Um flest afar óvenjulegt stríð.

Ný hertækni og nýr veruleiki í fjölbreyttum viðskiptatengslum ríkja valda því að Úkranínustríðið er um margt mjóg frábrugðið stríðum 20. aldarinnar með sinn mikla fjölda skriðdreka, flugvéla og stórskotaliðs á tiltölulega einföldum víglinum. 

Hvor aðili um sig verður að meta, hve mikil og hvers eðlis eyðilegging innviða eiga að vera, þannig að ávinningur í yfirráðasvæði kosti ekki of mikið tjón fyrir þann, sem svæðið vinnur. 

Efnahagslegar flækjur yfir víglínur og milli andstæðra þjóða eru svo miklu víðfeðmari en gerðist í átökum 20. aldarinnar, þegar fjöldi nýrra tegunda vopna á borð við dróna voru enn ekki orðin til. 

Raunar eru misjafnar gerðir af styrjöldum ekki nýtt fyrirbrigði. Þannig voru stríðsátökin í eyðimerkurhernaðinum i Afríku í Seinni heimsstyrjöldinni afar lík sjóhernaði þar sem geta til flutninga liðs, vista, skotfæra og eldsneytis vó einstaklega þungt. 

Og styrjaldirnar í Afganistan og Víetham voru háðar allt ððrum lögmálum en hefðbundnar styrjaldir. 


mbl.is Þúsundir á flótta til Rússlands
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæll Ómar.

Nokkurn veginn réttmæt athugasemd varðandi innflytjendur almennt
og þá sem koma í boði stjórnvalda:

Megináhersla og krafa ætti að vera um
að dvalarleyfi fáist því aðeins að
allir innflytjendur sæki nám í íslensku
sem stjórnvöld standi fyrir enda góð íslenskukunnátta
grundvallaratriði og hornsteinn þess að
innflytjendur aðlagist fljótt og vel að samfélaginu.

Húsari. (IP-tala skráð) 12.9.2022 kl. 05:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband