20.7.2020 | 01:21
Minnst átta skjálftar upp á 3 til 5 stig..
Á vefnum vedur.is má sjá, að í gangi er heilmikil skjálftahrina norðaustur af Grindavík en vestur af og undir Fagradalsfjalli.
Myndin á mbl.is sýnir Garðsskaga og Garðinn sem er alls ekki á skjálftasvæðinu eins og sést á meðfylgjandi skjálftakortum vedur.is frá í nótt.
Hér verður því sett inn ljósmynd tekin að vetrarlagi yfir gigaröðinni Eldvörpum þar sem Fagradalsfjall sést fjærst rétt vinstra megin við miðja mynd, og glyttir þar í gufuna í Svartsengi.
Síðan í morgun hafa orðið tveir skjálftar yfir þrjá á Richter á svæðinu, sem er næst okkur á þessari loftmynd.
Alls eru skjálftarnir minnst átta og sá stærsti, við Fagnardalsfjall, 5 stig.
Jarðskjálfti 5 að stærð á Reykjanesskaga | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.