Stóðust prófið.

Íslenskir fjölmiðlar og fjölmiðlafólk stóðst það miklal próf á fagmennsku og dugnað, sem gosið í Eyjafjallajökli og fjölmiðlun af því fól í sér.

Ég dróst inn í samvinnu við fjölmarga fjölmiðla frá öllum heimsálfum, þar sem öflugustu miðlar heimsins sendu sitt færasta fólk, og tel mig geta fullyrt, að íslenskt fjölmiðlafólk stóð þeim ekkert að baki, bæði hvað snerti öflun og úrvinnslu efnis og aðstoð og samvinnu við erlenda fjölmiðla. 

Það var ekki að ástæðulausu að fréttastofa RUV fékk verðlaun Sambands evpróskra sjónvarpsstöðva og er mér til efs að sambærileg verðlaun muni aftur falla í skaut Íslendinga. 


mbl.is Tilnefnd sameiginlega til blaðamannaverðlauna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Getur verið að þeir hafi staðist prófið vegna þess að engin leið var að gera það að pólitísku bitbeini? Eyjafjallajökull stýrði sjálfur umræðunni.

Ragnhildur Kolka, 19.2.2011 kl. 16:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband