Færsluflokkur: Bloggar
15.10.2009 | 01:43
Kannanir hafa sýnt...
Eitthvað rámar mig í kannanir sem hafi sýnt að sá líkamhluti sem hafi mest gagnkvæm áhrif á kynin séu rassar þeirra, hinn breiði hjá konunum og hinn mjói hjá körlunum.
Mikil frumskógar- og frummannalykt af þessu. Förum ekki nánar út í það eins og Kristján heiti ég Ólafsson myndi segja.
![]() |
Unnustinn hrósar afturendanum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 01:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
14.10.2009 | 23:45
Rússar hætta við að lána Íslendingum.
Hverjir hafna lánum? Nú, lántakendur auðvitað. Eða það hélt ég.
Lánveitendur geta ekki "hafnað láni" frá sjálfum sér og ég fæ því ekki betur séð en að fyrirsögnin "Rússar hafna láni til Íslands" sé röng.
Það má skilja hana sem svo að Rússar hafni því að fá lán, sem Íslendingar áttu að fá.
Þeir sem "hafna" einhverju hafna gjöfum, tilboðum eða einhverju sem er beint til þeirra, - ekki frá þeim.
Rússar eru hættir við að lána Íslendingum, svo einfalt er það.
Ef ég hætti við að senda vinum mínum jólakort þá orða ég það þannig. Ekki: Ómar hafnar jólakortum til vina sinna.
![]() |
Rússar hafna láni til Íslands |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
14.10.2009 | 19:41
Senuþjófar á flugsýningum.
Sukhoi orrustuþoturnar sem koma eiga til Keflavíkurflugvallar voru senuþjófar á flugsýningum í París fyrir rúmum tíu árum. Ég held að það hafi fyrst og fremst verið vegna þess hvílíkir snillingar flugu þessum vélum.

Sérlega minnisstætt var þegar Bandaríkjamenn hugðust sýna einstæða fluggetu nýrrar, rándýrrar og flókinnar ofurþotu sem bar heitið X-31.
Hún kom fljúgandi í átt að flugsýningunni í París og gerði ýmsar æfingar þar sem notuð var flókin tækni byggð á því að nota hið gríðarlega afl hreyflanna til að láta vélina nær stöðvast í loftinu og standa upp á endann með tækni sem bar heitið "vectored thrust", sem útleggja má sem "fjölstefnukný."
Á eftir þessu atriði fór Sukhoi-þotan í loftið og gerði margfalt fjölbreyttari æfingar en bandaríska ofurþotan og þar að auki í návígi við áhorfendur yfir sjálfri brautinni en ekki í órafjarlægð eins og X-31.
Tókst snillingunum sem flugu Sukhoi-þotunni með að láta hana standa nær kyrrstæða upp á endann, nokkuð sem ég hef ekki séð neina flugmenn gera á neinum af þeim orrustuþotum sem ná tvöföldum hljóðhraða í ofanálag og hafa yfir 3000 kílómetra drægi. Var þetta eitt eftirminnilegasta atriði sem ég hef séð á flugsýningum.
Tveimur árum síðar áttu sömu flugmenn að endurtaka þetta á næstu Parísar-flugsýningu og voru áhorfendur tvöfalt fleiri en nokkru sinni fyrr, því að svo mikið orð fór af Sukhoi-atriðinu tveimur árum fyrr.
Þotan hóf sig á loft og var síðan flogið í nokkra venjulega hringi með hjólin niðri dágóða stund.
Síðan kom hún inn til lendingar og þulurinn tilkynnti: "Því miður verður ekki hægt að sýna meira flug á þessari þotu því að flugmennirnir geta ekki tekið hjólin upp !"
Já, bilun sem jafnvel eldgamlar litlar Piper Apache vélar eru lausar við!
Framangreint bendir til að þessar þotur sem eru hreyfla með alls 30000 kílóa kný og ná yfir 3000 km hraða þurfi á góðu viðhaldi að halda.
![]() |
Munu beita sér gegn viðhaldsstöð fyrir orrustuflugvélar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 19:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
14.10.2009 | 13:58
Í lið með Eiði.
Þetta er svo sem ekki stórt atriði en sögnin að telja og orðið talsins eru óþörf tískufyrirbrigði.
Dæmi: Í stað þess að segja: Akureyringar eru um sautján þúsund er bætt við orðinu talsins, sem er alveg óþarft.
Enn verri er þrálát notkun sagnarinnar að telja þegar tölur eru nefndar.
Þá lítur Akureyrarfréttin svona út: Akureyri telur sautján þúsund manns sem er alger málleysa.
Við, sem fáumst við gamanmál leyfum oft púkanum í okkur að leika sér svolítið og getur hálkæringurinn orðið býsna mikill þegar menn vega hver annan í góðsemi eins og Grímur Thomsen orðaði það.
Fyrir mörgum árum fór Flosi Ólafsson frá Akureyri eftir að hafa dvalið þar um hríð og var ekki ánægður með allt hvað Akureyrardvöl sína snerti.
Þá gerði hann þessar tvær vísur:
Frá Akureyri ég býst nú brott /
á bitrum vetrardegi köldum. /
Á Akueyri er allmargt gott /
en ekkert þó af mannavöldum.
Aðra vísu gerði hann sem hann fór með í einum af spurningaþáttunum "Hvað heldurðu?"
Á Akureyri um það bil /
ekki neins ég sakna. /
Jú, þar er fagurt þangað til /
þorpsbúarnir vakna. /
Ég gisti á Akureyri tvær nætur á dögunum og var svo óheppinn að fyrri nóttina varð mér ekki svefnsamt lengi vel vegna drykkjuláta og hávaða og flýði úr húsinu.
Þá sá ég færi á að loka þeim kersknis- sólarhring sem Flosi hafði fjallað um að hálfu leyti:
Á Akureyri um það bil /
ást mín fer að dofna. /
Þar er ólíft þangað til /
þorpsbúarnir sofna. /
Hefði jafnvel getað haft vísuna svona vegna hugsanlegrar orsakar þess að hávaðanum linnti í lokin:
Um Akureyri um það bil /
ég ósofinn mun þreyja. /
Þar er ólíft þangað til /
þorpsbúarnir "deyja". /
Þess má geta að maður gekk undir manns hönd að bæta mér þetta ónæði upp og einnig bentu Akureyringarnir, sem allt vildu fyrir mig gera, á að fólkið, sem hélt fyrir mér vöku hefði verið aðkomufólk en ekki Akureyringar.
Minnti það mig að vísu á fréttina í Degi hér um árið þess efnis að hundur hefði bitið mann illa á Akureyri, en fréttin endaði síðan á setningunni: "Þess skal getið að um aðkomuhund var að ræða."
Til að jafna nú þessi mál vil ég geta þess að Akureyringar og Akureyri eru mikið eftirlæti mitt og að þar á ég ýmsa af mínum allra bestu og tryggustu vinum.
Síðastliðin sumur hef ég haft þar bækistöð í tengslum við kvikmyndagerð mína á Norður- og Norðausturlandi og mér líður alltaf vel þar.
Auk þess svaraði ég á sínum tíma vísu Flosa með svipaðri vísu um Reykjavík og Reykvíkinga og hef gert texta um Akureyri á borð við "Nótt á Akureyri" og "Halló, Akureyri."
Ætti enginn að velkjast um góðan hug minn til norðanmanna þótt það geti komið fyrir að brugðið sé á leik til gamans.
![]() |
Fórnarlömb skjálftans 1.115 talsins |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 14:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
14.10.2009 | 13:30
Skemmtilega unnin frétt.
![]() |
Mógolsa náði í ungan og sprækan elskhuga |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
14.10.2009 | 10:16
Hrunið - Stalíngrad - Demyansk.
Ég hef sem dellukarl í öllu sem snertir Seinni heimsstyrjöldina verið að horfa á ágætar og lærdómsríkar heimildarmyndir á YouTube um hershöf'ðingja Hitlers.
Í myndunum eru notuð síðustu tækifærin sem gefast til að ræða við aldraða afkomendur hershöfðingjanna og menn sem voru í innsta hring herjanna sem börðust til þess að varpa nýju og betra ljósi á þá og það sem gerðist.
Margt í þessum myndum minnir á íslenska Hrunið og "hernaðinn gegn landinu" sem Laxness skrifaði svo frábæra blaðagrein um.
Flestir hershöfðingjar Hitlers litu niður á "austurríska liðþjálfann" sem taldi sig standa jafnfætis þeim þrautreyndu og lærðu hernaðarsnillingum sem herhöfðingjarnir voru flestir.
En þeir urðu að beygja sig undir ægivald hans og verða leiksoppar þess hvernig hann notaði það til að ítrasta hvað þeir voru metnaðargjarnir og skylduræknir. Hann spilaði á það að setja þá í ónáð' á víxl, einn og einn, ef þeir mökkuðu ekki rétt, en ónáð eins þýddi að annar var í leiðinni hækkaður í tign.
Þetta þrennt, metnaðargirni, skyldurækni og blind hlýðni getur verið baneitruð blanda og reyndist það í hernaði Þriðja ríkisins.
Hernaður Þjóðverja varð "Hrun" eftir að þýski herinn hafði farið einstæðar sigurfarir í útrás, líkt og íslenska "Útrásin".
Leiftursóknin um Ardennafjöll í maí 1940 var fífldjarft en snillarlegt herbragð Von Mansteins sem byggðist á "element of surprise", að koma á óvart og nýta sér að því leyti fáfræði óvinarins um það sem var að gerast.
Þetta var hliðstætt því hvernig bankabólan byggðist á því að þjóðin uggði ekki að sér eða því hvernig virkjana- og stóriðjuæðið byggist á því að þjóðin viti sem minnst um allar hliðar þess máls, einkum þá sem snýr að náttúruverðmætunum sem fórnað er.
Á ferðum mínum síðasta áratug hef ég talað við marga ágætismenn, sem sögðu mér frá því trúnaði að þeir gerðu sér vel grein fyrir eðli þeirra framkvæmda sem þeir voru þátttakendur í en þeir "væru bara að vinna vinnuna sína, nýta menntun sína og hæfileika".
Hershöfðingjar Hitlers hlutu margir átakanleg örlög. Hitler lét drepa Rommel og átakanleg voru líka örlög Von Paulusar sem þorði ekki að óhlýðnast Hitler og bjarga 6. hernum út úr herkvínni í Stalíngrad meðan það var enn hægtt, heldur héldu hann og hans menn í nýjar og nýjar gyllivonir og loforð um hjálp að utan.
Minnir það ekki svolítið á það hvernig okkur Íslendingum sýndist inngripið frá Quatar og fleiri aðgerðir rétt fyrir Hrunið vera hjálp að utan sem gæti bjargað málum?
Gyllivon Von Paulusar byggðist á því að Þjóðverjum hafði tekist að halda uppi 110 þúsund manna innilokuðum her í fjóra mánuði fyrr á árinu við Demyansk milli Moskvu og Pétursborgar á ævintýralegan hátt og bjarga honum síðan úr herkvínni.
Í staðinn innsiglaði Von Paulus dauða nær allra þeirra 300 þúsund hermanna sem voru í 6. hernum.
Rommel, Guderian, Manstein og fleiri sáu að leikurinn var tapaður vorið 1943 en samt þjónuðu þeir Hitler af fremsta megni eins lengi og þeir mögulega gátu, - þorðu ekki að rugga bátnum fremur en íslenskir ráðamenn síðasta hálfa árið fyrir íslenska Hrunið.
Fræðimönnum ber saman um Þjóðverjar hefðu getað komist mun betur út úr hildarleiknum ef þeir hefðu komist hjá afdrifaríkum mistökum Hitlers eða óhlýðnast honum.
Íslendingar hefðu líktast til líka geta komist betur af ef brugðist hefði verið fyrr við því tryllta æði á fjármálasviðinu sem við súpum nú seyðið af.
![]() |
Málin að komast á lokastig |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (19)
13.10.2009 | 19:58
Það sem ekki er til bilar aldrei.
Tæknin átti að leysa öll vandamál, nú síðast í Utopiumyndinni um Venusar-verkefnið. Í texta okkar Magnúsar Ingimarssonar um "Árið 2012" segir: "...vélar unnu störfin og enginn gerði neitt."
Tæknin átti að auka frítíma manna. En menn gerðu ekki ráð fyrir að allur vélbúnaðurinn gæti bilað og að upp risu nýjar stéttir sem ynnu við viðhald og endurnýjun.
Parkinson-lögmálið kveður á um að tiltekin starfsemi fylli ævinlega út í það rými sem fyrir hendi er.
Athafnasemi manna gerir það líka.
Við upptökur á hljóðum og tónlist komu svonefndar DAT-spólur á markað á níunda áratugnum og þóttu bylting.
Eftir örfá ár komu fram á þeim slíkir ágallar að þær hurfu næstum jafn hratt og þær komu. Niðurstaðan er sú að gamli vynillinn, gömlu hljómplöturnar, eru áreiðanlegasti varðveislumátinn.
Fræg er setning sjálfvirka búnaðarins í flugvélinni sem tilkynnir: "Í þessari flugvél er sjálfvirkur búnaður, sem sér um allt flug þotunnar og bilar aldrei....bilar aldrei....bilar aldrei."
Murphyslögmálið kveður á um að ef eitthvað geti farið úrskeiðis eða bilað muni það gera það, sama hversu fjarstætt það kunni að sýnast eða litlar líkur á því.
Lögmál Henry Ford er því það eina sem sem hægt er að treysta: Það sem ekki er til bilar aldrei.
Því segi ég stundum þegar allt fer í hönk í flókinni véla- og tölvuveröld okkar: "Þetta var allt saman miklu betra og öruggara hér í gamla daga."
![]() |
Svíþjóð hvarf af vefnum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
13.10.2009 | 13:24
Impregilo, gott og vont.
Í nýrri bók um Kárahnjúkavirkjun tekur Friðrik Sophusson upp hanskann fyrir Imgpregilo og telur að Íslendingar hafi ómaklega vegið að fyrirtækinu og ekki látið það njóta sammælis, - dæmt það miklu harðara en önnur fyrirtæki.
Sumt af því sem Friðrik segir er rétt eins og til dæmis það að ekki hafi verið rétt hjá Íslendingum að líta með fyrirlitningu á fyrirtækið vegna þess að það kom frá Suður-Evrópu.
Í ljós kom að tækni- og vélabúnaður Impregilo var í fremstu röð og átti sinn þátt í að yfirleitt tókst að klára þetta áhættusama og erfiða verkefni án þess að kostnaður við það færi enn meira fram úr áætlun en hann gerði.
Fyrirtækið hafði á sínum snærum mjög færan mann til að útskýra verkefnið í þeim kynnisferðum sem ég fór á svæðið, en hann var yfirverkfræðingur þar og hefði því ekki getað sinnt þeim störfum almennt og daglega. Miðað við stærð verkefnisins í jafn litlu landi og okkar var full ástæða til að fá innlendan mann til að sjá um samskipti við innfædda og það sýnir kannski hofmóð Impregilo að kvarta yfir því.
Ég tel hins vegar að gagnrýni á meðferð fyrirtækisins á starfsmönnum sínum hafi verið réttmæt og þarf ekki annað en að bera hana saman við vinnubrögð Bechtel á Reyðarfirði til að sjá muninn.
Upphaflega var því lofað að Íslendingar fengju 80% starfa við verkefnið en útlendingar 20% en þetta varð öfugt.
Impregilo flutti inn verkamenn frá fjarlægum löndum eins og Portúgal og Kína og einkum heyrði ég magnaðar sögur af því hvernig það fór með Kínverjana.
Þeir voru að sjálfsögðu vanir fáránlega lélegum kjörum og létu sig því hafa vinnuaðstæður sem engir aðrir hefðu þolað, til dæmis í göngunum þar sem bormenn lentu mánuðum saman í verstu hremmingum vegna misgengis.
Engin hætta er á að þessir menn muni bera vitni um sín kjör, - þeir komu og fóru og hurfu í kínverska mannhafið.
Mér finnst það móðgun við íslenska eftirlitsmenn að gera því skóna að aðfinnslur þeirra hafi ekki verið réttmætar. Þvert á móti undruðust margir það langlundargeð sem þeir sýndu gagnvart aðbúnaði og framkomu verktakanna við starfsmenn.
Ég undanskil verktakafyrirtækið Suðurverk þar sem ég heyrði aldrei neitt annað en gott um góða stjórn og vinnubrögð. Af samskiptum við starfsmenn Landsvirkjunar og Ístaks hef ég ekkert nema gott að segja.
Bechtel sýndi og sannaði í framkvæmdunum á Reyðarfirði hvernig hægt er að ná árangri í öryggismálum sem er í sérflokki og til eftirbreytni og lærdóms fyrir íslenska verktaka. Gildir þá einu þótt haft væri í flmtingum eystra að stundum skráðu menn meiðsli, sem þeir urðu fyrir á vinnustað, sem meiðsli á heimili sínu eða utan vinnusvæðisins.
Öryggisráðstafanir Bechtel stungu í stúf við það ábyrgðarleysi sem til dæmis var sýnt við vinnu fyrir neðan Fremri-Kárahnjúk og kostaði eitt af þeim mannslífum sem glötuðust við þessa framkvæmd.
Ég vísa einfaldlega í skýrslurnar um þetta slys fyrir þá sem vilja kynna sér þetta.
Friðrik fer hörðum orðum um norrænu fyrirtækin sem buðu í verkið og hurfu frá því og tel ég það mjög ómaklegt. Forráðamenn þessara fyrirtækja sáu þá gríðarlegu áhættu og mikla fórnarkostnað sem verkið bauð upp á og fáir hafa lýst betur en lögfræðingur Landsvirkjunar í bréfi hans til þeirra sem héldu fram kröfum vegna vatnsréttinda.
Ég hef áður vitnað í þessa lýsingu og þegar hún er lögð saman við álit nefndar um Rammaáætlun vegna virkjana sést eðli Kárahnjúkavirkjunar mjög vel.
Forráðamenn norrænu verktakanna sýndu ábyrgð og yfirvegun sem fór að sjálfsögðu í taugarnar á íslenskum ráðamönnum og Impregiló.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
12.10.2009 | 21:25
Hvað er "eðlilegur undirbúningur"?
Í ályktun borgarafundar um atvinnumál á Suðurnesjum er talað um verkefni sem hafi fengið "eðlilegan undirbúning". Í viðbrögðum á blogginu við ályktuninni sé ég meðal annars að umhverfisráðherra sem vill að öll framkvæmdin sé metin og skoðuð í heild er kallaður "landráðamaður."
Er það "eðlilegur undirbúningur" að rokið sé af stað með látum með einstaka hluta þeirrar framkvæmdar sem álver og orkuöflun til hennar er og síðan á að láta ráðast hvað kemur út úr dæminu þegar upp verður staðið?
Er það "eðlilegur undirbúningur" þegar ekki hefur verið gengið frá því hvort orka sé til fyrir því risaálveri sem menn ætla að reisa?
![]() |
Töfum í atvinnuuppbyggingu beint gegn tekjulágum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
12.10.2009 | 13:36
Allt er betra en álverið.
Skemmtileg tilviljun, ef það er tilviljun, að þessi viljayfirlýsing skuli koma eftir að ríkið hætti við að framlengja viljayfirlýsingu varðandi álverið á Bakka.

Alltgleypandi risaálver á Bakka þokast með þessu vonandi út úr myndinni svo að skaplegri kostir taki við.
Þá kosti benti ég strax ítrekað á snemma í kosningabaráttunni 2007 og æ síðan.
Ég minni samt á bloggpistil minn um erlendu fréttina um "gagnaveraæðið" sem er að grípa um sig og gæti spunnist upp í eitthvað svipað og "bankakerfisæðið" og "álveraæðið". Í þeim pistli varaði ég við því að "fara úr einu æðinu í annað" heldur að vinna að þessum málum yfirvegað og að vel rannsökuðu máli.
![]() |
Stefnt að gagnaveri í Þingeyjarsveit |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)