20.9.2018 | 00:25
Ekki batnar það!
Það er óhætt að segja, að bresk grund sé viðeigandi vettvangur Skripal-málsins svonefnda, því að allt frá dögum Sir Arthur Conan Doyles, Sherlock Holmes, Agöthu Christie, Hercule Poirot, Ian Fleming og James Bonds hafa Bretar og breskur uppruni og sögusvið fengið á sig ákveðinn upprunablæ hinna flóknustu og sérkennilegustu glæpasagna.
Skripal-málið virðist nú ætla að verða æ flóknara og furðulegra, og er það saga til næsta bæjar ef þetta mál mikilla alþjóðlegra afleiðinga kann að vera blekkingaleikur einn.
Ekki batnar það!
Eitrunin mögulega blekkingarleikur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.