Þolinmæði er þörf hjá ungum leikmönnum og þjálfara.

Lið Fram í úrvalsdeild glímir nú við falldrauginn einu sinni enn. Liðið byrjaði að vísu á Íslandsmótinu með því að spila ágætan fótbolta og hafði áður staðið sig vel í Reykjavíkurmótinu. 

En leikmennirnir eru flestir ungir og skortir reynslu. Falldraugurinn er ekki það eina sem er sálrænt áreiti heldur líka það að Fram hampaði bikarmeistaratitli í fyrra, öðrum af stóru titlunum í fyrsta sinn í 20 ár.

Það er alltaf erfitt að fylgja slíku eftir og í raun er ósanngjarnt  að bera saman bikarkeppnina og Íslandsmótið, því að möguleikarnir á að krækja í bikarinn eru miklu meiri en að hampa Íslandsbikarnum, svo miklu færri er leikirnir í bikarkeppninni.

Jafn ungt lið og Framliðið er verður að sýna liðinu og ungum þjálfara þess þolinmæði.

Leikmenn þurfa tíma til að öðlast keppnisreynslu og rétt hugarfar, - kunna að taka mótlæti og vinna úr því.

Það er ekki raunhæft að búast við árangri fyrr en í þriðja Íslandsmóti liðsins.  


mbl.is Framarar á botninn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband