Meiri möguleikar en fyrir rúmri öld.

Í kringum aldamótin 1900 varð bylting í útgerð á Íslandi með tilkomu vélknúinna fiskiskipa. 

Nú var það ekki jafn nauðsynlegt og áður að vera með verstöðvarnar sem allra, allra næst fiskimiðunum á útskögum og útskerjum.  

Lífið í þessum verstöðvum var afar erfitt og er Oddbjarnarsker yst á Breiðafirði gott dæmi um það. 

Nú fluttist sjávarútvegurinn inn í hafnarlægi inni á fjörðum, en samt sem næst fiskimiðunum. 

Síðasta aldarfjórðung hefur enn orðið bylting á þessu sviði, og nú í því formi að safna útgerðinni og fiskvinnslunni saman á miklu færri stöðum en áður var. 

Þetta hefur kostað mikla röskun en munurinn nú og fyrir rúmri öld er sá, að þjóðfélagið á miklu meiri möguleika núna til að draga úr henni en á tímum einhverrar fátækustu þjóðar í Evrópu. 


mbl.is Meirihluta boðin áframhaldandi vinna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þorsteinn Briem

Reykjavíkurhöfn í 101 Reykjavík er langstærsta fiskihöfnin á Íslandi og í engu öðru póstnúmeri á landinu er aflað meiri gjaldeyristekna, eins og hér hefur margoft verið bent á við litla hrifningu fávitanna.

Og hægt er að kynna sér sögu hafnarinnar í máli og myndum á íslensku og ensku á mörgum og góðum upplýsingaskiltum á Miðbakka norðan við Geirsgötu við Tollhúsið.

Það gera margir erlendir ferðamenn og landsbyggðarskríllinn ætti að taka sér þá til fyrirmyndar í þeim góðu efnum.

Þorsteinn Briem, 14.7.2017 kl. 14:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband