Sá fyrsti, sem kjaftaði frá, var látinn taka pokann sinn.

Kvótakerfið hafði verið við líði í innan við þrjú ár þegar hitti sjómann í Kaffivagninum sem lýsti brottkasti á bátnum, sem hann hafði róið á fram að því. 

Viðtalið var birt í Sjónvarpinu og þetta var í fyrsta sinn sem vitni að brottkasti lýsti því svona opinskátt og með skilmerkilegri röksemdafærslu, með því að líkja fiskinum við misstórar kartöflur hjá kartöflubónda. 

Hann vildi ekki greina opinberlega frá nafni bátsins. 

Daginn eftir var hann rekinn og látinn taka pokann sinn. 

Því miður gerðist það þegjandi og hljóðalaust og voru það mistök að fylgjast ekki með því og greina líka frá því. 

En satt að segja datt manni ekki í hug að viðbrögðin yrðu svona afgerandi og blygðunarlaus úr því að nafn bátsins var ekki nefnt. 

Auðvitað hefur brottkastið tíðkast allt frá upphafi kvótakerfisins og líka áður en það kom til. 

En ástæðan fyrir brottkastinu varð miklu meiri og augljósari eftir að kvótinn kom til sögunnar. 

Þegar þeir Magnús Þór Hafsteinsson og Friðþjófur Helgason mynduðu og gerðu frétt um brottkast voru viðbrögð útgerðarinnar svo harkaleg og þrýstingurinn þvílíkur, að allt var gert sem hægt var til þess að gera þetta ótrúverðugt, meira að segja að snúa því þannig að þetta hefði verið sýndargerningur! 

Í Kastljósi um það hvernig Fiskistofa hefur verið gert ómögulegt að fylgja eftir eftirliti með vigtun kom svipað fyrirbæri í ljós og lýst var í 60 mínútum varðandi lyfjaeftirlitið í Bandaríkjunum. 

Hér heima er líka lagaumhverfið þannig, að Landgræðsla Íslands getur ekki komið neinum viðurlögum yfir þá sem standa að gróðurspjöllum og því að níða land.

Það er eins og furðuleg hjarðhegðun valdi því að í útgerðinni og landbúnaðinum sé slegin allt að því skjaldborg um þá sem svindla á lögum og skapi sér séraðstöðu. 

Þetta er dapurlegt, því að með því að sölsa undir sig stærri hlut í fiskveiðum en löglegt er, og stunda búskap með rányrkju, er í raun verið að ráðast að kjörum hinna, sem fara að lögum.  


mbl.is „Haltu kjafti, taktu þátt“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þessi umræða kemur upp reglulega og hæst láta þeir sem vilja afnema kvótakerfið til að taka upp eitthvað annað sem passar betur þeirra hagsmunum

Allir sjómenn eru vændir um að taka þátt í þessu lögbroti en útgerðir hafa aldrei verið kærðar svo ég muni.

Grímur (IP-tala skráð) 26.11.2017 kl. 08:19

2 identicon

Á síðasta bátnum sem ég var á var þegjandi samkomulag um að það gengi ekki að koma með 190 kr fisk í land með kvóta sem kostaði 170 kr/kg. Skömmu síðar hætti ég til sjós...

GB (IP-tala skráð) 26.11.2017 kl. 11:36

3 identicon

Hefur fiskistofu í alvöru ekki dottið í hug að setja upp myndavélar báta með svipuðu sniði og ökuritar? Hvað er svona flókið? Persónuvernd?

Hafliði sjómaður (IP-tala skráð) 27.11.2017 kl. 01:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband