1.6.2022 | 16:32
GM lagði Þjóðverjum lið og Ford Rússum fram yfir 1940.
Viðskipti og "bísniss" eiga sér oft skringilegar leiðir í gegnum og þvert á víglínur og bandalög.
Þannig var það í báðum Heimsstyrjöldunum.
Bandarísk fyrirtæki höfðu fjárfest í þýskum í báðum styrjöldunum, og í þeirri seinni má nefna Opel bílaverkmsiðjurnar sem dæmi.
Þar var ekki bara um venjulega fólksbíla að ræða, heldur líka vörubíla, svo sem af gerðinni Opel Blitz, sem gat verið fjórhjóladrifinn og komið í g´ðar þarfir í "Blitz krieg" Hitlers.
General Motors hætti þessu ekki að fullu fyrr en seint árið 1943.
Henry Ford var lengi grunaður um græsku varðandi jákvæð viðhorf til evrópsku einræðisherrana og átti við þá ýmis samskipti.
Gott dæmi um það, af því að við Íslendingar könnumst við fyrirbrigðið, er drifbúnaður fólksbíla og þó einkum jeppa og vörubíla.
Öxlarnir eða "hásingarnar" á Rússajeppunum sjást langar leiðir að, en þær eru fengnar frá Ford T og Ford A og hengu rússnesku kommarnir á þeim langt fram eftir öldinni.
Fyrsta stóra sprengjuflugvélarnar, sem Sovétmenn smiðuðu og gátu borið kjarnorkusprengjur voru nákvæmar eftirlíkingar af Boeing B-29 Superfortress, en Bandaríkjamenn skildu slíkar vélar eftir á sovésku yfirráðasvæði undir lok stríðsins.
Þegar Sovétmenn smíðuðu fyrstu kjarnorkusprengjur sínar voru þessar bandarísk/sovésku vélar því tilbúnar í slaginn með að varpa bombum á Vesturlönd!
![]() |
Ömurlegt að Evrópa fjármagni stríðsrekstur Pútíns |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.6.2022 | 13:30
Hægt að tala um "Messi-afbrigðið" af kórónuveirunni?
Lýsing Messi á einkennum kórónuveirunnar hljómar kunnuglega í eyrum þess, sem fengið hefur svipaða útgáfu af þessum fjanda í aprílbyrjun.
Einkennin voru ansi snörp í byrjun með stóru verkjakasti sem þungamiðju, og voru verkirnir það miklir og í öllum líkamshlutum einn daginn, að hvorki var hægt að standa kyrr, liggja eða sitja, sofa eða vaka.
En þetta ástand stóð tiltölulega stutt og við tók að veiran komst í lungun líkt og hjá Messi, og í kjölfar lungnabólgu sem nýtti sér áratuga gamla berkjubólgu, fylgdi viðeigandi lyfjameðferð og ströng fyrirmæli læknis um að leggja alveg af reglulegt vikulegt kapphlaup mitt á 30 sekúndum upp fjórar hæðir með skeiðklukkumælingu sem stundað hefur verið síðan 1960 til að viðhalda sæmilegu þreki, krafti og snerpu.
Engan æsing, sagði læknirinn, vinna í hagum bata og taka nokkrar vikur í að forðast slíkt.
Þegar blóðeitrun í hæl og ökkla fylgdi ótugtinni var enn meiri ástæða til að fara sér hægt.
Nú hefur Messi lýst sínu afbrigði þannig, að hugsanlega verður hægt að tala um "Messi-afbrigðið af veirunni" og fara í einu og öllu eftir skipunum læknis varðandi það að vinna í hægum bata, nokkuð sem Messi klikkaði á og gerði bara illt verra.
![]() |
Messi gat ekki hlaupið í margar vikur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt 2.6.2022 kl. 00:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
31.5.2022 | 20:25
Fyrsta lýsing á bráðamóttökunni hér á síðunni var fyrir átta árum en ekkert gerist.
Í desember 2015 höguðu atvikin því þannig til að hingað á síðuna var hægt að setja lýsingu á ástandinu á bráðamóttöku Landsspítalans sem blasti við við meðferð á axlarbroti.
Vorið eftir kom aftur til skjalanna meðferð á beinbroti, í þetta sinn ökklabroti.
Sú meðferð varð lengri en ella, vegna þess að í þeim miklu önnum, sem voru á deildinni og lýstu sér í því að starfsfólkið var á hlaupum í kapphlaupi við tímann, mistókst að sjá ökklabrotið á röntgenmynd.
Á þessum tíma voru umræður í sjónvarpi um ömurlegt ástand á deildinni, þar sem annar viðmælandinn fullyrti, að starfsfólk bráðamóttökunnar væri "setja á svið leikrit" og ljúga upp lýsingu á ástandinu.
A árunum þar á eftir kom tvisvar til þess að þurfa á meðferð að halda á deildinni, og enn og aftur blasti við svipað ástand og hafði verið síðan 2015 hið minnsta.
Á þessum átta árum hafa orðið ítrekuð mannaskipti í æðstu stöðum varðandi aðstöðuna og fjárveitingar og enn er svo að sjá að ekkert gerist.
Þetta er alveg yfirgengilegt.
![]() |
Vonin dó í dag þegar ég gafst upp |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 20:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
31.5.2022 | 08:54
Í anda Péturs mikla?
Vladimir Pútín vitnaði í Pétur mikla og fleiri aðsópsmikla forystumenn Rússa frá fyrir tíð þegar hann tilkynnti um "sérstakar hernaðaraðgerðir" Rússa í Úkraínu.
Ef rétt er munað var það einn af burðarásum stefnu keisarans, sem nafn St. Pétursborgar rímar svo vel við að "opna glugga til vesturs og taka virkan þátt í þróun viðskipta í Evrópu.
Þótt tímarnir núna séu gerbreyttir frá því sem var fyrr á öldum er það umhugsunarefni hvernig gjáin milli Rússlands og annarra hluta Evrópu dýpkar nú hratt og víkkar, því að það er alveg á skjön við það sem margir töldu æskilegt í framhaldi af lokum Kalda stríðsins.
Þegar því lauk sýndist mmörgum upplagt að leggja Rússum lið við að reisa land þeirra við með eins konar Marshallaðstoð og samvinnu við að opna bæði gluggann frá Rússlandi til vesturs og til Rússlands frá vestri í friðsamlegu bandalagi um farsæld og frið í Evrópu.
Það tækifæri var látið renna úr greipum og má deila um, hverjum sé að kenna.
Rússar höfnuðu að vísu tilboði Bandaríkjamanna um Marshallaðtoð til Austur-Evrópuríkja eftir lok Heimsstyrjaldarinnar, en á þeim tíma var Kalda stríðið þegar hafið með gerð Járntjaldsins um þvera álfuna.
![]() |
Rússar missa aðgang að Netflix |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
30.5.2022 | 23:58
"...kát við syngjum alltaf Gaudeamus hátt og snjallt..."
Það var gaman fyrir gamla júbílanta jafnt sem unga að njóta þeirrar stórsamkomu sem stærsta júbílantahátíð MR var í fyrrakvöld.
Þetta var hátíð nemenda elsta skóla landsins og enda þótt gríðarlegar breytingar hafi orðið á flestu síðan í Skálholtsskóla, Hólavallaskóla og Bessastaðaskóla hljómar stúdentasöngur allra stúdentasöngva, "Gaudeamis igitur" alltaf jafn fölskvalaust jafnt hjá nýstúdentum sem stúdentum sem eru að halda upp á 75 ára og jafnvel hærra stúdentsafmæli.
Afnælin voru fjölmörg á hátíðinni, Yngvi Pétursson fyrrverandi rektur með 50 ára afmæli kennaraferils síns þegar hann lætur af störfum, og núverandi rektor, Elísabet Ziemsen lætur af því starfi nú.
Aldur 62ja ára stúdenta kom ekki í veg fyrir að tíu félagar úr sönghópnum MR60, meðalaldur 82 ár, felldu setninguna í fyrirsögn þessa pistils inn í nýjan júbílantabrag, sem hægt er að nálgast á facebook síðunni omar ragnarsson eins og hann var fluttur á samkomunni stóru.
Nemendasambandinu er þökkuð góð frammistaða við að láta þennan ljúfa og stóra fagnað heppnast jafn vel og raunin varð.
![]() |
Afar sáttur með 50 ára starfsferil við MR |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt 31.5.2022 kl. 00:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.5.2022 | 16:00
Starrinn og þokan.
Einn af þrjóskustu fuglum er starrinn.
Hann hefur einstakt dálæti á flugvélum og tekst iðulega að gera sér hreiður inni í vélarrýminu í nefi vélarinnar, þótt reynt sé að loka fyrir allar inngönguleiðir inni í það.
Á mynd af afturhluta flugvélar má sjá leitarsvæði á sinni tíð að því, hvernig í ósköpunum þessi fugl fór að því að gera sér hreiður inni í afturhlut
Honum tókst sem sé að finna pínulítið gat á jaðri hins lárétta hluta stélsins, og skríða þaðan fram og til baka drjúga spöl inn í lóðrétta hlutann og búa sér hreiður aftast í skrokknum.
Á myndinni sést hvernig er búið að troða ljósbrúnum svampi í gatið til að loka þessum magnaða inngangi.
Starrinn er eitt af því sem fylgir vorinu og það er þokan líka og er lík starranum með það að laumast oft afar lymskulega inn með sjónum í hafgolu og fylla síðan landið með ýmsum tangarsóknum, svo sem inn Kollafjörðinn.
Yfir borginni má sjá hvernig misjafnlega mikil upphitun sólar veldur því að þokan laumast ýmist sína leið eða hörfar eftir atvikum.
Myndirnar eru teknar í sömu átt, allar nema sú af Kollafirðinum, og það eru blokkirnar við Austurbrún og hái Höfðaturninn lengst til hægri, sem eru aðalleikenddurnir.
Set hér inn nokkrar myndir af því.
![]() |
Breikkað framhjá tjaldshreiðri |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 16:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.5.2022 | 07:34
Þokusælast er snemmsumars; þá er sjórinn svalastur.
Hafgola svonefnd er oft knúin af hlýju uppstreymi lofts vegna sólar inn til landsins.
Éf Suðurlandsundirlendið hitnar af sterkri sól, stígur heita loftið upp vegna léttleika síns og við það sogast rakft loft af hafi, jafnvel vestur við Faxaflóa, inn í það rými, sem heita loftið skildi eftir sig allt að 50 til 100 kílómetrum austar.
Rakinn i hafloftinu þéttist við kólnun og myndar þoku, sem nær oft austur að Hengli og Bláfjöllum en þornar við að fara niður Suðurlandsmegin.
Þegar kvöldar, lækkar sólin, sem oft tekst að seinka myndun þokunnar meðan hún er hæst á lofti og geislun hennar á ströndina og landið mest.
Hitamunur hafsins og landsins er mestur snemma á vorin þegar sjórinn er enn svalastur eftir veturinn og þokurnar eru því algengastar á vorin.
Þegar líður fram á sumarið er sjórinn orðinn hlýrri og því sjaldnar þoka en var fyrr um vorið.
![]() |
Hlýtt loft og vindur af hafi veldur þokunni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.5.2022 | 00:26
Breytingar á aldursmörkum hermanna eru oftast veikleikamerki.
Þegar þýski herinn sótti í átt til Moskvu hausið 1941 sagði Hitler í ræðu, að Sovémenn hefðu misst 10 milljón menn og enginn her í heimi gæti ráðið við annan eins missi.
Í ljós kom hins vegar að nokkur atriði urðu til þess að þýski herinn stöðvaðist við Khimki sporvagnastöðina í norðurjaðri Moskvuborgar, aðeins 19 kílómetra frá Kreml vegna samanlagra ástæðna.
Nýir T-34 skriðdrekar komu þúsundum saman til vígvallarins og gríðarlegur framleiðslumáttur Sovétmanna var miklu meiri en Þýskalands.
Rússneski veturinn lamaði þýska herinn mun meir en þann sovéska.
Vel búnar hersveitir streymdu um endilanga Síberíu til vígstöðvanna.
Sovéski herinn var klæddur fyrir hinn hræðilega rússneska vetur, ekki sá þýski.
Baráttumóður Rússa í því sem þeir kölluðu Föðurlandsstríðið mikla, háð fyrir "móður Rússlands" var mun meiri þrek Þjóðverja.
Sovétmenn sótu hermenn í varasjóð bardagaþystra manna og voru þrátt fyrir mannmissirinn ekki eins illa staddir og Þjóðverjar urðu í lok stríðsins, þegar bæði unglingar og gamlir menn voru kallaðir í þýska herinn.
Það var augljóst veikleikamerki og ef eitthvað svipað er á seyði nú hjá Rússum, er það að minnsta kosti ekki styrkleikamerki.
Benda má á bloggsíðu Einars Björns Bjarnasonar um T-62 skriðdrekana, sem Rússar draga nú fram til örrustu, en Einar Björn er líkast til fróðasti maður um skriðdreka hér á landi.
![]() |
Rússnesk fyrirtæki stytta vinnutíma starfsfólks |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 00:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Það hefur verið árlegt fyrirbæri að Nemendasamband MR haldi sérstaka útskriftarhátíð eftir lok hvers skólaárs í MR. En vegna kórónaveriunnar féllu hátíðirnar noður 2020 og 2021.
Hátíð í Valsheimilinu í gærkvöldi varð því só stærsta hingað til því að árgangarnir tveir, MR 1960 og 1961 fengu nú uppbót í troðfullu Valsheimilinu, þar sem 8-900 manns fögnuðu skólaslitum á fjölbreyttan hátt.
Á hófinu fluttu tíu félagar í sönghópfnum "MR60, sem starfað hefur síðan 1994, lagið "Svalt að vera stúdentar" og var allt söngfólkið á níræðisaldri.
Til stendur að setja lagið á facebook núna á eftir.
![]() |
Dúxaði í MR og síðan til Taílands |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
29.5.2022 | 01:41
Viðbrögðin í Ulvade voru ekki í samræmi við aðferðir, sem átti að beita.
Í sambandi við skotárásir á skóla og fólk var fróðleg umfjöllun um þær í bandarísku sjónvarpi fyrir nokkrum árum.
Það var lögð áhersla á aukinn hraða viðbragðsaðila og aðferðir til að buga árásarmanninn sem fyrst í stað þess að gefa honum færi á tíma til að drepa sem flesta.
Það sem gerðist í Ulvade er langt frá lýsingunni í þessum fróðlega sjónvarpsþætti og það hlýtur að vera óhjákvæmleg afleiðing af hrakförum lögreglunnar þar, að hún geti verið bæði fljótari og betur búin til að klófesta árásarmenn eða yfirbuga þá í framtíðinni.
![]() |
Mistök að bíða eftir liðsauka |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 01:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)