Óvenjulega snjólétt.

Alveg einstaklega snjólétt er á hálendinu og því má búast við að það verði ekki Kjalvegur einn, sem verði opnaður snemma, heldur einnig aðrir hálendisvegir að leiðinni ofan í Eyjafjörð frátalinni. p1011439.jpg

Eins og ég hef sagt áður frá er Sauðárflugvöllur harður eins og malbik og hefur verið opinn í 2-3 vikur. 

Skaut einni snöggsoðinni ljósmynd af fólki, sem flaug með mér inn á völlinn s. l. sunnudag og undraðist að sjá þar völl á stærð við Reykjavíkurflugvöll í 14 stiga hita inni við jökul í 660 metra hæð. 

Sá illa á skjá myndavélarinnar fyrir ofbirtu en á myndinni má sjá að endurnýja þarf vindpokann. 

Í baksýn sést Snæfell gnæfa í fjarska. 

Ég fékk fréttir af því í dag frá manni, sem var farþegi í Fokker F50 vél í morgun, að Snæfell hefði varla sést svona vel í morgun vegna mikils leirstorms úr lónstæði Hálslóns, en meirihluti lónsins, um 35 ferkílómetrar, er á þurru vegna þess hve miklu verður að hleypa úr því á veturna. 


mbl.is Búið að opna Kjalveg
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Óskar Þorkelsson

óvenjusnjólétt er í fjöllum noregs líka.. þeir eru farnir að hafa áhyggjur af rafmagnsverði næsta vetur.

Óskar Þorkelsson, 10.6.2010 kl. 17:19

2 Smámynd: Óskar Þorkelsson

http://www.aftenposten.no/nyheter/iriks/article3685598.ece

Óskar Þorkelsson, 10.6.2010 kl. 17:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband