu kynna okkar gerði ég lag og ljóð undir heitinu Dagur elskendanna og fékk Edgar Smára Atlason og Vilhjálm Guðjónsson til að renna því inn á disk. Syng það reyndar sjálfur æði oft á skemmtunum og stefni að því að gera það í kvöld.

Sendi öllum elskendum árnaðaróskir með því.

 

DAGUR ELSKENDANNA.

Með sínu lagi.

 

Þetta er dagurinn okkar sem eigum við nú

þegar örlögin réðust og ást, von og trú

urðu vegvísar okkar á ævinnar braut

gegnum unað og mótbyr, í gleði og þraut.

 

Þú varst hamingjusólin og heilladís mín

og ég hefði aldrei orðið að neinu án þín.

Ég í fögnuði þakka þegar faðmarðu mig

að hafa fengið að lifa og elska þig.

 

Og til síðasta dags, ár og síð hverja stund

þá mun sindra björt minning um elskenda fund.

Ég við ferðalok þakka, - straumur fer þá um mig, -

að hafa fengið að lifa og elska þig, -

að hafa fengið að lifa og elska þig.

 


mbl.is Krúttdagur þar sem allir eru góðir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Eitthvað annað" kemur ekki til greina.

Eina áþreifanlega einróma stefnuyfirlýsing ríkisstjórnarinnar er að reisa álver í Helguvík. Það virðist eina framtíðarsýnin, að stunda mesta mögulega orkubruðl með yfirgengilegum náttúruspjöllum á hálfu landinu og eyða fé í langdýrustu störf sem hugsast getur, því að sköpun hvers starfs í álveri kostar mörg hundruð milljónir króna.

Einn  maður, Baltasar Kormákur, segist geta komið með milljarð inn í landið með sér í tengslum  við gerð einnar kvikmyndar. Tveir menn sköpuðu með hugviti sínu CCP sem skapar meiri gjaldeyristekjur en nemur launum allra starfsmanna í álverum Íslands.

Munurinn á íslenskum fyrirtækjum í skapandi greinum, sem færa arðinn inn í landið er sláandi miðað við álverin, þar sem arðurinn rennur til erlendra fyrirtækja.

En svona lagað hefur verið skipulega talað niður og kallað í fyrirlitngartóni "eitthvað annað" af því að það að einn eða örfáir menn geti skapað svona mikinn auð ógnar stóriðjustefnunni sem ekkert lát virðist á.    

Þar að auki örlar ekki á því að landið verði leyst úr gjaldeyrishöftum vegna þess að krónan þolir ekki að bátnum sé ruggað. Gott dæmi um það að fyrirtæki, reist á hugviti, verði að fara úr landi, var síðast í fréttunum í gær.

Enn virðist það svo að sé það eitthvað annað en stóriðja sé það að engu hafandi. Trúin á "orkufrekan iðnað" sem það eina, "sem geti bjargað landinu" hefur verið gerð að þjóðartrúarbrögðum síðan 1965.  

Baltasar Kormákur, Benedikt Erlingsson og Friðrik Þór Friðriksson gagnrýna íslensk stjórnvöld harðlega fyrir þröngsýni sína undanfarinn áratug varðandi möguleika kvikmyndagerðarinnnar, en það er eins og að skvetta vatni á gæs.  


mbl.is Íslensk kvikmyndagerð á krossgötum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Allt hefur sín takmörk.

Þorp, bæir og borgir verða ekki til bara hvar sem er heldur liggja til þess nokkrar ástæður. Nefna má þrjár:  

1. Samgöngur. Grunnforsenda þéttrar byggðar, til dæmis þar sem eru góð hafnarskilyrði og krossgötur. Dæmin eru hafnarplássin á Íslandi hvað varðar siglingar og sem dæmi um krossgöturnar má nefna raðirar Reykjavík-Hveragerði-Selfoss-Hella-Hvolsvöllur, og Blönduós-Varmahlið, Akureyri, Reykjahlíð-Egilsstaðir. Á sumum stöðum eru flugvellir partur af krossgötunum. .

 Stundum er þetta blanda af höfnum, landsamgöngum og samgöngum í lofti, krossgötum, eins og Akureyri, Stykkishólmur, Sauðárkrókur, Stokkhólmur, Osló, Kaupmannahöfn, Þrándheimur, New York, eða hreinar krossgötur á landi eins og Óðinsvé, Berlín, París eða Brussel.   

2. Ríkisstýrð þjónusta og menning. Höfuðborgir landa njóta margar góðs af þessu. Frjáls verslun og þjónusta dregst víðast að krossgötum, en ríkisstýrð starfsemi hefur meira svigrúm.  

3. Nýting og framleiðsla hráefnis. Fiskiafnirnar á Íslandi eru gott dæmi um slíkt.

Nú er uppi mikil hreyfing til þess nauðsynjamáls að þétta byggð til að spara kostnað við samgöngur og var síðast í gær verið að sýna dæmi um 900 íbúðir, sem hægt er að koma upp víðs vegar um Reykjavík í því skyni.

Í því efni gildir þó það að allt á sín takmörk og þar getur gilt gamla dæmisagan um þráðinn að ofan hjá köngulónni, sem kom eftir honum og spann vef sinn út frá honum.

Í framhaldi af kvikmyndinni um Walter Mitty er rétt að árétta það að í fiskibæjum á Íslandi felast ekki aðeins menningarverðmæti heldur nú orðið beinir peningahagsmunir af ferðamennsku.

Þegar útlendingar hafa verið á ráðstefnum í Reykjavík yfir helgi og ekki haft tíma til að fara Gullna hringinn hef ég nokkrum sinnum boðið upp á "Silfurhringinn", Reykjavík-Kaldársel-Krýsuvík-Grindavík-Bláa lónið-Eldvörp-Keflavíkurflugvöllur, en meðal þess sem útlendingum finnst merkilegt í þessum hring er höfnin í Grindavík, Eldvörp og Árnastigur, sem ekki er að finna í Gullna hringnum.

Töfrar hafnarinnar í Grindavík og annarra hafna á Íslandi felast í því að allt, bæði smátt og stórt við þessar hafnir, hefur þjónað sama tilgangi frá upphafi, að vera samgöngumannvirki fyrir siglingar sem færa landsmönnum björg í bú. Þær eru sem sagt merki um lífsbaráttu þjóðarinnar úti við ysta haf, sem útlendingum finnst afar heillandi að fræðast um. .

Þess vegna verður að fara gætilega í það að fara að bera þessa mynd ofurliði við hafnir með annars konar mannvirkjum, ef þau trufla grunnstarfsemi hafnanna.

Þetta er að sjálfsögðu matsatriði en þegar huganum er rennt yfir hafnir á Íslandi minnist ég þess ekki að hafa neins staðar séð íbúðablokkir alveg niðri við sjó í þeim miðjum, hvað þá að þegar eru upp áform um stærðar hótel á sama svæði.

Gamla Reykjavíkurhöfnin hefur töfra, sem Sundahöfn er gersneydd. Það verður að tryggja að þeim töfrum sé ekki raskað.


mbl.is Íbúðir og fiskur fara ekki saman
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Auglýsingagerð skóp framfarir í kvikmyndagerð.

Í upphafi íslensks sjónvarps stóðu menn frammi fyrir þeirri ákvörðun, hvort leyfa ætti auglýsingar í íslensku sjónvarpi eða banna þær. Tregðan gegn ágengni auglýsinga var skiljanleg. Sjálfur tók þá ákvörðun sjö árum fyrr að afþakka alla þátttöku í slíku nema vegna líknarmála og stóð við það bann í 54 ár.

Á stuttu tímabili 1971 gilti bann við að sýna íþróttakappleiki þar sem sjá mátti auglýsingar á keppnisvöllum eða búningum leikmanna !

Í fyrstu röllunum 1975 og 76 vorum við Jón bróðir einir allra keppenda án auglýsingatekna vegna banns fréttastjóra Sjónvarpsins, en vegna þess að auglýsingaranar voru skylda fyrir þátttöku og þóttu öryggisatriði til að bílarnir skæru sig úr í umferðinni, auglýstum við tóbaksbindindi á áberandi hátt á bílnum og tókum ekkert fyrir !

Ákveðið var að leyfa auglýsingar í sjónvarpi frá byrjun og enda þótt ásókn auglýsenda sé sífellt vandamál í dagskrárgerð, kom í ljós að sú nauðsynlega tækni og sá agi, sem verður  að vera í gerð hnitmiðaðra auglýsinga og birtist til dæmis í baráttu við sekúndur hvað lengd snertir, reyndist einn af lyklunum í þróun íslenskrar kvikmyndagerðar.

Má nefna nöfn eins og sjónvarpsmennina Snorra Þórisson og Jón Þór Hannesson sem dæmi um menn, sem urðu meðal brautryðjenda á þessu sviði.

Staðreyndin er sú, að fram að þessum tíma vantaði þá áskorun og ögrun sem fólst í því að standast kröfur um agaða og vandaða íslenska kvikmyndagerð.

Þetta sést vel þegar skoðaðar eru myndir sem svissneskur áhugamaður, Hans Nick að nafni, tók hér á landi árið 1965. Hvað gæði snertir bera þær af öðrum heimildarmyndum frá því fyrir daga sjónvarpsins  og eru ómetanleg gögn um land og þjóð fyrir tæpri hálfri öld.

 

 


mbl.is 13 stofur tilnefndar til Lúðursins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mamma og jafnframt amma útskrifaðist með syninum.

Þegar lesin er heilmikil frétt um það að Jade Jagger yrði mamma og amma á sama tíma vaknar spurningin um það hversu óvenjulegt þetta sé.

Fróðlegt væri ef skoðuð væru gögn um meðalaldur brúðhjóna nú og fyrir hálfri öld og meðalaldur mæðra frumburða. Ég gæti ímyndað mér að munurinn væri að minnst fimm ár, en jafnvel meiri.

Sé þetta svona, er það að öðru jöfnu fátíðara nú en áður að konur verði ömmur og mömmur á sama tíma, en þetta var býsna algengt fyrir hálfri öld.

Sem dæmi um það hve þetta var ólíkt hér áður fyrr er það, að langamma mín var 16 ára þegar hún átti afa og að þeir Edvard og Jón, bræður mínir, hófu sambúð með konum sínum 16 ára gamlir.

Sama árið og Edvard, þá 16 ára, varð pabbi, hóf mamma hans nám og var í bekk með honum í Kennaraskólanum. Hún átti síðan Sigurlaugu í lok skólanámsins og þegar hún útskrifaðist eins og sonur hennar var hún amma fjögurra barna á sama tíma og hún varð mamma í sjötta sinn.

Ruglingslegt? Já, að minnsta kosti fyrir Sigurlaugu, sem heyrði jafnaldra sína í barnahópnum kalla föður sinn afa og var ekki alltaf viss um það á tímabili hvað hún ætti að kalla hann.   

 


mbl.is Verður amma og mamma á sama tíma
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Frelsi frá ótta", hluti af fjórfrelsi Roosevelts.

Góð vísa er aldrei of oft kveðin, svo sem lykilsetningin í ræðu Roosevelts Bandaríkjaforseta um hið fjórfalda frelsi, sem vera ætti keppikefli mannkynsins: Skoðana- og tjáningarfrelsi, trúfrelsi, frelsi frá ótta og frelsi frá skorti.

Í landi frelsisins, Bandaríkjunum, mætti ætla að lengst sé komið á þeirri braut að innleiða fjórfrelsi forseta þeirra.

En fádæma byssueign Bandaríkjamanna og morð með skotvopnum vitnar einmitt um hið gagstæða.

Þegar svo er komið að það þykja eðlileg viðbrögð við hávaðasamri tónlist í bíl að skjóta einn hinna ógnandi manna, sem í bílnum sitja "í sjálfsvörn" hlýtur eitthvað að vera að, enda eru svona dæmi, sem ekki þekkjast hér á landi, að skjóta menn í sjálfvörn, nánast daglegt brauð í Bandaríkjunum.

Þegar óttinn er líka orðinn svo mikill á æðstu stöðum að stundaðar eru einhverjar umfangsmestu og tæknivæddustu njósnir um persónuhagi fólks, jafnvel vinveittra forystumanna bandalagsríkja, er greinilegt að ótti og tortryggni í landi frelsis og óttaleysis er kominn á alvarlegt stig.


mbl.is Segist hafa skotið piltinn í sjálfsvörn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband