Eldgos geta haft lækningamátt.

Ég get vitnað um það að eldgos geta haft lækningamátt.  p1011308_975584.jpg

Þegar eldgosið á Fimmvörðuhálsi braust út voru réttar fjórar vikur liðnar frá því ég fótbrotnaði og ég var enn í gifsi og á hækjum.

Átti að fara í endukomu eftir hálfa viku og reiknað var með tveimur vikum í viðbót, eða sex vikum alls til þess að brotið greri að fullu, ef það væri ekki byrjað að gliðna. 

En staðreyndirnar tala sínu máli: Um leið og gosið hófst henti ég hækjunum og hef ekki notað þær síðan.

Gipsið var tekið og reyndist fótbrotið ekki hafa gliðnað. Það er að vísu ekki gróið að fullu, læknirinn áætlar að eina viku eða rúmlega það vanti upp á það

Síðan tekur við endurhæfing auk þess sem huga þarf að slæmu ástandi hins hnésins, sem tvívegis hafði verið skorið og þoldi ekki álagið sem fylgdi því að taka að sér hlutverk beggja fótanna.  

Ég sakna gifsins ekki nema að einu leyti.

Þegar ég var með það og hækjurnar sögðu sumir við mig: "Hvað ósköp ertu eitthvað aumur" eða "ósköp ertu eitthvað linur að sjá". Þá reiddi aðra hækjuna á loft og lamdi eins fast og ég gat á brotna hnéð, svo buldi í, og svaraði: "Það er nú eitthvað annað. Ég hef aldrei verið harðari!" "Þetta geta ekki margir gert!"  


mbl.is Fór lamaður að eldgosinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þorsteinn Briem

Illa hann er ekki farinn,
Ómar bara veðurbarinn,
af eldgosinu vel er varinn,
vitnar um það allur skarinn.

Þorsteinn Briem, 28.3.2010 kl. 17:02

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband