Hefur oft verið hringlað með lista án ánægju allra.

Það eru mörg dæmi um það að fólk hafi verið fært til á framboðslistum þannig að röð prófkjara hafi ekki gilt. Ævinlega hafa menn staðið frammi fyrir slæmum kostum og líklega hafa aldrei allir verið ánægðir. 

Óánægðastir verða oftast stuðningsmenn frambjóðenda, sem telja sig illa svikna eftir gott starf fyrir sinn mann.  

Eitt af mörgum dæmum var það þegar Ellert B. Schram ákvað af drenglyndi sínu að gefa eftir sæti sitt svo að framboðslistinn sýndist ekki einsleitur. 

Þetta skapaði mikla óánægju meðal stuðningsmanna hans og Ellert náði aldrei að komast aftur á strik. 

Svipað mun áreiðanlega gerast núna, og ekki batnar ástandið þegar vandamálið er ekki í einu kjördæmi, heldur fleiri. 


mbl.is Þarf að skapa vinningslið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ekki óskynsamlegt að hafa Ásmund Friðriksson ofarlega í "vinningsliðinu." Dregur að fávita og fasista sem annars mundu kjósa Íslensku þjóðfylkinguna (ÍÞ).

Haukur Kristinsson (IP-tala skráð) 13.9.2016 kl. 17:29

2 identicon

Væri bara ekki rétt, að allir flokkar taki upp Pírata lýðræðið:                  Það er kosið, svo er aftur kosið, ef kafteinn Pírata líkar ekki niðurstaðan.    Þetta kalla Píratar Nýja ísland, eins og Píratar vilja hafa það.                Miklar sviptingar eru í pólitíkinni, í síðustu netkönnun á útvarpsaga.is       er Íslenska þjóðfylkingin hástökkvarinn, með 37.75% fylgi Sjallar 15.12% og framsókn 13.60% Samfylking 1.99%, Vinstri Græn 1.99%. Greinilegt að hlustendur útvarps Sögu vilja ekki Safylkinguna og Vinstri Græn í næstu Stjórn, kanski ekkert skrýtið eftir síðustu uppljóstranir, um gjafagerning á Bönkunum.           

Halldór Guðmundsson (IP-tala skráð) 13.9.2016 kl. 18:08

3 Smámynd: Þorsteinn Briem

Ekkert bendir til að fylgi þjóðernissinnaðra flokka hafi aukist hér á Íslandi undanfarin ár, heldur þveröfugt.

Þorsteinn Briem, 13.9.2016 kl. 18:43

4 Smámynd: Þorsteinn Briem

"Í Kristnum stjórnmálasamtökum eru 15 manns."

Jón Valur Jensson, 9.8.2014

Þorsteinn Briem, 13.9.2016 kl. 18:44

5 Smámynd: Þorsteinn Briem

27.2.2016:

"Aðspurður seg­ir Helgi [Helgason formaður Íslensku þjóðfylkingarinnar] að stofn­un nýs flokks hafi átt sér nokk­urn aðdrag­anda, eða al­veg frá því hann tók við sem formaður Hægri grænna.

Þetta var niðurstaðan á aðal­fundi flokks­ins sem fór fram í dag. Tólf sóttu fund­inn að sögn Helga en um 230 voru skráðir sem flokks­menn í Hægri græna.

"Hægri græn­ir þeir ganga þarna inn með manni og mús ...," segir Helgi."

Þorsteinn Briem, 13.9.2016 kl. 18:45

6 Smámynd: Þorsteinn Briem

https://upload.wikimedia.org/wikipedia/en/9/94/Mickey_Mouse_-_Blaggard_Castle.png

Þorsteinn Briem, 13.9.2016 kl. 18:46

7 Smámynd: Þorsteinn Briem

Merki Mörlensku þjóð"fylkingarinnar":

Þorsteinn Briem, 13.9.2016 kl. 18:47

8 Smámynd: Þorsteinn Briem

Fylgi Framsóknarflokksins11% og flokkurinn reynir með plottum að halda í þá fáu sem eftir eru.

Samkvæmt skoðanakönnunum fengi flokkurinn sjö þingmenn, engan í Reykjavík, einn í Suðvestur- og Suðurkjördæmi, og fimm í rollukjördæmunum, þar af tvo í Norðvestur- og þrjá í Norðausturkjördæmi.

Og af þessum sjö er meirihlutinn nú ráðherrar.

Steini Briem, 20.12.2014

Þorsteinn Briem, 13.9.2016 kl. 18:50

9 Smámynd: Þorsteinn Briem

Píratar og Viðreisn eru ekki þjóðernissinnaðir stjórnmálaflokkar.

Þorsteinn Briem, 13.9.2016 kl. 18:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband