Mix, eini drykkurinn í lifrarbresti. Ice Cream Soda á Akureyri.

Mix getur verið magnaður drykkur og kannski þyrfti að rannsaka það fyrirbrigði sérstaklega, við lifrarbrest af völdum ofmæmis við ákveðnu sýklalyfi, Augmentin, sem veldur ofsakláða og lifrarbresti, verða Coladrykkir, þ.á.m. Coca-Cola, ódrekkendi með öllu, en Mix hins vegar sá eini, sem drekkandi er. 

Hemmi Gunn heitinn spilaði mað KA á tímabili og þjálfaði þar líka og fyrir norðan kynnti hann sunnlenska vini sína fyrir Akureyrardrykk, sem hann kallaði Ice Crea Soda og fékkst í ísbúð, sem var þá rétt fyrir neðan Bautann. 

Var Mix þá hrist saman við mjólkurís eftir kúnstarinnar reglumm. 

Mikið er gaman að sjá nafn Badda Jún, Björgvins Júníussonar i tengdri frétt á mbl.is. 

Hann var merkilegur maður og honum var margt til lista lagt. Hann skemmti til dæmis á skemmtunum með töfrabrögðum og sagði brandara. 

Enginn Íslendingur kunni jafn marga Sovétríkjabrandara og er skondið að sjá á Yotube að sumir þeirra eru eignaðir Ronald Reagan löngu síðar. 

Einn þeirra hefði einhverjum þótt eiga við á okkar tímum, en kannski í öðru samhengi.  

Hann átti við í Sovétríkjunum í áratugi og hljóðaði svona: "Sovétríkin eru eina landið í Evrópu, þar sem þú getur brotist inn í Kreml nóttina fyrir kosningar og stolið úrslitunum."


mbl.is Dularfullur uppruni Mix afhjúpaður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Reagan var góður brandarakall og það var eitt af því sem tryggði velgengni hans sem stjórnmálamanns. Hann safnaði (að eigin sögn) sovétbröndurum, en vildi meina að þeir væru allir upprunnir þaðan.

Yfirleitt kenna menn þó brandara við þá sem þeir heyra fyrst segja hann. 

ls (IP-tala skráð) 12.3.2021 kl. 08:15

2 identicon

Ein smá athugasemd: Hemmi Gunn spilaði með ÍBA.

Þorvaldur Sigurðsson (IP-tala skráð) 12.3.2021 kl. 10:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband