Hjálmlaus á fullri ferð á skútu á rauðu ljósi yfir fjögurra akreina götu.

Í stuttum skrepp um sexleytið í kvðld mátti sjá hjálmlausan mann á skútu þjóta á fullri ferð eftir gangbraut yfir fjögurra akreina götu beint á móti rauðu gangbrautarjósi. 

Það úir og grúir af svona atvikum í þeirri "villta vesturs" umferð sem verið hefur á svörtum föstudegi þar sem staðið hefur yfir stanslaus flaumur auglýsinga undir kjörorðinu "ekki missa af" öllum fjandanum. 

Fáránlega margir virðast vera tilbúnir að fórna lífi og limum sínum og annarra fyrir fáfengilegan tilgang. 

Og niðurstaðan er tvöfalt fleiri slys og óhöpp en venjulega. 

 


mbl.is Umferðin eins og „villta vestrið“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

"Margir ökumenn virðast ekki hafa áttað síg á því, að maður sem áður fór allra sinna ferða á einkabíl en hefur skipt yfir í reiðhjól, rafreiðhjól eða léttbifhjól, gefur með því eftir rýmið sem hann notaði áður á einkabíl, og einhver ðkumaður getur þá notað það eftirgefna rými í staðinn. "

Það vantaði bara skútuna í upptalninguna.

Vagn (IP-tala skráð) 26.11.2022 kl. 02:27

2 Smámynd: Ómar Ragnarsson

Hún þekur um það bil 0,5 fermetra á malbikinu, en meðalbíllinn 8-10 fermetra eða tuttugu sinnum meira rými. 

Ómar Ragnarsson, 26.11.2022 kl. 10:57

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband