Hefði þetta verið hægt í 40 þúsund feta hæð?

Fréttin af manninum, sem opnaði neyðarútgang á farþegaþotu í 200 metra hæð, vekur fleiri spurningar fyrir leikmenn en hún svarar. 

Getur virkilega hver, sem er um borð, opnað svona dyr í hvaða flughæð, sem er? 

Það hefur komið einstaka sinum fyrir að síðuhafi hefur verið beðið að sitja við útgang, af því að hann hefur atvinnuflugmannspróf og því kannski nærtækari kostur en hjá algerum leikmanni að opna dyrnar ef þörf krefur í neyð.  

Hins vegar hljóðar ákveðið líkindalögmál, Murphys lögmálið,  þannig að ef eitthvað tiltekið atriði geti farið úrskeiðis eða mistekist muni það gerast fyrr eða síðar. 

Þess vegna væri fróðlegt og ef til vill gagnlegt ef nánar væri kannað hvaða möguleikar eru á því að opna dyr á farþegaþotum á flugi. 


mbl.is Hætta sölu á sætum við neyðarútgang
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

´"Íslensk náttúruvernd endar við fjöruna"?

Ofangreind setning hraut af vörum íslensks náttúruverndarmanns hér um árið þegar hann flutti erindi um stöðu íslenskrar náttúruverndar og fór yfir alþjóððlegu stöðuna í loftslagsmálum.  

Hann var með þessum orðum meðal annars að vísa til þess hve litla umfjöllun súrnun sjávar fær í hinni almennu umræðu, en einmitt sú staðreynd væri bæði óumdeilanleg og nærtæk fyrir þjóð eins og Íslendinga, sem hefði öldum saman átt tilveru sína lífríki hafsins að þakka. 

Síðan þessi ummæli féllu hefur lítil breyting orðið þar á, en fugladauðann við Ísland mætti skoða sem áminningu um þetta efni. 


mbl.is Hundruð lunda liggja dauð í fjörum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 28. maí 2023

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband