Vantaði eitt elsta trixið í handbókina?

Allir þekkja öryggisgæsluna sem er í gangi varðandi millilandaflug. Margskoðaðir passar og farseðlar, gegnumlýsingar, fatafækkanir, tyggjóklístur fjarlægð undan skóm o. s. frv.

Ég hef verið á ferð við Reykjavíkurflugvöll nær daglega í bráðum hálfa öld en hef orðið að fara á sérstakt námskeið á tveggja ára fresti hingað til, svo að mér sé persónulega treyst til að snúa lykli í einu hliði vallarins til að komast í og frá smáflugvél.

Síðan gerist það bara rétt si svona að tveir erlendir strákar, væntanlega dökkir á hörund, sem erfitt er að tala við vegna málleysis þeirra, ganga óhindrað um borð í millilandaflug á Keflavíkurflugelli eins og ekkert sé.

Hvernig má það vera?  Öll öryggisatriðin sem við kynnumst svo vel, svo og námsefnið á námskeiðunum sem ég verð að fara á til þess að teljast hæfur til að snúa einum lykli í hurð við Reykjavíkurflugvelli, eru í samræmi við strangar erlendar kröfur, settar fram af færustu öryggissérfræðingum heims, væntanlega með CIA að bakgrunni eftir 11. september 2001.

Samt ganga þessir tveir erlendu piltar út og inn í Leifsstöð alla leið út í millilandaþotu án þess að nokkuð finnist athugavert við það.

Eitt elsta og áhrifaríkasta trixið í hernaði og glæpum er að beita blekkingum, sigla undir fölsku flaggi meðal annars með því að dulbúast.

Þegar Þjóðverjar réðust inn í Niðurlönd 10. maí 1940 og einnig í innrásinnni Barbarossa inn í Sovétríkin voru sumir hermenn Þjóðverja í búningum herja andstæðinganna og rugluðu þá þannig í ríminu.

Sagt er að erlendu strákarnir hafi klæðst í föt starfsmanna í Leifsstöð. Hvernig komust þeir yfir þá?

Eða saumuðu þeir þá sjálfir? Eða keyptu þá bara í búð?

Maður hefði haldið að eftir árþúsunda reynslu af blekkingum og dulbúningum myndi kerfi, hannað af færustu öryggissérfræðingum og leyniþjónustumönnum heims gera ráð fyrir að þessu gamalkunna bragði.

En svo virðist ekki vera. Hinu getum við treyst að áfram verði þaulleitað á okkur og skilríki skoðuð margsinnis þegar við, sem aldrei gerum neitt af okkur, förum um Leifsstöð.

Og vei þeim, sem hefur stigið óvart á tyggjóklessu á leiðinni inn án þess að taka eftir því.


mbl.is Lokuðu sig inni á salerni flugvélar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður I B Guðmundsson

Þetta verður að rannsaka og menn látnir sæta ábyrgð svona einu sinni til tilbreytingar.

Sigurður I B Guðmundsson, 8.7.2012 kl. 23:37

2 identicon

Get staðfest að eftir síðustu ferð var engin tyggjóklessa eftir í frúnni :D

En svona í alvöru, - það þarf eitthvað fúsk að vera í gangi til þess að svona lagað geti átt sér stað.

Jón Logi (IP-tala skráð) 9.7.2012 kl. 00:10

3 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Svo sannarlega er sá misbrestur sem þarna varð í öryggismálum, rannsóknarverður. En ekki síður áhyggjuefni ef byrjað er að handtaka fólk á Íslandi fyrir það eitt að reyna að komast frá landinu. Það minnir óþægilega mikið á Austur-Þýzkaland sáluga.

Höfund færslunnar get ég þó ekki stillt mig um að spyrja útfrá eftirfarandi hendingu:

"tveir erlendir strákar, væntanlega dökkir á hörund, sem erfitt er að tala við vegna málleysis þeirra"

Hvað er það nákvæmlega sem gerir að verkum að hörundslitur skipti slíku máli, að ástæða sé til að gefa sér það án vissu, að hann hljóti að vera dökkur?

Hefur það nokkuð með að gera að í því tilviki sem svo er vísað til?:

"með CIA að bakgrunni eftir 11. september 2001"

...fól sá "bakgrunnur" meðal annars í sér hörmungar ólöglegra innrásarstríða fyrir milljónir einstaklinga þar af stóran hluta dökkan á hörund, ólöglegar pyningar og ómannúðlega meðferð á nokkrum hluta þeirra burtséð frá því að handtakra margra hafi eflaust verið réttmæt, og loks ótalinn fjöldi beinlínis tekinn af lífi án dóms og laga. Allt vegna 19 manna af dökkum hörundslit, sem eins merkilegt og það kann að virðast komu fæstir frá neinum þeirra landa sem viðbrögðunum var umsvifalaust beint að.

Eða er það hrein tilviljun að þetta sullast hér saman við frétt um tvo unglinga á flótta?

Loks dreg ég í efa að þeir séu mállausir þó þeir tali hugsanlega ekki neina íslensku.

Guðmundur Ásgeirsson, 9.7.2012 kl. 01:47

4 Smámynd: Ómar Ragnarsson

Jú, hörundsliturinn, ef dökkur var, skipti máli í því tilfelli að drengirnir hafa verið mun dekkri á hörund en aðrir starfsmenn og því stórfurðulegt, að ef allt í einu hafi verið komnir nýir og ólíkir menn í starfsmannahópinn, að það hringdi engum bjöllum.

Þeir voru "mállausir" að því leyti til að það tafðist að yfirheyra þá af því að það þurfti að ná í túlk til þess. Lýsingin á drengjunum er af minni hálfu eingöngu til þess að varpa ljósi á það, hver fáránlega langt þeir gátu gengið áður en það komst upp um þá.

Það er hrein tilviljun að nafn öryggislögreglu Bandaríkjanna verður að nefna sem uppsprettu þess lögregluríkis sem Osama bin Laden tókst óbeint að koma á á Vestiurlöndum með árásinni á Tvíburaturnana.

Mannréttindabrot og illvirki sem framin hafa verið í nafni stríðs gegn hryðjuverkamönnum hafa verið þess eðlis að ég tek undir lýsingu þína á þeim.  

Ómar Ragnarsson, 9.7.2012 kl. 10:42

5 identicon

Þið lesið margt úr þessari grein.

Ég held að þetta hafi nú bara verið íslenskir bankasvindlarar að reyna að sleppa úr landi.

J.

Jonsi (IP-tala skráð) 9.7.2012 kl. 12:23

6 Smámynd: Eyjólfur Jónsson

Þeir sem hafa búið í suður Evrópu þekkja vel alsírbúa. Þeir kunna flest-allir frönsku og ensku og eru í 99% tilfellum viðriðnir hriðjuverk í Evrópu. Það eru strangar reglur um alsírbúa við landamæri og þeir fá ekki bílaleigubíla. Þetta eru bara fá atriði um þetta fólk.

Eyjólfur Jónsson, 9.7.2012 kl. 12:40

7 identicon

Ótrúlegt að þessum mönnum sé sleppt aftur strax.  Þetta ætti að meðhöndla sem tilraun til flugráns og hryðjuverka. 

Spurning hvor að Guantánamo henti þeim ekki betur en Fit-hostel og íslensk meðvirkni.

imbrim (IP-tala skráð) 9.7.2012 kl. 12:58

8 Smámynd: Eyjólfur Jónsson

Fábjána og fávitaskapur! Þetta dæmi er ekki búið. Þarna eru þeir búnir aðsannprófa leið inn á flugvél á Keflavíkurflugvelli. Hversu blindir geta lögreglumenn verið?

Eyjólfur Jónsson, 9.7.2012 kl. 13:48

9 identicon

En hugsum í eigin barm:

Vil ég hafa þá í íbúðinni hjá mér? Nei

Vil ég hafa þá í stigaganginum? Nei

Vil ég hafa þá í vinnu? (Hef unnið með múslimum erlendis og þeir hafa ekkert verksvit)? Nei

Vil ég þá yfir höfuð hafa þá í landinu? NEI

En fávitarnir sem hafa ákvörðunarvaldið (vinstra pakkið í ríkisstjórn, sem þjóðin þarf að losna við), hvað segir það?

Fréttirnar um flóttatilraunir þessara araba segir allt um þeirra hugsunarhátt. Þeir hugsa akkúrat ekki neitt eins og vinstri er von að vísa!

V.Jóhannsson (IP-tala skráð) 9.7.2012 kl. 15:40

10 identicon

Eyjólfur Jónsson: Samkvæmt tölum Europol voru einungis 0,4% af hryðjuverkum í evrópu á árunum 2006-2008 framin af múslímum. 99,6% voru framin af öðrum (aðskilnaðarsinnum, kristnum ofl.). Hvernig nákvæmlega færð þú þá út að Alsírbúar "[...] eru í 99% tilfellum viðriðnir hriðjuverk í Evrópu"?

Sturla (IP-tala skráð) 9.7.2012 kl. 16:41

11 identicon

Flugvalla "öryggi" er af mörgum öryggissérfræðingum kallað "öryggis leikhús" og þjónar í raun mjög litlum tilgang.

Hvaða gagni ætli það þjóni að taka naglaklippur af fólki þegar það er með töluvert "hættulegri" lykla í vasanum?

http://en.wikipedia.org/wiki/Security_theater

Gunnar Cortes (IP-tala skráð) 9.7.2012 kl. 18:41

12 Smámynd: Óskar Arnórsson

V.Jóhannson að auglýsa hatur sitt á mannfólki yfirleitt og velur múslima til þess svo ekki komist upp um hatrið. Að bara ef maður er múslimi þá hafi maður ekkert verksvit. Klassískt skýringakerfi fábjánans ...

Þetta hefur ekkert með hörundslit eða trúarbrögð að gera að sjálfsögðu. Blogg á Íslandi er öðruvísi að því leyti að þar leyfist fólki að segja sumt átölulaust. Í mörgum löndum er ekki bara lokað á svona fólk, þeir eru kallaðir á lögreglustöðinna og sektaðir með öllum rétti...

Eiginlega er brot V.Jóhannssonar á blogginu miklu stærra og alvarlegra enn þessa stráka sem gerðu öryggismálum á flugvellinu þan greiða að sanna fyrir þeim að þeir kunna ekkert í öryggismálum og hafa knappast neitt verksvit sem talandi er um. Staðreyndirnar tala sínu máli.

Ég hef sjálfur afhent naglaþjöl og sjampóflösku til öryggisvarða á leiðinni um borð í þotu og síðan boðið að kaupa 50% brennívín á flugi í sömu þotu! ... er það flugöryggi?

Óskar Arnórsson, 9.7.2012 kl. 19:50

13 identicon

Sturla - Kemur fram í þessum tölum, hversu margir múslimskir hryðjuverkamenn í Evrópu, voru stöðvaðir í tíma (fyrir væntanlegt hryjuverk, samb. Julland Posten). Eru varúðar ráðstafanir í London út af aðskilnaðarsinnum og krisnum?

Sturla - Öll ljós kveikt og enginn heima.

V.Jóhannsson (IP-tala skráð) 9.7.2012 kl. 19:58

14 identicon

Óskar Arnórsson - Ef þú meinar Svíþjóð þegar þú talar um mörg lönd, þá getur það passað, því þar máttu ekki opna munninn, því þá ert þú rasisti og stórhættulegur samfélaginu. Heilaþvegnara fólk fynnst ekki í V- Evrópu, bjó þar sjálfur í 20 ár.

Það eina sem þeir geta talað um er Zlatan enda engar aðrar fréttir af viti í fjölmiðlum þar og síst um pappírslausa flóttamenn!

V.Jóhannsson (IP-tala skráð) 9.7.2012 kl. 20:13

15 Smámynd: Óskar Arnórsson

Ég á við skandinavíu alla V. Jóhannson. Ég hef búið í Svíþjóð, Danmörku og smátíma í Færeyjum og ég er alveg sæmilega inn í þessum málum. Ég hef unnið með flóttamenn á öllum aldri í mörg ár. Þetta með hver sé múslimi og hver ekki er bara rugl. Að það sé áberandi hópur sem notar þessi trúarbrögð sem afsökun fyrir voðaverkum og ofbeldi, kemur þessum trúarbrögðum ekkert meira við enn þeim kristnu eða hvaða trúarstefnum sem er.

Íslendingar gætu tekið við aragrúa af flóttamönnum frá mörgum löndum, enn þeir gera það ekki. Þeir kalla sig gestrisna, enn þeir eru það ekki. Íslendingar vilja helst ekkert vita af neinum öðrum enn sjálfum sér með undateknum þó. Enn staðreyndir tala sínu máli, það eru engir flóttamenn á Íslandi því við kunnum ekki mannleg samskipti yfirleitt í þessum efnum.

Lýsing þín á múslimum V.Jóhannson er ekkert nálægt raunveruleikanum. Það sem er að ske í Evrópu er að flóttamannastýringin er farin úr böndunum og það hefur ekkert með sjálf trúarbrögðin að gera. Það hefur með kúltur að gera, fátækt, tungumálaerfiðleika og almennt atvinnuleysi.

Svo hvort ég myndi geta lifað í Svíþjóð ef engir útlendingar væru hér, það held ég að sé útilokað. ég held svei mér þá að Svíar myndu ekki tolla í eigin landi nema einmitt fyrir þá sök að hér eru nóg af útlendingum og ódýrum vinnukrafti sem gerir það að verkum að landið gengur vel.

Þýskaland hefði aldrei geta byggst upp svona hratt ef það hefði ekki verið fyrir útlenskan vinnukraft...á Íslandi eru útlendingar að taka við þeirri vinnu sem íslendingar sem eru oft betur menntaðir, vilja ekki sjálfir vinna.

Ég myndi ekki vilja búa í neinu landi, bæ eða borg þar sem væru bara heimamenn. Þvílíkur leiðindastaður það væri...

Óskar Arnórsson, 9.7.2012 kl. 21:27

16 identicon

Tek undir hvert orð sem Óskar Arnórsson segir hér kl. 21:27

Haukur Kristinsson (IP-tala skráð) 9.7.2012 kl. 22:04

17 identicon

Ágætt Óskar, en ég bjó um tíma í úthverfi í Gautaborg sem heitir Biskopsgorden, en það var fyrir 20 árum síðan. Þetta var ágætis hverfi og þónokkuð mikið af innflytjendum m.a. frá Afríku og Asíu (flóttafólk), en svo jókst innflutningur mjög mikið og það fólk var öðruvísi en það sem bjó fyrir. Það hafði lítinn áhuga á að samlagast, læra tungumálið og sækjast eftir vinnu. Þeim fylgdi og fylgir mikil afbrot og ofbeldi og var það okkar vænsti kostur að flytja. Það var ekkert val. Þetta er allt svo kallað MENA fólk og þetta hverfi er eitt af hættulegust hverfum Gautaborgar og eru þau mörg.

Þú veist það sjálfur að múslimar hafa engann áhuga á að samlagast nýja heiminum en ætlast til þess að við "respektum" þá í einu og öllu og þeir eru ófeimnir við að gera kröfur. Meira að segja heimskir íslendingar (kanski ert þú einn af þeim),hafa samþykkt að ákveðinn matur sé ekki framreiddur í skólum, allt til að gera þessum minnihlutahóp til geðs. Það er eitthvað mikið að hér, eða hvað fynst þér. Fynst þér allt í lagi að þetta fólk troði á þér með skítugum skónum, bara af því að þeir eru múslimar. Ég segi það aftur-það er eitthvað mikið að hér! Ég hef ekkert á móti útlendingum, enda er ég útlendingur í því landi sem ég bý í, en MENA fólk, með sínar endalausu kröfur, er ekki fyrir mig. Sorry.

V.Jóhannsson (IP-tala skráð) 9.7.2012 kl. 22:25

18 identicon

Þið afskið yfsilonin , en það breytir ekki málstaðnum.

V.Jóhannsson (IP-tala skráð) 9.7.2012 kl. 22:33

19 identicon

Múslimar eru sjálfsagt eins og aðrir eins misjafnir og þeir eru margir.

Íslam, aftur á móti, er hryllingur hvernig sem á það er litið.  Ég hvet fólk til að lesa kóraninn og það ekki með gleraugum meðvirkni og vatnsgrautarumburðarlyndis.

imbrim (IP-tala skráð) 9.7.2012 kl. 23:19

20 Smámynd: Óskar Arnórsson

Ég þekki alveg ástandið í Gautaborg, Malmö og umm alla Svíþjóð V.Jóhannson. Öll stefna er sami fábjánagangur og er verið að reyna að koma á á Íslandi. Samlagast hverjum?

Heldur þú að íslendingar haldi ekki hópin þegar þeir koma til útlanda. Ég veit um sænska æfintýra pólitíkusa sem trúa á að útlendingar verði að læra siði Svía til að geta orðið hamingjusamir. þeir geta alls ekki látið þá í friði.

Danir eru búnir að banna kjöt og sparibauka í bönkum til að geðjast múslimum. Flestir múslimar vilja ekki sjá svona "virðingu" og skammast sín fyrir ruglaða múslima. það á engin að troða á neinum í nafni trúarbragða og mér er nákvæmlega sama hvort það eru múslimar eða jehovas vittne. Vilji menn stunda trúarbrögð gera þeir það án þess að troða þeim upp á neinn.

Vilji menn samt troða þessu upp á fólk verða þeir að taka afleiðingunum.

Ég umgengst múslima á hverjum degi. Ég veit alveg að þessu "hættulegu" hverfi eru til í Gautaborg, Malmæ og Stokkhólmi. Svíþjóð er eina landið í heiminum þar mér hefur dottið í hug að hafa vopn í bílnum sem jafn sjálfsagðan hlut og varadekkið.

Prófaðu bara að loka þúsund íslendinga inn í girðingu af sýstemi í Kína og vittu hvað skeður. Þeir munu bregðast alveg eins við. Við getum engum sýnt virðingu fyrr en við vitum hvað virðing er.

Ég hef ekkert hitt neina freka útlendinga á Íslandi. Enn fullt af frekum íslendingum. Ég hef sjálfur verið útlendingur í fullt af löndum og Svíþjóð er með verstu löndum í heiminum. Svo kemur England, Danmörk og Noregur.

Vandamálið er að við bjuggum til samfélag sem er þannig útbúið að ekkert pláss er fyrir sanngirni í garð þeirra sem verst eru settir. samfélag sem býr til og framleiðir hreinlega kerfi af fátækt og volæði fyrir sitt eigið fólk.

Svo koma útlendingar og hrista upp í þessu steingelda og ógeðslega kerfi sem er orðin eins og spennitreyja og menn ættu að skammast sín að láta frá sér sem arf til barna framtíðarinnar. Það sem leysir þetta vandamál er breytt hugsun og ekki fleiri reglur og bull sem þessu fólki er boðið upp á í dag.

Óskar Arnórsson, 9.7.2012 kl. 23:41

21 Smámynd: Óskar Arnórsson

.. og sjáiði bara þetta fyrirbæri sem kallar sig imbrim hérna að ofan. Skandinavia er full af svona fólki. Sá síðasti sem ég man eftir kemur frá Noregi og kallast Brevik...sem er þekktur fábjáni ...

Óskar Arnórsson, 9.7.2012 kl. 23:44

22 identicon

Þú ert stóryrtur Óskar.  Það er gott þegar menn hafa lítið að segja að nota stór orð.

Íslam boðar kvennakúgun og ofsóknir gegn þeim sem ekki lúta því.  Fáránlega harðar refsingar gegn hvers konar hegðun sem ekki rúmast innan þess, s.s. fordóma og kúgun.

Þeir sem benda á þetta fá mjög fljótt á sig rasisistastimpilinn og eru spyrtir saman við morðóða brjálæðinga af grunnhyggnum æsingamönnum.

imbrim (IP-tala skráð) 10.7.2012 kl. 00:35

23 Smámynd: Óskar Arnórsson

Stóryrtum verður að svara í sama stíl imbrim. Ég hef lesið bæði biblíu og nokkra hluta kóransins og þekki alvöru múslima alveg ágætlega. Og hvorug boðar beint ofbeldi sé maður ekki .ess duglegri að slíta textan úr samhengi sínu.

Þú ert ábyggilega ekki rasisti imbrim, enn fullur af fordómum, vandlætingu og þekkingarleysi. Ef einhver notar kóran sem skýringu á ofbeldi og morðum sínum, þá er hann ekki lengur alvöru múslimi þar með. Þá er hann, hún eða þeir komin í flokk glæpamanna sem alvöru múslimi hefur andstyggð á...

Það eru bara nokkur hundrið ár sem ofbeldisseggir kristnu kirkjunar notuðu sömu afsakanir enda kristni ekkert ólík Islam að þessu leyti....

Óskar Arnórsson, 10.7.2012 kl. 00:51

24 identicon

Kristni er gjörólík íslam að þessu leyti.

Rétt er það að kristnir menn hafa oft á tíðum hagað sér eins og skepnur en þeir hafa alltaf þurft að spinna eitthvað við sinn kristindóm til að réttlæta gjörðir sínar og í flestum tilfellum a.m.k. eru þessar gjörðir úthrópaðar sem illvirki af kristnum mönnum í dag.

Kóraninn er aftur á móti saminn af rakkaraforingja frá sjöundu öld og útkoman er samkvæmt því.  Múslimar þurfa bókstaflega að trappa niður bókstafinn til þess að haga sér ekki eins og skepnur.  Hið sanna íslam er stundað af talíbönum og sádi-aröbum.  Gengdarlaus kvennakúgun, ómanneskjulegar refsingar og ofbeldi.

Ég hef kynnst mörgum múslimum og veit þess vegna að þeir eru eins misjafnir og þeir eru margir.

Nokkrum hef ég kynnst sem voru múslimar að nafninu til eins og kannski flestir og fegnir því að vera lausir úr íslömsku klósettunum.  Ágætis fólk allt saman.

Svokölluðum muslim-youth líka.  Þeir voru uppfullir af sjálfum sér og fullkomlega sannfærðir um að vestrænar konur væru hórur og vestrænir karlmenn aumingjar sem leyfðu hverjum sem er að r... þeim og ekki nema sjálfsagt að þeim væri haldið uppi af samfélaginu sem þeir fyrirlíta.  Ógeðfellt helvítis drasl af mönnum.

Að vísu hef ég bara kynnst einum verulega trúuðum.  Ágætis maður að upplagi en algjörlega fylgjandi því að fylgja ritunum út í æsar.  Grýtingar, handhögg, hengingar og drekkingar all the way.  

imbrim (IP-tala skráð) 10.7.2012 kl. 03:05

25 Smámynd: Óskar Arnórsson

Kóran eru reyndar tvær bækur, sú fyrri sem er lík biblíu og sú seinni sem auðvelt er túlka sem hálfgerða stríðsyfirlýsingu. Enn sérðu hvernig þetta virkar? 2 útlendingar sem íslendingar fara með eins og skepnur og vilja úr búrinu, eru afgreiddir eins og kristnum mönnum sæmir.

Auðvitað á ekki tengja trúarbrögð við atvik BARA þegar múslimi á í hlut, enn ALDREI þegar t.d. kristni eða einhver önnur trúarbrögð eru á teppinu.

Þessir strákar tóku af sér spennitreyju þá sem við vorum búnir að sauma á þá í nafni okkar trúarbragða, kerfissins sem fær fjölda fólks að drepa sig á hverju ári, bara á Íslandi.

Okkur líkaði ekki tiltækið og núna eiga saksóknarar eftir að skoða hversu mikla refsingu á að úthluta fyrir þessa tvo....

Óskar Arnórsson, 10.7.2012 kl. 09:30

26 identicon

OK, en aftur að uppruna bloggsins hjá Ómari um þessa tvo og óupplýstum íslendingum til fróðleiks (ég veit að Óskar veit þetta) en í öllum arabalöndum hefur verið kend svokölluð skóla arabíska í áratugi og er hún eins allsstaðar. Þetta gerir erfitt fyrir vesturlandabúa að átta sig á hvaðan pappírslausir arabar koma því þeir geta logið til um þjóðerni ekkert síður en um aldur og heiti. Egyptaland , Morakkó, Alsír, allstaðar eins. Auðvitað eru díalekt allsstaðar en ef þessir drengir hafa gengið í skóla sem eru 60 % líkur þá er dæmið flóknara en ætla má í fyrst. Þeir geta þessvegna verið eftirlýstir í heimalandinu, hvaða land sem það nú er. Það átti að senda þess ólöglegu gutta úr landi samdægurs.

Það er rétt hjá þér Óskar, að íslendingar eru heimóttarleg fífl, hrokafullir í minnimáttarkendinni og mjög illa upplýstir, enda er allt best á Íslandi. Stjórnmálamennirnir eru verstir (Össur er óhuggulegt dæmi).

Annað: Þegar ég var í námi á Íslandi, þá var minn kennari dani og unnum við saman í 6 ár. Síðan hef ég unnið með fleir dönum, svíum, hollending og ameríkana, allt fínt fólk. Síðan koma pólverjar, dugandi og vinnusamt fólk sem allir vildu hafa í vinnu. Það eru ekki sömu pólverjar og þeir sem taka ferjuna yfir til Svíþjóðr til að ræna og rupla, enda hata svíar pólverja. Orðið rasisti var ekki til í málinu og engum illa við neinn, nema þá nokkra auðnuleysingja sem urðu stjórnmálamenn og eru það enn. Það er ekki fyrr en á erlendri grund, þar sem ég verð upplýstari og í návígi við allar þjóðir, að mín sýn á fólki breytist. Ég tek ekki hverjum sem er. Ég er ekki aumingjagóður eins og sumir og telst örugglega "rasisti" af vinstra treskinu, sem eru gegnuimsneitt fífl. Ég geri kröfur á fólk, eins og á sjálfan mig. Einfalt.Kv.

V.Jóhannsson (IP-tala skráð) 10.7.2012 kl. 10:10

27 Smámynd: Óskar Arnórsson

Sammála mörgu V.Jóhannson enn skil ekki hvað er að vera "ekki aumingjagóður". Sammála "venster träsk" vandamálinu. _Það þýðir ekki að ég sé glerharður hægrimaður því það er ég alls ekki. Össur er með vandamál sem ég nenni ekki að útlista hér. Hann passar inn í margar diagnósur sem eru í gangi.

vandamálið með flóttamenn verður ekki gert með að breyta þeim sjálfum Eða fá þá til að hlýða einhverju kerfi. Þeir verða að fá möguleika að lifa sýnu eigin lífi og séu þeir öðruvísi enn meðalíslendingurinn, þá þurfum við að hafa skilning á því að það er bara jákvætt...

Óskar Arnórsson, 10.7.2012 kl. 19:06

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband