Er sá eini sanni, sá sem gefur mest fyrir minnstan pening?

Opinber alþjóðlegur listi yfir merkustu bíla 20. aldarinnar bendir ekki til þess að þeir dýrustu hafi verið mest um verðir. Mini Cooper.

Fyrstu fimm eru Ford T, Mini, Volkswagen Bjalla og Citroen DS. 

Fast á eftir gætu komið bílar eins og Citroen Traction Avant, Willy´s jeep og Ford Mustang. 

Nafn Mini vekur athygli, því að 1959 var það hundódýr örbíll sem var þó lang rúmbesti bíllinn í þeim flokki, en varð líka eftir örfá ár sá hraðasti og sneggsti með 75 hestavélinni í Mini Cooper S. 

Þar á ofan vann hann ótal röll, svo sem fjögur Monte Carloröll. 

En merkastur var Mini 1959 fyrir það að vera fyrsti bílinn með fjögurra strokka, fjórgengis, vatnskælda vél sem var þversum fremst í bílnum, með drif á framhjólunum og hjólin úti í hornum bílsins. 

Akstureiginleikar þessa maklausa bíls voru slíkir, að nautnin við að aka honum var sú mesta möulega miðað við hverja krónu í verði hans. 

En yfirgnæfandi meirihluti bíla heimsins eru byggðir eftir þessari formúlu ofangreindra sex atriða, og sumir þeirra eru hreinir lúxusbílar. 


mbl.is Hinn eini sanni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kristján G. Arngrímsson

Ég átti tvo, fyrir margt löngu - annar þeirra varð varahlutlager fyrir hinn. Ógleymanleg útgerð. Magnað t.d. hvað hann komst í vetrarfærðinni á Akureyri.

Kristján G. Arngrímsson, 5.2.2022 kl. 09:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband