"Lífið er núna."

LÍFIÐ ER NÚNA.  (með sínu lagi)

 

Er mótbyr og áföll okkur þjaka

til úrræða og varna þarf að taka. 

Og þá sést oft að þetta´er ekki búið 

þau eiga saman, hamingjan og núið. 

 

Og þótt hamingjan sé ekki alltaf gefin

og óvissan sé rík og líka eftinn

munum er við æviveginn stikum, 

að ævin hún er röð af augnablikum. 

 

Hver andrá kemur og hún fer

og einn og sér er dagur hver. 

Hvort nýir góðir dagar koma´er óvíst enn. 

En lærdóm flytur fortíðin, 

sem færir með sér vísdóminn: 

"Svo lærir lengi sem lifir" segja menn.  

 

Þúsund ár eru sem einn dagur.

Kenn oss að telja daga vora, að vér megum öðlast viturt hjarta.

Að vera eða ekki vera, það er málið. 

 

Lifum með lífinu eins og það er, 

unum því, sem ei verður breytt, 

en breytum því, sem er breytanlegt hér

í bæn og kjarki, sem frið getur veitt. 

 

Því hver dagur svo einstakur e;

kemur ekki til baka en geymist í minni. 

Hugrökk arka að auðnu´okkur ber

í æðruleysi og von hverju sinni. 

 

Hver ævi kemur og hún fer

og einn og sér er dagur hver. 

Með bæn í hvert sinn sköpum hamingjuna - núna!

 

Carpe diem! Grípum dagin! 

Og gangi sem flest í haginn!

Helst úr öllu gott við gerum! 

Glaðbeitt og hughraust verum!

 

Missum ekki´ á lífskraftinn núna!

Lífið er dásamleg gjöf! 

Og lífið er núna!

:,:Lífið er núna!:,:

 

 


mbl.is Krabbameinstilvikum fjölgi um 40% á 13 árum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Góðan daginn Ómar minn "snillingur ljóðanna". Vel gert að vanda.  Lifum í núinu alla daga. Ģóðar kveðjur í bæinn þinn. 

Sigríður B. Svavarsdóttir (IP-tala skráð) 10.11.2022 kl. 09:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband