Erfitt að stöðva notkun á hinum illskeyttu jarðsprengjum.

Af mörgum illskeyttum vopnum, sem menn hafa notað hið ítrasta hugvit til að smíða, eru jarðsprengjurnar, sem komið er fyrir í hinu ítrasta launsátri til þess að sprengja fólk, oftast blásaklaust, í tætlur þar sem þessi óféti liggja í leyni. 

Af þessum sökum hefur um áraraðir verið reynt að ná fram allsherjar banni við smíði og notkun þessara mannskæðu vígtóla, en ævinlega hafa verið ríki, sem ekki hafa viljað taka þátt í slíku eins og nýjustu dæmum hjá Rússum í Úkraínu sýna. 

Arum saman stóðu Bandaríkjum gegn því að samþykkja þetta bann, og ef rétt er munað, hefur ekki heyrst af breytingu hjá þeim í því efni. 

Ekki hefur heldur heyrst af því að þeir hafi beitt jarðsprengjum, sem er auðvitað aðalatriðið, en samt hefur andstaða þeirra við banni verið þyrnir í augum hjá mörgum. 

 


mbl.is Jarðsprengjusvæði í Úkraínu á stærð við Kambódíu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásgrímur Hartmannsson

Jarðsprengja er brilljant vop ef notað rétt: setur eina þar sem mestar líkur eru á að einhver stæigi á hana, og í framhaldi af því fer herliðið miklu hægar yfir.

Ásgrímur Hartmannsson, 17.12.2022 kl. 20:13

2 Smámynd: Ómar Ragnarsson

Kjarnorkuvopn eru einnþá meira "brilljant". Gefa möguleika til að gereyða óvinahernum og óvinaþjóðinni á einni dagstund. 

Ómar Ragnarsson, 17.12.2022 kl. 20:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband