Til hvers eru reiðhjólabjöllur, gul vesti, hjálmar, endurskinsmerki og ljós?

Á ferðum á reiðhjólaslóðum, sem yfirleitt eru ákaflega hressandi og gefandi, vekur það athygli síðustu árin, að notkun á bjöllum, gulum vestum endurskinsmerkjum og ljósum, sem var lítil, fer sífellt minnkandi. 

Myndin hér á síðunni er tekin á Skólavörðustíg þar sem segja mátti að hjólhesturinn Náttfari væri bundinn við eins konar hestastein. . DSC09735

Í hverri "kaupstaðaferð" eru alltof margir á ferli, sem eru algerlega svartklæddir, allt frá svörtum lopahúfum, svörtum grímum niður í svarta jakka, buxur og skó.  

Á ferð dagsins 22ja kílómetra leið eftir endilangri borginni, kom hvað eftir annað fyrir, að bæði gangandi og hjólandi væru illsjáanlegir þegar komið var myrkur, heldur í raun dökkar feluverur óg líka á ljóslausum hjólum.

Það er mikilvægt að halda sig kyrfilega hægra megin á hjólastígum og reyna að vera víðbúinn því að hlaupahjól eða reiðhjól skjótist skyndilega fram úr, en á einum dimmum stað í kvöld á austurleið meðfram Miklubraut munaði hársbreidd að rekast á kolsvört þúst, sem reyndist vera maður, sem stóð þar á brún hjóla- og göngustígsins, nánast eins og um launsátur væri að ræða.  

Bjöllur, sem eru öryggisatriði, heyrast aldrei notaðar, heldur má búast við að menn á rafhlaupahjólum komi á fleygiferð og oft hljóðlaust, nær ósýnilegir úr hinum óvæntustu áttum. 

Það er misskilningur að notkun á bjöllum sé merki um frekju þess, sem nota hana, heldur er þeim umhugað að gefa upplýsingar þar sem þeirra er þörf. 

Gul vesti, sem eru svo nett og auðveld í meðförum og hafa þann auka kost að veita vörn gegn bleytu, eru alltof sjaldgæf.

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Grímur Kjartansson

Mikið innilega er ég sammála þér Ómar
Einu skipin sem maður sér endurskins merki hjá fólki er hjá verkamönnum og leikskólabörnum

Ljóslaus hjól og rafskútur er frekar regla en undanteknining og ekki er að sjá nein endurskins merki heldur á þessum faratækjum

Grímur Kjartansson, 15.12.2021 kl. 21:08

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband